

Kompás
Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Ömmur og afar Bryndísar Klöru: „Tími aðgerða þegar liðinn“
Saga Bryndísar Klöru þarf að verða vendipunktur í baráttunni gegn ofbeldi, segja ömmur og afar hennar sem kalla eftir hertri löggjöf um ábyrgð foreldra, auknum forvörnum, sterkari úrræðum í skólakerfinu og bættum stuðningi fyrir þolendur og börn í vanda.
Fréttir í tímaröð

Bannar öðrum en heilbrigðisstarfsfólki að sprauta í varir
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Eftir gildistöku mega aðeins læknar með sérfræðileyfi í húðlækningum og lýtalækningum og annað heilbrigðisstarfsfólk, sem hefur aflað sér fullnægjandi þekkingar, sprauta fylliefnum undir húð.

Megi aldrei verða íslenskur veruleiki
Vopnaburður ungmenna hefur nú þegar valdið óbætanlegum skaða segir dómsmálaráðherra. Hnífaárásir megi ekki verða hluti af íslenskum veruleika og mikilvægt sé að efla geðheilbrigðisþjónustu. Undanþága frá refsingu vegna hylmingar og undanskoti sönnunargagna verði skoðuð.

Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann
Hátt í hundrað börn eru á þyngdarstjórnunarlyfjum. Barnalæknir sem hefur sérhæft sig í offitu segir þyngdarstjórnunarlyf ekki leysa offituvandann en þau hjálpi til.

Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy
Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum.

Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina
Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi.

Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll
Sala á lyfinu Ozempic, sem oft er notað til að stuðla að þyngdartapi, hefur meira en tuttugufaldast á einungis fimm árum. Sölutölur það sem af er ári gefa til kynna að notkun þyngdarstjórnunarlyfja sé enn að stóraukast. Læknir óttast of auðvelt aðgengi fólks að lyfjunum.

Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans
Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nauðga pilti undir lögaldri. Pilturinn hafði ætlað að koma upp um barnaníðing eftir að hafa horft á fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem barnaníðingar voru veiddir með notkun tálbeita.

„Við verðum að kunna okkur hóf í notkuninni“
Samgönguráðherra leggur áherslu á að frumvarp sem tekur á notkun rafhlaupahjóla fái meðferð í þinginu sem fyrst. Þó hjólin séu fínasta samgöngubót verði fólk að kunna sér hóf.

„Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að minnka slysatíðni“
Um fjórðungur vill banna notkun rafhlaupahjóla í miðbænum eftir miðnætti. Framkvæmdastjóri stærstu rafhlaupahjólaleigunnar segir að notendur hennar vilji allra síst að notkun verði takmörkuð. Hopp vilji þó gera allt sem í fyrirtækisins valdi stendur til að fækka slysum.

Fjöldi kærður og sektaður eftir slys á rafhlaupahjóli
Lögregla hefur á þessu ári kært og sektað um hundrað manns sem hafa dottið á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Aðalvarðstjóri umferðardeildar segir óhæft hversu algeng slysin eru og telur að taka þurfi á málinu.

Hjólin éti upp árangurinn
Samhliða fjölgun rafhlaupahjólaslysa fjarlægjast Íslendingar markmið um fækkun umferðarslysa. Samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er talinn nema um fjörutíu milljörðum á ári.

Um þrír á dag á bráðamóttöku eftir slys á rafhlaupahjóli
Á hverjum degi leita um tveir til þrír á bráðamóttökuna eftir slys á rafhlaupahjóli. Yfirlæknir segir algengt að fólk skelli á andlitið og margir hljóta því höfuðáverka. Hann segir börn og ölvað fólk eiga ekkert erindi á hjólin.

Heilaáverkar og lömun eftir rafhlaupahjólaslys: „Lífið mitt er bara svona núna“
Fjórðungur allra alvarlegra slysa í umferðinni verða á rafhlaupahjólum. Endurhæfingardeild Grensáss tekur á móti alvarlegustu tilfellunum; fólki með mænu- og heilaskaða og sumir ná sér aldrei til fulls. Í Kompás heyrum við sögur Evu og Birnu sem báðar lentu í lífshættu eftir alvarlegt slys á rafhlaupahjóli.

Setur reglur um hverjir geta sprautað fylliefnum í varir
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur samið drög að reglugerð með það að markmiði að takmarka meðferðir til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs.

Lítið fjármagn til eftirlits: Fólk tilkynni ólögmæta notkun efna til lögreglu
Forstjóri Lyfjastofnunar hvetur fólk til að tilkynna stofnuninni ef fylliefni valda vandræðum. Litlu fjármagni sé varið í eftirlit með efnunum.

Ætlar að setja reglur um notkun fylliefna með hraði
Heilbrigðisráðherra ætlar að setja reglur um notkun fylliefna á Íslandi. Hann segir að málið verði að vinna hratt og vonast til að á þessu ári verði notkun fylliefna háð skýrum takmörkunum.

Býður upp á bótox án nokkurrar læknismenntunar
Meðferðaraðili í Reykjavík býður upp á bótox þrátt fyrir að vera ekki með læknismenntun. Snyrtifræðingur segist ítrekað hafa tilkynnt stofuna, en að ekkert sé aðhafst.

Fylliefni hættuleg í röngum höndum og ástandið óásættanlegt
Ástandið á fylliefnamarkaðnum er óásættanlegt og frelsið allt of mikið að sögn yfirlæknis hjá Embætti landlæknis. Fylliefni geti verið hættuleg í röngum höndum.

Tekur á móti minnst einum á mánuði vegna mistaka við varafyllingu
Lýtalæknir segir minnst einn á mánuði leita til sín vegna mistaka við varafyllingu. Fagstéttir lýsa yfir þungum áhyggjum af því að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki sett reglur um notkun fylliefna þrátt fyrir að bent hafi verið á alvarlega, og í sumum tilfellum hættulega stöðu í áraraðir.

Slegin eftir umfjöllun Kompáss og kallar eftir reglugerð ráðherra
Formaður velferðarnefndar Alþingis hefur sent Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist skrifa reglugerð um notkun fylliefna og efna til að leysa upp fylliefnin. Hún segist slegin vegna þess sem fram kom í umfjöllun Kompáss í gær.

Í lífshættu eftir fegrunarmeðferð: Sagt að leita ekki til læknis
Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Snyrtifræðingar vilja reglugerð frá ráðuneytinu
Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð af því tagi sem lýst er í sjónvarpsþættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ófaglærðir sinna fegrunarmeðferðum með fylliefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Stjórnlausar fegrunarmeðferðir: Sprauta lyfi sem einungis læknar mega nota
Efni til að leysa upp varafyllingar eru notuð á ólögmætan hátt á snyrtistofum hér á landi. Læknir segir markaðinn með fylliefni stjórnlausan og óttast að illa geti farið.