Landslið karla í handbolta
25 26 27 28 29 ›
Ítalía tryggði sér sigur gegn Íslandi með seinasta skoti leiksins Íslenska U20 ára landsliðið í handbolta þurfti að sætta sig við súrt eins marks tap er liðið mætti Ítalíu á EM U20 ára landsliða í Portúgal í dag. Lokatölur 27-26, en Ítalir skoruðu sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir að íslenska liðið hafði unnið upp sex marka forskot. Handbolti 8.7.2022 12:35
Ætlum okkur stóra hluti en auðvitað þurfum við að spila mjög vel til að ná því „Ég skal alveg játa það að þetta er ógnarsterkur riðill. Það er kannski helst að við fáum úr þriðja styrkleikaflokki – Ungverjar í okkar tilfelli – sem eru ógnarsterkt lið. Það svona gerir þennan riðil mjög erfiðan,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, er hann var spurður út í riðil Íslands á HM í handbolta. Handbolti 7.7.2022 10:01
Frábær fyrri hálfleikur hjá strákunum í flottum sigri á Dönum Íslenska tuttugu ára landslið karla í handbolta var í miklu stuði í morgunsárið og vann fimm marka sigur á Dönum, 30-25, í lokaleik sínum á Opna Norðurlandamótinu í Noregi. Handbolti 30.6.2022 09:30
Benedikt tryggði íslensku strákunum sigur þegar leiktíminn var búinn Benedikt Gunnar Óskarsson reyndist hetja íslenska U20 ára landsliðs karla í handbolta þegar hann tryggði liðinu eins marks sigur, 25-24, gegn Norðmönnum úr vítakasti þegar leiktíminn var runninn út. Handbolti 29.6.2022 18:11
Ómar Ingi: Tólf ára Ómar hefði verið helvíti ánægður með þetta Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon var besti leikmaðurinn í þýsku bundesligunni í vetur, bestu handboltadeild heims. Handbolti 29.6.2022 08:00
Þorsteinn Leó tryggði Íslandi dramatískt jafntefli Þorsteinn Leó Gunnarsson reyndist hetja U20 ára landsliðs Íslands þegar hann tryggði liðinu jafntefli, 35-35, með seinasta skoti leiksins er liðið mætti Svíþjóð í opnunarleik Opna Skandinavíumótsins í handbolta sem fram ferí Noregi. Handbolti 28.6.2022 20:25
Alfreð Gísla sér íslenska handboltalandsliðið berjast um verðlaun á næstu árum Alfreð Gíslason er einn sá reyndasti og sigursælasti í hópi handboltaþjálfara heimsins og hann hefur mikla trú á íslenska karlalandsliðinu í handbolta á næstu árum. Handbolti 28.6.2022 09:00
Alexander Petersson leggur skóna á hilluna Handboltakappinn Alexander Petersson hefur tilkynnt að hann muni hætta í handbolta eftir yfirstandandi leiktímabil. Handbolti 25.5.2022 20:53
Vissi strax að meiðslin væru alvarleg þegar hann heyrði brak í öxlinni Elvar Örn Jónsson, leikmaður íslenska handboltalandsliðsins og Melsungen, verður frá keppni næsta hálfa árið eða svo vegna axlarmeiðsla. Hann er staðráðinn í að koma sterkari til baka og er handviss um að hann verði kominn í toppform fyrir HM í janúar á næsta ári. Handbolti 29.4.2022 09:00
Danir fjalla um aðstöðuleysi Íslendinga Svo virðist sem þrumuræða Guðmundar Guðmundssonar, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, um aðstöðuleysi íslenskra landsliða hafi ekki aðeins vakið athygli hér heima fyrir. Frændur okkar Danir hafa nú fjallað um það aðstöðuleysi sem hér ríkir. Handbolti 18.4.2022 12:30
Spilaði fyrsta landsleikinn í 816 daga: „Yndislegt að koma inn á“ Haukur Þrastarson lék í gær sinn fyrsta landsleik síðan 22. janúar 2020, eða í 816 daga, þegar Ísland vann Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023. Handbolti 17.4.2022 11:00
Ísland í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður á HM Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla á HM sem fram ferí Svíþjóð og Póllandi í janúar á næsta ári. Handbolti 17.4.2022 10:35
Reiður út í íslensk stjórnvöld: „Móðgandi hvernig þeir koma fram við þetta landslið okkar“ Þrátt fyrir að íslenska karlalandsliðið hafi tryggt sér sæti á HM 2023 með átta marka sigri á Austurríki, 34-26, sauð á Guðmundi Guðmundssyni eftir leik. Landsliðsþjálfarinn sendi stjórnvöldum tóninn og sagði ótækt að Ísland ætti ekki þjóðarhöll. Handbolti 17.4.2022 08:00
Myndir: Mikil gleði þegar áhorfendur fengu loks að mæta á leik hjá Strákunum okkar Í fyrsta sinn í rúm tvö ár gat íslenska karlalandsliðið í handbolta spilað fyrir framan áhorfendur þegar það mætti Austurríki í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023. Handbolti 16.4.2022 19:32
