
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka

„Fyrsta sem maður hugsar er hvernig útskýrir þú þetta fyrir fjölskyldunni“
Mennirnir sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverk töldu að Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, væri enn utanríkisráðherra. Sjálfur veit Guðlaugur ekki nákvæmlega af hverju mennirnir vildu myrða hann.

Töluðu líka um að myrða Guðlaug Þór
Öruggar heimildir Vísis herma að mennirnir tveir, sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa skipulagt hryðjuverk, hafi rætt sín á milli um að myrða Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Geðlæknir skoðar skeytasendingar meintra hryðjuverkaskipuleggjenda
Geðlæknir mun gera almennt geðmat á tveimur karlmönnum á þrítugsaldri sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að fremja hryðjuverk hér á landi. Báðir sæta gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar tæpar. Verjendur beggja hafa kært úrskurð í héraði til Landsréttar.

Áfram fjórar vikur í gæsluvarðhaldi
Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hyggja á hryðjuverk í slagtogi við annan mann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaðurinn mun þó ekki sæta einangrun áfram líkt og hann hefur gert nær sleitulaust undanfarnar fjórar vikur.

Krefjast ekki einangrunar yfir mönnunum tveimur
Héraðssaksóknari ætlar ekki að gera kröfu um frekari einangrun í tilfelli tveggja karlmanna sem sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk. Karlmennirnir tveir verða leiddir fyrir dómara í dag.

Telur óhugsandi að krafist verði frekari einangrunar
Héraðssaksóknari ætlar að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir tveimur karlmönnum á þrítugsaldri sem eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Verjandi annars mannsins telur lagaskilyrðum ekki uppfyllt fyrir áframhaldandi gæsluvarðhald.

Flissaði í fyrstu áður en hún áttaði sig á alvarleika málsins
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ekki hafa tekið því alvarlega til að byrja með þegar henni voru sýnd samskipti manna á samskiptaforriti sem hótuðu að drepa hana „einn daginn“.

„Nafn mitt kom fram í tengslum við fólk sem átti að drepa“
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson og Smári McCarthy, fyrrverandi þingmenn Pírata, voru allir þrír kallaðir til sem vitni í skýrslutöku vegna rannsóknar lögreglunnar á ætlaðri skipulagningu hryðjuverka.

Styttu varðhald beggja manna um tæpa viku
Landsréttur stytti í hádeginu í dag tveggja vikna gæsluvarðhald yfir öðrum af tveimur karlmönnum sem lögregla grunar um skipulagningu hryðjuverka. Von er á úrskurði réttarins í tilvelli meints samverkamanns.

Sagðir hafa rætt um að drepa sósíalistaleiðtoga
Tveir karlmenn sem eru í haldi lögreglu vegna gruns um að þeir hafi unnið að skipulagningu hryðjuverka ræddu um að drepa Gunnar Smára Egilsson, formann Sósíalistaflokksins, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar. Þau voru bæði kölluð í skýrslutöku vegna rannsóknar málsins.

Fallist á kröfu um einangrun yfir hinum manninum líka
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst nú síðdegis á kröfu héraðssaksóknara um tveggja vikna áframhaldandi einangrun í tilfelli karlmanns á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um skipulagningu hryðjuverkaárásar. Héraðssaksóknari segir rannsókn miða ágætlega.

Fallist á kröfu um áframhaldandi einangrun
Karlmaður á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi var á tólfta tímanum úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun til tveggja vikna.

Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur
Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru í varðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á meintri skipulagningu hryðjuverka.

Afbrotafræðingar efast um ágæti aukinna valdheimilda
Afbrotafræðingar gera alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðar auknar valdheimildir lögreglu. Hvort sem þær birtast í aukinni vopnvæðingu eða auknum rannsóknarheimildum.

„Viljum við búa í þannig samfélagi?“
Stjórnarformaður Snarrótarinnar segir að rafbyssuvæðing kunni að auka öryggi lögreglunnar, en ekki almennings. Ekki sé hægt að snúa til baka af þeirri braut ef lögregla vígbýst. Hæstaréttarlögmaður gagnrýnir tímasetningu áforma dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir.

