
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna

Varnir Stjörnukvenna brustu í seinni hálfleik
Stjarnan á ekki möguleika á að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þetta var ljóst eftir 4-0 tap fyrir Levante frá Spáni í dag.

Valur skrefi nær Meistaradeildinni
Valur vann í dag mikilvægan 2-1 sigur er liðið mætti tyrkneska liðinu Fomget GSK í forkeppni Meistaradeildar kvenna.

Stjarnan slapp við Arsenal og Valur mætir Tyrkjum
Valur og Stjarnan voru bæði meðal þeirra liða sem komu upp úr skálunum þegar dregið var í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna í dag.

Sex Evrópumeistarar í liði ársins | Engin Sveindís Jane né Glódís Perla
Knattspyrnusamband Evrópu hefur opinberað lið ársins í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Enginn Íslendingur er á listanum en þar má finna sex leikmenn Evrópumeistara Barcelona, þá eru fjórar úr Wolfsburg en þó engin Sveindís Jane Jónsdóttir.

Barcelona Evrópumeistari eftir magnaða endurkomu
Barcelona er Evrópumeistari í knattspyrnu eftir 3-2 sigur á Wolfsburg í úrslitaleik í Eindhoven í dag. Wolfsburg leiddi 2-0 í hálfleik en frábær endurkoma Barca í síðari hálfleik tryggði þeim sigurinn.

Sveindís í byrjunarliði Wolfsburg í úrslitaleiknum
Sveindís Jane Jónsdóttir er í byrjunarliði Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu nú á eftir.

„Ég verð ekkert rosalega stressuð“
Það er hægt að nota ýmis lýsingarorð um Sveindísi Jane Jónsdóttur og eitt af því er hvað hún er svöl. Það er engin tilviljun að Wolfsburg nýtir hana til að kynna nýju treyjurnar sínar, og að hún hefur blómstrað í stórleikjum gegn Bayern München og Arsenal í vor. Og nú er komið að því að halda kúlinu í stærsta leik ársins.

„Það verða margir með Jónsdóttir á bakinu“
Stór hópur Íslendinga er mættur til Hollands til þess að styðja sérstaklega við bakið á Sveindísi Jane Jónsdóttur þegar Wolfsburg mætir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á morgun.

„Mjög gaman að hann hafi þessa skoðun á mér“
Sveindís Jane Jónsdóttir leikur á morgun úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, með Wolfsburg gegn Barcelona. Þar gæti hún nýtt ógnarhraða sinn sem heillað hefur meðal annars þjálfara Arsenal.

Segir Sveindísi einn besta skyndisóknarleikmann heims
Þjálfari Arsenal segir Sveindísi Jane Jónsdóttur vera einn besta skyndisóknarleikmann heims.

Sveindís spilar úrslitaleiki fyrir framan metfjölda í Þýskalandi og Hollandi
Sveindís Jane Jónsdóttir verður í sviðsljósinu með þýska stórliðinu Wolfsburg á næstunni. Liðið spilar bikarúrslitaleik í Þýskalandi á morgun og úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 3. júní, og áhorfendamet verður slegið á báðum leikjum.

KSÍ vill að UEFA breyti nafni Meistaradeildar Evrópu
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands samþykkti skipan í sérstakan starfshóp um kynjajafnrétti á fundi sinum á Akranesi 3. maí síðastliðinn en jafnréttismál voru áberandi á fundinum.

Fjórði leikmaður Arsenal sem slítur krossband í vetur
Laura Wienroither, leikmaður Arsenal, sleit krossband í hné í leiknum gegn Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu. Hún er fjórði leikmaður Arsenal sem slítur krossband í hné á tímabilinu.

Tryggðu sér sæti í úrslitum á troðfullum Emirates velli: „Vonandi verður þetta bara normið“
Þýska liðið Wolfsburg komst í gærkvöldi í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið Arsenal 3-2 á Emirates vellinum í gærkvöldi. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 2-2 og því varð að framlengja leikinn. Sigurmarkið kom rétt fyrir lok framlengingarinnar, en fyrri leikurinn í Þýskalandi endaði einnig 2-2.

Sveindís Jane þriðji Íslendingurinn til að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu
Sveindís Jane Jónsdóttir er þriðji Íslendingurinn sem kemst í úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Hin tvö eru Eiður Smári Guðjohnsen og Sara Björk Gunnarsdóttir.

„Við vorum heppnar“
„Þetta var erfiður leikur með framlengingunni. Ég hélt við værum að fara í vítaspyrnukeppni en við unnum,“ sagði Jill Roord, einn af markaskorurum Wolfsburg í ótrúlegum 3-2 sigri liðsins á Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Sjáðu mörkin: Sveindís Jane og Wolfsburg í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir framlengingu
Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 3-2 sigur á Arsenal í leik sem þurfti að framlengja. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 118. mínútu leiksins.

Hansen sakut Barcelona í úrslit Meistaradeildarinnar
Caroline Hansen skoraði eina mark Barcelona er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Chelsea í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Sveindís skoraði og lagði upp en allt jafnt fyrir seinni leikinn
Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg tóku á móti Arsenal í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. Sveindís skoraði og lagði upp fyrir Wolfsburg, en niðurstaðan varð 2-2 jafntefli og því er allt jafnt fyrir seinni leikinn.

Börsungar taka forystuna með sér til Spánar
Barcelona vann góðan 1-0 útisigur er liðið heimsótti Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í dag.

Chelsea í undanúrslit eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Chelsea er á leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigur gegn ríkjandi meisturum Lyon í vítaspynrukeppni í kvöld.

Sveindís og stöllur í undanúrslit Meistaradeildarinnar
Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg er liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 1-1 jafntefli gegn franska stórliðinu Paris Saint-Germain.

Bayern úr leik eftir tap í Lundúnum
Íslendingalið Bayern München er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-0 tap fyrir Arsenal í 8-liða úrslitum keppninnar. Bayern leiddi 1-0 eftir fyrri leikinn en tvö mörk í fyrri hálfleik breyttu gangi einvígisins.

Barcelona örugglega í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu
Barcelona flaug inn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 5-1 sigri á Roma í kvöld. Börsungar unnu einvígið samtals 6-1 og eiga því enn möguleika á að komast í úrslit þriðja árið í röð.

Sveindís Jane kom inn af bekknum þegar Wolfsburg kom sér í góða stöðu
Wolfsburg er í fínum málum í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu eftir að liðið vann 1-0 útisigur á PSG í kvöld. Sveindís Jane Jónsdóttir var í liði Wolfsburg.

Chelsea í góðri stöðu eftir útisigur í Frakklandi
Chelsea er í góðri stöðu í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu eftir 1-0 útsigur á Lyon í kvöld.

Reiður eftir að boltinn fór í hönd Glódísar
Glódís Perla Viggósdóttir reyndist fyrrverandi læriföður sínum svo sannarlega erfið með stórleik fyrir Bayern München gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld.

„Þá er bara að kyngja stoltinu“
Glódís Perla Viggósdóttir fór fyrir liði Bayern Munchen er það vann 1-0 sigur á Arsenal á Allianz Arena í gær. Um var að ræða fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Börsungar með naumt forskot fyrir seinni leikinn
Barcelona vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti Roma í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Íslendingalið Bayern fer með forystu til Lundúna
Íslendingalið Bayern München vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld og er því með forskot fyrir seinni leikinn sem fer fram í Lundúnum í næstu viku.