Umhverfismál

Stöðva markaðssetningu á ólöglegum sæfivörum
Fjórar vörur uppfylltu ekki skilyrði um markaðsleyfi og frávik vegna ófullnægjandi merkinga fundust á 40 vörum.

Mörg hundruð nemar flýja myglaðar stofur
Fossvogsskóla verður lokað á miðvikudag. Leitað er nú að húsnæði fyrir meira en 300 nemendur.

Mjög slæm loftgæði þrátt fyrir rykbindingu í vikunni
Sérfræðingur heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar segir mengunina nú blöndu af umferðar- og umhverfisryki.

Mótmæltu fyrir loftslagið þriðja föstudaginn í röð
Stúdentar mótmæltu loftlagsvanda þriðja föstudaginn í röð. Um 300 manns mættu á Austurvöll í hádeginu.

Álftin kastaði kveðju á hreindýrin og útskrifaði sig sjálf
Frægasta álft landsins, sú sem festi gogg sinn í Red Bull dós á dögunum, yfirgaf Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal í morgun.

Mikil aukning í umferð á höfuðborgarsvæðinu í febrúar
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar jókst um ríflega sjö prósent sem er mikil aukning í febrúar og mun meiri aukning en að jafnaði í þessum mánuði.

Sláandi munur á klettasnös við Fjaðrárgljúfur fyrir og eftir Bieber
Umhverfisstofnun birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem sjá má tvær myndir af sömu klettasnösinni við Fjaðrárgljúfur.

Lagt til að takmarka eða banna umferð á „gráum dögum“
Sveitarfélögum og Vegagerðinni verður heimilt að takmarka eða banna umferð um stundarsakir á tilteknum vegi eða svæði þegar mengun fer yfir heilsuverndarmörk eða þegar hætta er talin á að slíkt geti gerst ef frumvarp að umferðarlögum sem nú liggur fyrir Alþingi verður samþykkt.

Fórnarlamb flugumannsins sem kom til Íslands stígur fram
Tvær breskar konur hafa stigið fram og sagt frá því hvernig þær voru blekktar í ástarsamband við tvo lögreglumenn sem störfuðu sem flugumenn. Annar lögreglumaðurinn er Mark Kennedy sem sagður er hafa njósnað um mótmælendur sem mótmæltu Kárahnjúkavirkjun.

Slæm loftgæði í Reykjavík vegna svifryks
Slæm loftgæði eru nú í Reykjavík og víðar á höfuðborgarsvæðinu vegna þess hve mikið svifryk mælist í andrúmsloftinu.

Börnin þurfa að glíma við afleiðingarnar
Ný íslensk þáttaröð, Hvað höfum við gert?, hefur göngu sína sunnudaginn 10. mars á RÚV en umsjónarmaður þáttanna er Sævar Helgi Bragason.

Vakta eitruð og hættuleg efni í yfirborðsvatni
Umhverfisstofnun í samstarfi við aðrar stofnanir vakta nú eitruð og hættuleg efni í yfirborðsvatni á Íslandi. Vöktunin er hluti af innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins. Fyrstu niðurstöður munu liggja fyrir fljótlega en þá mun koma í ljós hvort vatnið standist þau umhverfismörk sem eru í gildi.

Hvetja almenning til að skilja bílinn eftir heima
Mikil mengun er á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Álftin laus við Red Bull dósina og komin í Húsdýragarðinn
Formaður dýraverndunarsamtakanna í Hafnarfirði, segir vel hafa gengið að fanga slasaða álft við Urriðakotsvatn fyrir hádegi í dag.

Áform um auknar rannsóknir á plastmengun í hafinu við Ísland
Engin markviss vöktun er með plastmengun í hafinu umhverfis Ísland. Mörg stór verkefni eru þó í bígerð, meðal annars í samstarfi við Norðurlönd. Sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun segir að hreinsun á skólpi gæti verið til mikilla bóta til að draga úr plastmengun.

Angela Merkel styður loftslagsverkföll nemenda
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segist í myndbandi styðja framtak nemenda sem hafa tekið upp á því að efna til loftslagsverkfalla á skólatíma.

Svæðinu við Geysi varla viðbjargandi vegna ágangs ferðamanna
Umhverfisráðherra vill takmarka fjölda inn áákveðin svæði á meðan unnið er að uppbyggingu.

Akurnesingar vilja hýsa fyrirhugaða stofnun um þjóðgarða
Bæjarstjórn Akraness hefur skorað á umhverfisráðherra að höfuðstöðvar fyrirhugaðar nýrrar stofnunar um þjóðgarða og friðlýst svæði verði staðsettar á Akranesi.

Ísland klagað fyrir eftirlitsnefnd Árósasamningsins vegna fiskeldislaga
Kvartað undan hraða afgreiðslu Alþingis á lögum sem heimila bráðabirgðarekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja en lögin útiloka aðkomu almennings og umhverfisverndarsamtaka að ákvörðunum er varða auðlindir landsins.

Óumdeilt að fiskur sleppur úr sjókvíum
Kröfum náttúruverndarsamtaka og veiðifélaga hafnað í tveimur málum sem varða samtals 1.700 tonna seiðaeldi í kerum á landi á Árskógssandi og í Þorlákshöfn.

Loftslagsverkfall: „Við verðum hérna alla föstudaga þar til gripið er til aðgerða“
Fjöldi íslenskra stúdenta komu saman á Austurvelli í hádeginu í dag í fyrsta loftslagsverkfalli ungmenna hér á landi. Skilboðin voru skýr: stjórnvöld þurfa að bregast stax við neyðarástandi í loftlagsmálum. Framtíð þeirra sé í húfi.

Loka svæði við Skógafoss
Umhverfisstofnun hefur lokað svæði við Skógafoss vegna mikilla leysingja og ágangs ferðamanna.

100 þúsund lítrar af mysu í Lagarfljót í hverri viku
Heilbrigðiseftirlit Austurlands gagnrýnir að Mjólkursamsalan hafi ekki staðið við orð sín um hreinsun mysu sem rennur í fráveitukerfi Fljótsdalshéraðs.

Vanúatúar vilja banna einnota bleyjur
Vanúatú er eitt af þeim svæðum í Kyrrahafi sem hafa orðið fyrir barðinu á loftslagsbreytingum.

Friðlýsing Dranga á Ströndum í kynningu
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni.

Gagnrýnir ákvörðun sjávarútvegsráðherra um áframhaldandi hvalveiðar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, um að heimila áfram hvalveiðar hér við land séu henni mikil vonbrigði.

Telur að sjávarútvegsráðherra stilli sér upp gegn náttúruvernd
Formaður náttúruverndarsamtaka Íslands segir nauðsynlegt að styrkja málsstað Íslands á alþjóðavettvangi og til þess þurfi meðal annars að hætta hvaladrápi.

Boða til verkfalls fyrir loftslagið: „Það er verið að gera okkur grikk“
Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) boða til verkfalls fyrir loftslagið á Austurvelli næstkomandi föstudag klukkan 12.

Segir áhættumat gefa færi á verulegum vexti laxeldis
Tekjur þjóðarbúsins af laxeldi gætu margfaldast á næstu árum, miðað við það svigrúm sem áhættumat vísindamanna gefur á auknu sjókvíaeldi.

Hagfræðingurinn Inger Andersen tekur við umhverfisstofnun SÞ
Aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, Antonio Gutierres, hefur útnefnt danska hagfræðinginn og umhverfisverndarsinnan Inger Andersen næsta yfirmann Umhverfisstofnunar SÞ.