Ekki selst fleiri miðar á árshátíð lögreglunnar síðan 1998
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna segir að lögregluþjónar kalli eftir auknum rannsóknarheimildum og rafbyssum til að auka bæði öryggi sitt í starfi og öryggi borgara landsins.

Nafn föður ríkislögreglustjóra kom upp við skýrslutökur
Sigríður Björk Guðjónsdóttir sagði sig frá rannsókn á hryðjuverkamálinu sem upp kom í síðustu viku vegna mögulegs vanhæfis. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það vegna þess að nafn föður hennar kom upp við skýrslutökur sakborninga hjá lögreglu.

Alveg klárt að fullt tilefni hafi verið fyrir aðgerðum lögreglu
Það er alveg klárt að fullt tilefni hafi verið til að ráðast í þær aðgerðir sem ráðist var í síðustu viku vegna gruns um að einstaklingar væru að leggja á ráðin um að fremja hryðjuverk hér á landi, og að hættuástandi hafi verið afstýrt með aðgerðum lögreglu. Ríkislögreglustjóri hefur sagt sig frá rannsókn málsins vegna mögulegs vanhæfis.

Fleiri telja líkur á hryðjuverkaárás á Íslandi en áður
Margfalt fleiri landsmenn telja líklegra en áður að mannskæð hryðjuverk verði framin á Íslandi. Þetta sýnir ný könnun en afbrotafræðingur segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart og vera viðbrögð við nýlegum fréttum.

Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds
Lögreglan krefst áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir einum þeirra sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í tengslum við mögulega hryðjuverkaógn. Búið er að boða til blaðamannafundar á morgun klukkan þrjú.

Enginn blaðamannafundur í dag vegna meintrar hryðjuverkaógnar
Ekkert verður af blaðamannafundi ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna rannsóknar þar sem grunur leikur á um skipulagningu hryðjuverka. Stefnt var að því að halda fundinn í dag en nú sé unnið út frá því að fundurinn verði á morgun samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra.

Stefna á að veita upplýsingar á blaðamannafundi á miðvikudag
Ríkislögreglustjóri stefnir á að halda blaðamannnafund á miðvikudaginn vegna sakamáls þar sem tveir karlmenn á þrítugsaldri eru grunaðir um að hafa ætlað að skipuleggja hryðjuverk. Lögregla horfir frekar til upplýsingafunda til að veita fjölmiðlum upplýsingar heldur en að svara fyrirspurnum fjölmiðla daglega.

Segir skjólstæðing sinn samvinnufúsan og neita allri sök
Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður annars tveggja manna sem nú sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk, segir skjólstæðing sinn neita allri sök.

Munu halda annan blaðamannafund vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks
Annar blaðamannafundur verður haldinn í vikunni vegna rannsóknar lögreglu á skipulagningu hryðjuverks og vopnaframleiðslu. Blaðamannafundur var haldinn vegna málsins á fimmtudag en rannsókn málsins er í fullum gangi.

Óskuðu eftir tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir báðum mönnunum
Lögregla fór fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverks. Héraðsdómur féllst aðeins á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir öðrum þeirra en úrskurðaði hinn í einnar viku gæsluvarðhald.

Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik
Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans.

Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert
Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum.

Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils
Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi.

Málið óvenjulegt miðað við hryðjuverkamál á Vesturlöndum
Prófessor í stjórnmálafræði segir koma sér verulega á óvart að mál hafi komið upp hér á landi þar sem grunur er um að menn hafi verið að undirbúa hryðjuverk. Þá séu allar upplýsingar sem hafi komið fram mjög óvenjulegar og ekki í takt við sambærileg mál á Vesturlöndum.

Finnst fáránleg kenning að maðurinn tengist öfgahópum
Aðstandendur eins þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að undirbúa hryðjuverk kannast alls ekki við að hann hafi aðhyllst öfgakennda hugmyndafræði eða átt í nokkrum samskiptum við erlenda pólitíska öfgahópa. Mennirnir tveir eru grunaðir um stórfellda framleiðslu á skotvopnum, meðal annars með þrívíddarprentara, og sölu á þeim.