Gróðureldar í Heiðmörk
Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda. Innlent 23.2.2026 13:02
Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu verið í hættu vegna sinueldsins við Elliðavatn ef vindáttin hefði verði önnur í gær. Vatnsbólið er að finna ekki langt frá svæðinu sem brann og geta brunar sem þessi mengað þau. Innlent 23.2.2026 08:02
Sinueldur við Elliðavatn Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. Innlent 22.2.2026 15:39
Gróðursettu fjögur þúsund tré í Heiðmörk Björgunarsveitarfólk og sjálfboðaliðar frá Skógræktarfélagi Íslands og Skógræktarfélagi Reykjavíkur gróðursettu um fjögur þúsund rótarskot í Heiðmörk á dögunum. Á svæði sem varð illa úti í gróðureldunum í vor. Innlent 8.10.2021 15:54
Áfram hætta á gróðureldum þrátt fyrir úrkomu Hættustig vegna gróðurelda er enn í gildi á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir úrkomu um hvítasunnuhelgina. Áfram er spáð þurrki næstu daga ásamt talsverðum vindi. Til stendur að endurmeta stöðuna á föstudag en þá er von á úrkomu á Suðvesturlandi. Innlent 25.5.2021 18:49
Ekki lengur hættustig á Reykjanesi en NV-land bætist á listann Ekki er lengur hættustig vegna gróðurelda í gildi á Reykjanesi vegna úrkomu þar en hættustig hefur verið sett í gildi á norðvesturhluta landsins. Þar var áður óvissustig. Innlent 14.5.2021 15:44
Gömul og ný tré urðu eldinum í Heiðmörk að bráð Birki og stafafura sem hafði verið gróðursett voru á stórum hluta þess lands sem brann í gróðureldinum í Heiðmörk í síðustu viku. Gamall birkiskógur varð eldinum, sem er talinn hafa raskað smádýra- og fuglalífi, einnig að bráð. Innlent 13.5.2021 16:34
Heiðmerkureldurinn minni en áætlað var í fyrstu Umfang gróðureldsins í Heiðmörk í síðustu viku var þó nokkuð minni en slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu áætlaði í fyrstu. Miðað við tölur Skógræktarfélags Reykjavíkur var eldurinn sá þriðji stærsti á landinu undanfarin fimmtán ár. Innlent 11.5.2021 11:25
Fimm útköll vegna sinubruna eða óvarkárni Lögreglan var kölluð til vegna sinubruna á Laugarnestanganum í gækvöldi rétt fyrir miðnættið. Í skeyti lögreglu segir að um afmarkaðan bruna hafi verið að ræða. Innlent 10.5.2021 06:31
Fjögur útköll vegna gróðurelda frá því Heiðmörk brann Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur slökkt fjóra sinuelda frá því það slökkti gróðureld í Heiðmörk síðastliðinn fimmtudag. Varðstjóri segir að lítið þurfi til að kveikja sinubruna og að í sumum tilfellum sé grunur um íkveikju. Innlent 9.5.2021 19:44
Ræddu við fólk sem kveikti eld í og við Heiðmörk Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu ræddu við fólk sem grillaði í Heiðmörk í gær og ungmenni sem kveiktu varðeld við Hvaleyrarvatn í nótt. Óvissustig er í gildi vegna hættu á gróðureldum en yfirlögregluþjónn segir erfitt að banna fólki að nýta sér aðstöðu sem er til staðar. Innlent 9.5.2021 12:54
Fangelsisdómur bíður þeirra sem verða staðnir að sinubruna Þrír piltar á framhaldsskólaaldri voru í september 2008 dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sinubruna í landi Skógaræktarfélags Hafnarfjarðar við Hvaleyrarvatn. Piltarnir kveiktu eldinn í lok apríl sama ár. Innlent 7.5.2021 22:30
Heiðmörk opin en reykingar bannaðar Göngustígar og akvegir í Heiðmörk eru opnir gestum þrátt fyrir gróðureldinn sem geisaði á þriðjudaginn. Reykingar og hvers kyns meðferð elds eða eldfæra er bönnuð í Heiðmörk á meðan veður er jafn þurrt og nú er. Gestir friðlandsins eru hvattir hugsa vel um náttúruna. Innlent 6.5.2021 14:11
Óvissustig vegna gróðurelda frá Eyjafjöllum upp á Snæfellsnes Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Innlent 6.5.2021 12:33
„Örugglega stærsti svona bruninn í svona kjarrlendi“ Verðmætasta svæði Heiðmerkur virðist hafa sloppið í gróðureldinum í gær en það mun þó taka nokkurn tíma að sjá hversu mikið tjón varð. Innlent 5.5.2021 20:02
Næststærsti gróðureldur á Íslandi í fimmtán ár Gróðureldurinn í Heiðmörk í gær virðist hafa verið sá næststærsti á Íslandi frá brunanum mikla á Mýrum í Borgarfirði fyrir fimmtán árum. Fyrstu fjórir mánuðir ársins voru þeir þurrustu í Reykjavík í meira en aldarfjórðung. Innlent 5.5.2021 16:19
Gróðureldar – hvað getur ÞÚ gert? Atburðarás gærdagsins minnti okkur svo sannarlega á gróðureldahættuna og hversu nálæg hún raunverulega er. Skoðun 5.5.2021 16:00
Telja ekki að eldur af þessari stærð ógni vatnsbóli borgarinnar Gripið var til aðgerða til þess að fyrirbyggja að gróðureldur sem kviknaði í Heiðmörk í gærkvöldi kæmist í mannvirki og búnað vatnsbóla höfuðborgarinnar þar og fyrirbyggja mengunarslys. Ekki er talið að gróðureldar á yfirborði af þessari stærðargráðu og á þessum stað hafi mælanleg áhrif á vatnsgæði. Innlent 5.5.2021 11:57
Vita hvorki hvar eldurinn kviknaði né hvers vegna Upptök sinubrunans í Heiðmörk í gær liggja enn á huldu, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Erfitt var fyrir slökkvilið að komast að eldinum þar sem hann barst og varð töluvert svæði eldinum að bráð. Innlent 5.5.2021 11:21
Tveir af þrjátíu ferkílómetrum Heiðmerkur brunnir Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum gróðureldana í Heiðmörk í nótt og er störfum á vettvangi lokið. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru síðustu menn farnir af svæðinu um fjögurleytið. Innlent 5.5.2021 06:35
Slökkvistarf enn í fullum gangi þótt ástandið sé „aðeins betra“ Enn geisa sinueldar á skógræktarsvæðinu í Heiðmörk, sem kviknuðu á fimmta tímanum síðdegis í dag. Innlent 4.5.2021 21:53
Eldurinn geisar á „óþægilega stóru svæði“ Sinubruninn í Heiðmörk ríður yfir á versta árstímanum fyrir slíkar hamfarir, að sögn Vernharðs Guðnasonar, deildarstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Fuglarnir eru í varpi og skordýrin eru viðkvæm. Innlent 4.5.2021 19:01
Um fimmtíu manns berjast við meiriháttar sinubruna í Heiðmörk sem teygir sig í austurátt Allt tiltækt lið slökkviliðs, þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitarfólk hefur sinnt illviðráðanlegum sinubruna í Heiðmörk síðan rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt slökkviliðinu er bruninn að færast í aukana og teygir sig í austurátt. Innlent 4.5.2021 16:06