„Að sigla þessu svona örugglega finnst mér sýna mikið styrkleikamerki “ Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var gríðarlega sáttur eftir 8 marka sigur, 34-26, á Austurríki í dag. Með sigrinum er Ísland búið að tryggja sér sæti á HM í handbolta sem fer fram í janúar. Handbolti 16.4.2022 18:30
„Klæddi ég hann úr? Eitthvað aðeins“ Ýmir Örn Gíslason stóð að venju í ströngu í vörninni þegar Ísland vann Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna um sæti á HM 2023. Handbolti 16.4.2022 18:24
„Fékk gæsahúð mörgum sinnum“ Guðmundur Guðmundsson var hæstánægður eftir að Ísland tryggði sér sæti á HM með átta marka sigri á Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna í umspili í dag. Handbolti 16.4.2022 18:16
Umfjöllun: Ísland - Austurríki 34-26 | Leiðin greið á enn eitt stórmótið Ísland er komið á sitt sjötta heimsmeistaramót í röð eftir stórsigur á Austurríki, 34-26, á Ásvöllum í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM í Svíþjóð og Póllandi á næsta ári. Ísland vann einvígið, 68-56 samanlagt. Handbolti 16.4.2022 15:15
Haukur og Daníel koma inn í íslenska hópinn Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson hefur gert tvær breytingar á íslenska hópnum fyrir seinni leikinn gegn Austurríki í umspili um laust sæti á HM í handbolta. Handbolti 16.4.2022 12:16
Elvar Örn ekki með á morgun vegna meiðsla Íslenska landsliðið í handbolta verður án lykilmanns í leiknum mikilvæga gegn Austurríki á morgun í HM umspilinu. Handbolti 15.4.2022 20:00
„Ég spilaði fínan leik“ Óðinn Þór Ríkharðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var ánægður með sigurinn á sterku liði Austurríkis í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2023. Lokatölur 30-34. Handbolti 13.4.2022 19:30
„Hefði viljað fá fleiri mörk“ Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefði viljað vinna stærri sigur á Austurríki í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023 í dag. Leikar fóru 30-34 en Ísland náði mest sjö marka forskoti í leiknum. Handbolti 13.4.2022 19:18
„Finnst við með betra lið og mjög gott lið“ Bjarki Már Elísson var markahæstur á vellinum þegar Ísland vann fjögurra marka sigur á Austurríki, 30-34, í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023. Íslendingar náðu mest sjö marka forskoti en gáfu eftir og hleyptu Austurríkismönnum inn í leikinn. Fjögurra marka sigur var samt niðurstaðan. Handbolti 13.4.2022 19:04
Umfjöllun: Austurríki - Ísland 30-34 | Gott veganesti fyrir heimaleikinn Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann fjögurra marka sigur, 30-34, á því austurríska í fyrri leik liðanna um sæti á HM 2023 í Bregenz í dag. Seinni leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á laugardaginn. Handbolti 13.4.2022 14:45
Fjölskyldan mætt til að styðja Ými í Bregenz: „Þeir gera það sem þeir þurfa“ „Við vinnum þetta og þeir gera það sem þeir þurfa, strákarnir,“ segir Gísli Hafsteinn Gunnlaugsson, pabbi varnarmeistarans Ýmis Arnar Gíslasonar, í Bregenz í dag fyrir leikinn mikilvæga á milli Íslands og Austurríkis. Handbolti 13.4.2022 15:35
Segir risastórt afrek að vinna Íslendinga sem séu samt ekki sterkbyggðir Nikola Bilyk, skærasta stjarna Austurríkismanna, segir að það yrði gríðarlegt afrek að vinna íslenska landsliðið í dag enda sé Ísland eitt af fimm bestu handboltalandsliðum Evrópu. Handbolti 13.4.2022 12:00
Haukur og Daníel utan hóps í dag Landsliðshópur Íslands fyrir fyrri leikinn gegn Austurríki í umspili um laust sæti á HM 2023 í handbolta sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi er klár. Þeir Haukur Þrastarson og Daníel Þór Ingason eru ekki í leikmannahóp íslenska landsliðsins í dag. Handbolti 13.4.2022 11:01
Fullt hús þegar strákarnir okkar spila um HM-sæti Uppselt er á heimaleik Íslands gegn Austurríki í umspilinu um sæti á næsta heimsmeistaramóti karla í handbolta. Mótið fer fram í Svíþjóð og Póllandi í janúar á næsta ári. Handbolti 11.4.2022 17:00
Eina: „Kemur ekkert í staðinn fyrir reynslu af því að spila alvöru leiki“ „Íslenskir handboltamenn hafa verið í fremstu röð í heiminum í áratugi,“ sagði Guðjón Guðmundsson, Gaupi, í nýjasta „.Eina“ innslagi sínu í seinasta þætti af Seinni bylgjunni. Sport 9.4.2022 09:01
Viggó vongóður um að geta beitt sér gegn Austurríki Viggó Kristjánsson meiddist í ökkla þegar íslenska landsliðið kom saman til æfinga hér á landi í síðasta mánuði en reiknar með því að geta látið til sín taka í landsleikjunum mikilvægu gegn Austurríki. Handbolti 5.4.2022 18:00