Fjármálamarkaðir
7 8 9 10 11 ›
Bankarnir gefa ekki út AT1-bréf í bráð eftir yfirtökuna á Credit Suisse Markaðurinn með svokölluð AT1-skuldabréf í Evrópu er laskaður eftir yfirtöku bankans UBS á Credit Suisse. Íslensku viðskiptabankarnir munu því ekki geta nýtt, að minnsta kosti ekki í bráð, það svigrúm sem þeir hafa til að gefa út AT1-bréf en þau gera bönkum meðal annars kleift að ná fram hagkvæmari skipan eigin fjár. Innherji 3.4.2023 07:18
Arctica hagnaðist um 420 milljónir þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður Þóknanatekjur Arctica Finance jukust um liðlega 14 prósent á árinu 2022, sem einkenndist af erfiðum markaðsaðstæðum þar sem bæði hlutabréf og skuldabréf lækkuðu í verði, og námu samtals 1.222 milljónum króna. Þá jókst hagnaður verðbréfafyrirtækisins talsvert á milli ára og var afkoman sú næst besta í sögu þess. Innherji 1.4.2023 13:59
Ríkisstjórnin fresti flestum aðgerðum til næstu ára Stjórnarandstæðingar segja uppfærða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hvorki vinna gegn verðbólgu né bæta heimilum landsins upp miklar vaxtahækkanir að undanförnu. Ríkisstjórnin fresti meira og minna öllum aðhaldsaðgerðum fram á næstu ár. Innlent 31.3.2023 20:00
Hlutabréfaverð rýkur upp eftir ráðninguna Hlutabréfaverð í Regin hefur hækkað um 5,69 prósent það sem af er degi. Greint var frá því í gærkvöldi að Halldór Benjamín Þorbergsson, fráfarandi framkvæmdastjóri SA, tæki við sem forstjóri Regins í sumar. Viðskipti innlent 31.3.2023 13:30
Verðbólguálagið togast niður og um leið væntingar um topp vaxtahækkana Snörp gengisstyrking krónunnar síðustu daga, meðal annars drifin áfram af fjármagnsinnflæði, og væntingar um að verðbólgan sé búin að toppa hefur togað verulega niður verðbólguálag á skuldabréfamarkaði og um leið aukið trúverðugleika Seðlabankans í aðgerðum sínum. Þótt óvissan um framhaldið sé enn mikil, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði, þá gera fjárfestar nú ráð fyrir að vaxtahækkunarferli bankans ljúki fyrr en áður var talið. Innherji 29.3.2023 09:48
Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Námskeið til að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra „Frá aldamótum hefur mikil þekking orðið til hjá íslensku vísissjóðunum en það má segja að markmið VC Challenge námskeiðsins sé að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra. Með meiri þekkingu og reynslu verða þessir vísisjóðir álitlegri fjárfestingakostur fyrir aðra fjárfesta,“ segir Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK um samstarfsverkefni sem KLAK er nú aðili að ásamt mörgum aðilum í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Norðurlöndunum. Atvinnulíf 29.3.2023 07:01
Reynslumestu miðlarar Íslenskra verðbréfa hverfa á brott Þrír reynslumestu verðbréfamiðlarar Íslenskra verðbréfa (ÍV) eru að hætta störfum en í þeim hópi er meðal annars yfirmaður markaðsviðskipta félagsins til margra ára. Klinkið 27.3.2023 15:02
Inngrip seðlabanka - eru einhver takmörk? Nú standa erlendir seðlabankar á milli steins og sleggju með það hvernig þeir bregðast við því ástandi sem upp er komið. Munu þeir leggja áherslu á að bjarga bankakerfinu með björgunaraðgerðum eða munu þeir sýna áframhaldandi aðhald til að ná tökum á verðbólgu og skapa þá mögulega fleiri vandamál í skuldsettu kerfi? Umræðan 27.3.2023 12:02
Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum. Viðskipti erlent 23.3.2023 07:46
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eitt prósentustig. Viðskipti innlent 22.3.2023 09:01
Alls ekki víst að óróleiki á fjármálamörkuðum hverfi í bráð Mikill titringur hefur verið á fjármálamörkuðum úti um allan heim í dag vegna yfirtöku á svissneska bankanum Credit Suisse um helgina. Hagfræðingur segir að það sé alls ekki víst að óróleiki á mörkuðum hverfi í bráð. Viðskipti innlent 20.3.2023 20:30
Óvissa eitur í beinum fjárfesta Þrátt fyrir yfirtöku svissneska stórbankans UBS á Credit Suisse í gær reyndist það ekki vera nóg til að róa fjármálamarkaði. Við opnun markaða í morgun lækkuðu hlutabréf í Credit Suisse um 62%. Íslenska Kauphöllin er þá rauðglóandi - forstjóri Kauphallar segir óvissu eitur í beinum fjárfesta. Viðskipti innlent 20.3.2023 12:00
167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til 167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:34
