Náttúruhamfarir
19 20 21 22 ›
Bjóða Seyðfirðingum íbúðir sínar og hús til að dvelja í um jólin: „Maður er bara klökkur“ Seyðfirðingar hafa enn ekki fengið að snúa aftur til síns heima en þeir halda nú flestir til á Egilsstöðum, þar sem fjöldahjálparstöð var opnuð í gær. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum segir að þrjú- til fjögur hundruð manns hafi nýtt sér þjónustu fjöldahjálparstöðvarinnar í dag. Innlent 19.12.2020 22:41
Þurfti að vaða stóru aurskriðuna: „Gusurnar gengu þarna ennþá“ Þórarinn Sigurður Andrésson, betur þekktur sem Tóti Ripper, var einn þeirra sem fylgdist með aurskriðunni falla síðdegis í gær. Tóti var staddur í næsta húsi og þurfi hann að hlaupa þaðan niður að höfn til að forða sér frá skriðunni. Innlent 19.12.2020 21:01
Vatnsþrýstingur fer minnkandi í jarðvegi Vatnsþrýstingur hefur minnkað í jarðvegi á Seyðisfirði og útlit er fyrir að hreinsunarstarf geti hafist. Aðgerðarstjórn og samhæfingarstöðin hafa skipulagt björgunarstarf og gera nú áætlanir um hreinsun. Innlent 19.12.2020 20:44
Segir hamfarirnar skapa hugrenningartengsl við jólaguðspjallið Sigríður Rún Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði, segir það erfitt fyrir Seyðfirðinga að hugsa til þess að aðeins fimm dagar séu til jóla. Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði hafi skollið á á tíma sem reynist mörgum erfiður. Innlent 19.12.2020 20:00
Landsmenn allir veita Seyðfirðingum stuðning: „Þetta er stórkostlegt og við erum mjög þakklát“ Íbúar á Seyðisfirði hafa ekki fengið að snúa aftur til síns heima í dag. Neyðarstig er enn í gildi og óvíst hvenær hægt verður að hleypa fólki heim til að sækja eigur sínar. Varðstjóri á Seyðisfirði segist hlakka til að árið klárist. Innlent 19.12.2020 19:03
„Ég verð mjög feginn þegar 2020 er búið“ Lítil aurskriða féll á Seyðisfirði í morgun en viðbragðsaðilar hafa í dag unnið að gagnasöfnun og hættumati á svæðinu. Viðbragðsaðilar hafa meðal annars myndað Seyðisfjörð úr lofti með drónum, til þess að meta stöðuna. Innlent 19.12.2020 18:08
Myndir frá Seyðisfirði sýna gríðarlega eyðileggingu Eyðileggingin í kjölfar aurskriðanna sem fallið hafa á Seyðisfjörð var áþreifanleg þegar fjölmiðlafólki var hleypt að bænum í dag. Innlent 19.12.2020 16:40
„Ef maðurinn minn hefði hlaupið í hina áttina þá væri hann ekki hér með okkur“ Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri og fyrrum forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, segir það vera kraftaverk að ekkert manntjón hafi orðið þegar aurskriðan féll í gær. Bjarki Borgþórsson, lögreglumaður og eiginmaður Hildar, var staddur nærri staðnum sem skriðan féll ásamt öðrum viðbragðsaðilum og mátti litlu muna að verr færi. Innlent 19.12.2020 15:28
Rýming á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi og staðan endurmetin á morgun Rýming verður í gildi á Eskifirði að minnsta kosti til hádegis á morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verður staðan á Seyðisfirði endurmetin í fyrramálið Innlent 19.12.2020 15:00
Telja jarðlög enn óstöðug vegna skriðu sem féll í morgun Óheft umferð um Seyðisfjörð verður óheimil í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verða rýmingar á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi. Skriða sem féll í morgun gefur vísbendingar um óstöðugleika í jarðlögum. Innlent 19.12.2020 12:19
Óvíst hvenær íbúar geta snúið aftur til Seyðisfjarðar Ekki liggur fyrir hvenær íbúar Seyðisfjarðar geta snúið aftur til síns heima eftir að bærinn var rýmdur í gærkvöldi. Stórar aurskriður féllu á bæinn og skemmdu minnst tíu hús. Innlent 19.12.2020 11:45
„Verst af öllu er að þurfa að bíða en við verðum að vona það besta“ Páll Thamrong Snorrason segir aðgerðir á Seyðisfirði í gærkvöldi hafa gengið vel en fólk sé margt óttaslegið og kvíðið fyrir næstu skrefum. Innlent 19.12.2020 10:34
Sér fyrir endann á úrkomu en áfram skriðuhætta Skriðuhætta verður áfram á austanverðu landinu þó nú sjái fyrir endann á þeirri rigningu sem hefur verið á svæðinu. Neyðarstig almannavarna er í gildi á Seyðisfirði og hefur bærinn verið rýmdur vegna skriðuhættu eftir að stórar skriður féllu í bænum. Innlent 19.12.2020 07:18
Seyðfirðingar allir komnir með svefnpláss fyrir nóttina Seyðfirðingar eru allir komnir til Egilsstaða í fjöldahjálparstöð Rauða krossins sem opnuð var í grunnskólanum þar. Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hafa allir fengið rúmpláss fyrir nóttina og enginn mun þurfa að halda til í skólanum í nótt. Innlent 18.12.2020 21:44
Holræsin hafa ekki undan og slökkviliðið reynir að bjarga kjöllurum frá vatnsskemmdum Slökkviliðsmenn á Seyðisfirði hafa undanfarna daga átt fullt í fangi með að dæla vatni upp úr kjöllurum og að dæla vatn úr holræsum sem hafa ekki haft undan. Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri á Seyðisfirði segir að enn sé mikið eftir og að starf slökkviliðsins muni ekki hefjast af alvöru fyrr en íbúar hafa snúið aftur heim til sín. Innlent 18.12.2020 20:08
Um 30 ár síðan heilt bæjarfélag var síðast rýmt Neyðarástand er í gildi á Seyðisfirði vegna aurskriða sem þar hafa fallið síðustu sólarhringa. Stór skriða féll á byggðina um klukkan hálf fjögur á föstudag sem hreif með sér hús sem jafnaðist nánast við jörðu. Innlent 18.12.2020 19:06
Kom til landsins til að bjarga eigum sínum en húsið fór degi seinna Cordoula Fchrand, eigandi einbýlishússins Breiðabliks við Austurveg á Seyðisfirði, segist ekki bjartsýn á að eitthvað sé eftir af eignum hennar í húsinu. Stór aurskriða úr Nautaklauf tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra Innlent 18.12.2020 13:20
„Örugglega mjög erfitt fyrir marga bæjarbúa að upplifa þetta“ Þórhallur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að nú þegar fari að birta verði staðan metin á Seyðisfirði varðandi það hvort mögulegt sé að fara í hreinsunarstarf eftir aurskriðurnar tvær sem féllu á bæinn í nótt. Hann segir bæjarbúa taka einn dag í einu. Innlent 18.12.2020 11:54
Húsið sem skriðan hreif með sér væntanlega ónýtt Einbýlishúsið Breiðablik á Seyðisfirði er væntanlega ónýtt eftir að aurskriða tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra. Þetta segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. Innlent 18.12.2020 08:20
Aurskriða tók með sér hús á Seyðisfirði Tvær nýjar aurskriður féllu úr Nautaklauf á Seyðisfirði í nótt. Önnur skriðan tók með sér hús og flutti fimmtíu metra. Innlent 18.12.2020 06:42