Flestir telja að Seðlabankinn hækki vexti um meira en 50 punkta Mikill meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 75 eða 100 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Eftir sem áður helgast spár um brattar vaxtahækkanir af þrálátri verðbólgu, hækkandi verðbólguvæntingum og kröftugri einkaneyslu. Innherji 20.3.2023 09:41
Sögulegur og sorglegur dagur sem vonast var til að kæmi aldrei Á blaðamannafundi í Sviss í kvöld var tilkynnt um kaup UBS, stærsta banka Sviss, á Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Upphaflega var talið að kaupverðið væri rúmir tveir milljarðar Bandaríkjadala en nú er ljóst að kaupverðið var nokkuð hærra, um 3,24 milljarðar Bandaríkjadala Viðskipti erlent 19.3.2023 23:55
Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. Viðskipti erlent 19.3.2023 21:28
Forseti Sviss staðfestir kaup UBS á Credit Suisse Forseti Sviss hefur staðfest að UBS, stærsti banki Sviss, mun kaupa Credit Suisse, næst stærsta banka landsins. Ekki kom fram í máli hans hvert nákvæmt kaupverð er en það er sagt nema yfir tveimur milljörðum bandaríkjadala. Viðskipti erlent 19.3.2023 19:02
Samkomulag um kaupin sagt í höfn: „Sýnir hversu slæm staðan er“ UBS, stærsti banki Sviss, er sagður hafa samþykkt að kaupa Credit Suisse, sem er næst stærsti banki landsins. Kaupverðið er sagt vera yfir tveir milljarðar Bandaríkjadala. Yfirvöld í Sviss eru sögð ætla að breyta hlutafélagalöggjöf landsins til að koma í veg fyrr að hluthafa bankans fái að greiða atkvæði um söluna. Viðskipti erlent 19.3.2023 17:22
Fjármálaráðherra þurfi að gera meira: „Ásgeir er með þriðju vaktina“ Þingmaður Viðreisnar segir seðlabankastjóra sinna þriðju vaktinni í sambandi með fjármálaráðherra, sé litið til verkskiptingar á heimilinu. Ráðherrann þurfi að gera meira en að treysta bara á Seðlabankann og sýna aðhald í ríkisfjármálum. Viðskiptaráðherra segir alla í ríkisstjórn sammála um að ná þurfi verðbólgu, og ekki síður verðbólguvæntingum, niður sem fyrst þar sem ýmsar aðgerðir koma til greina. Viðskipti innlent 19.3.2023 13:04
UBS sagður ætla að kaupa Credit Suisse fyrir allt að milljarð dala UBS, stærsti banki Sviss, er sagður ætla að kaupa Credit Suisse, sem er næststærsti banki Sviss og rambar á barmi falls, fyrir allt að einn milljarð Bandaríkjadala. Það er einungis brot af markaðsvirði bankans við lok markaða á föstudag. Viðskipti erlent 19.3.2023 12:25
Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. Viðskipti erlent 18.3.2023 20:43
Bankar sameinast um að bjarga First Republic Nokkrir stórir bandarískir bankar hafa tekið sig saman og sett þrjátíu milljarða dollara inn í bankann First Republic til að forða honum frá falli. Viðskipti erlent 17.3.2023 07:24
Evruútgáfa Landsbankans mátti ekki tæpara standa vegna óróa á mörkuðum Útgáfa Landsbankans á sértryggðum bréfum í evrum fyrir jafnvirði 45 milljarða króna undir lok síðustu viku var „mjög jákvæð,“ að sögn seðlabankastjóra, sem segir að ef skuldabréfaútgáfan hefði ekki heppnast á þeim tíma hefði getað reynst afar erfitt að klára hana vegna óvissu á erlendum fjármálamörkuðum. Seðlabankinn gerir ekki athugasemdir við áform bankanna um arðgreiðslur og kaup á eigin bréfum við þessar aðstæður og það sé jafnvel ákjósanlegt út frá markmiði peningastefnunnar. Innherji 16.3.2023 17:24
Slær þúsunda milljarða króna lán frá seðlabanka Svissneski bankinn Credit Suisse ætlar að fá lánaða allt að fimmtíu milljarða svissneskra franka, jafnvirði hátt á áttunda þúsund milljarða íslenskra króna, frá seðlabankanum þar í landi til þess að styrkja stöðu sína. Hlutabréf í bankanum féllu um fjórðung eftir að stærsti hluthafi hans neitaði að setja meira fé í hann í gær. Viðskipti erlent 16.3.2023 08:36
Credit Suisse dragbítur á evrópskum bönkum Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti erlent 15.3.2023 17:47
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47
Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum Gjaldþrot Silicon Valley Bank (SVB) sýnir að sú stefna sem fjármálayfirvöld hafa rekið í einn og hálfan áratug var röng. Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum. Fleiri bankar glími við samskonar vanda og SVB en það stefnir þó ekki í aðra bankakrísu, segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics. Innherji 14.3.2023 15:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent