
Verðlag

Glútenlaust gull á grillið
Nú er ég á leið út á land og þurfti því að birgja okkur upp af glútenlausu fæði þar sem það er víst af skornum skammti á landsbyggðinni, úrvalið takmarkað og hillurnar oft orðnar tómar á föstudögum.

Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur.

Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar
Hagfræðideild Landsbankans segir það hugsanlegt að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli í október eða nóvember. Það fari allt eftir því hvenær verðbólga og verðbólguvæntingar benda til frekari hjöðnunar.

Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup
Fanneyju Friðriksdóttur má með réttu kalla hagsýna húsmóður eftir að hafa helmingað kostnað við matarkaup á einum mánuði. Sjónvarpsþættirnir Viltu finna milljón voru innblástur til Fanneyjar sem notaðist við snjallverslun Krónunnar til að kaupa engan óþarfa.

Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát
Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum.

Telur jafnvel „ekki á vísan að róa um vaxtalækkun í október“
Aðalhagfræðingur Kviku telur að ný verðbólgumæling gefi ekki „verulegt tilefni“ til að endurskoða verðbólguhorfur næstu mánaða. Mælingin geri sömuleiðis lítið til að breyta mati á næstu skrefum Seðlabankans og nær útilokað sé að peningastefnunefnd sjái ástæðu til að lækka stýrivexti á ágústfundi sínum. „Jafnvel er ekki á vísan að róa um vaxtalækkun í október.“

Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir verulega sem allra fyrst. Seðlabankinn segir að ekki sé til skoðunar að flýta næstu vaxtaákvörðun.

Verðbólga nú 5,8 prósent
Verðbólga mælist nú 5,8 prósent miðað við vísitölu neysluverðs síðustu tólf mánuði. Hún var 6,2 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga var mest í febrúar 2023 þegar hún var 10,3 prósent. Frá þessu er greint í nýrri tilkynningu frá Hagstofunni.

Meðalheildarlaun 935 þúsund og hæst hjá ríkinu
Grunnlaun á vinnumarkaði hækkuðu um rúm ellefu prósent í síðustu kjarasamningslotu. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur grunntímakaups um 2,6 prósent.

Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi
Meðlimur í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi vekur athygli á að samlokur á stærð við rúnstykki á matsölustaðnum við Geysi kosti tæpar 2500 krónur. Eigandi staðarins segir samlokurnar matarmiklar og nýsmurðar með áleggi beint frá býli.

Ísland að detta úr tísku
Staðan í ferðamennskunni út árið er grafalvarleg að sögn sérfræðings í starfrænni markaðssetningu. Ísland er nánast að detta úr tísku hjá ferðamönnum um allan heim.

Vísar ásökunum um „vopnaðan frið“ um verðlag á bug
Verkefnastjóri hjá ASÍ segir samkeppni á raftækjamarkaði hafa verið slegið á frest og að vopnaður friður ríki mili ELKO og Heimilistækja, þar sem verðmunur sé oft lítill sem enginn. Framkvæmdastjóri ELKO vísar því á bug.

Lítil samkeppni milli raftækjarisa
Lítillar samkeppni gætir milli Elko og Heimilistækja-samstæðunnar, sem innifelur Tölvulistann, Rafland og Byggt og búið, samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Í samanburðinum voru 61% af verðum þau sömu, upp á krónu.

„Sláandi“ verðbólgu má líklega tengja við kjarasamninga
Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar.

Verðbólgan tekur smá kipp upp á við
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum.

Hægir á verðhækkunum matvöru
Verðbólga í matvöruverslunum fer minnkandi það sem af er ári. Til marks um það hækkaði verðlag matvöru um 1,2 prósent milli mánaða, samanborið við 12,3 prósent árshækkun matvöruverð í maí á síðasta ári.

Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi
Blikur eru á lofti þegar kemur að bókunum ferðamanna á hótelgistingu hér á landi í sumar. Færri bókanir voru í apríl heldur en verið hefur. Formaður Félags fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu segir Ísland dýrt og það sé farið að hafa áhrif.

Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur
Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar að jafnaði um tvö prósent frá og með fyrsta júní næstkomandi. Hækkanir frá síðustu áramótum verði dregnar til baka. Aðgerðin er liður í að liðka fyrir gerð kjarasamninga.

Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera óskiljanlega. Ákvörðunin gangi þvert á fyrri rökstuðning nefndarinnar og það sé mikið áhyggjuefni fyrir hagkerfið að þeir standi óbreyttir.

Aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum hafa takmörkuð áhrif á verðbólgu
Áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru takmörkuð á hagvöxt og verðbólgu, sagði aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi peningastefnunefndar í morgun. Seðlabankastjóri nefndi að hætta væri á að verðbólga verði treg til að fara niður í fjögur til fimm prósent.

Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi
Miklar verðbólguvæntingar og áframhaldandi spenna í hagkerfinu eru aðalástæður þess að Seðlabankinn lækkar ekki meginvexti sína. Seðlabankastjóri segir algerlega nauðsynlegt að ná verðbólgu niður til að uppfylla forsendur kjarasamninga.

„Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera vonbrigði en ekki koma á óvart. Hann telur að ef ekkert breytist þurfi fólk að rísa upp eins og var gert í búsáhaldabyltingunni.

Hægir enn á hagvexti og auknar líkur á að núverandi raunvaxtastig sé „hæfilegt“
Horfur eru á að hagvöxtur verði umtalsvert minni í ár en Seðlabankinn gerði áður ráð fyrir samhliða því að hægt hefur nokkuð á vexti innlendrar eftirspurnar. Peningastefnunefnd hefur ákveðið halda vöxtum bankans óbreyttum fimmta fundinn í röð, sem er í samræmi við spár allra greinenda og markaðsaðila, og telur núna meiri líkur en áður að aðhaldsstigið dugi til að ná verðbólgunni niður í markmið.

Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.

Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust
Stýrivextir verða ekki lækkaðir fyrr en undir lok árs og verðbólga mælist yfir markmiðum seðlabankans næstu tvö árin samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans. Hagfræðingur telur að uppkaup á húsnæði Grindvíkinga hafi talsverð áhrif á verðbólgu næstu mánuða.

Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026
Verðbólgan hefur náð hámarki en mun hjaðna hægt og ekki fara niður fyrir efri vikmörk Seðlabanka Íslands fyrr en árið 2026. Þá verða stýrivextir ekki lækkaðir fyrr en á síðasta ársfjórðungi þessa árs.

Léttir fyrir markaðinn en „erfiði kaflinn“ við að ná niður verðbólgu að hefjast
Það var léttir fyrir skuldabréfamarkaðinn að sjá mælda verðbólgu í apríl í lægri mörkum væntinga, segir fjárfestingastjóri, og verðbólguálag lækkaði um 0,15 til 0,2 prósentustig. Sérfræðingar telja að stýrivextir Seðlabankans verði ekki lækkaðir í maí en líkur hafi aukist á að þeir lækki í ágúst. Erfiði kaflinn í baráttunni við verðbólguna sé fram undan. „Við þurfum því að sjá meiri hjöðnun verðbólgu til að vextir geti lækkað eitthvað að ráði,“ að mati sjóðstjóra.

Árangur gegn verðbólgu
Ríkisstjórnin hefur einsett sér það markmið að vinna bug á verðbólgunni og skapa skilyrði til lækkunar vaxta. Fréttir morgunsins sýna að við séum á réttri leið: Verðbólga minnkaði úr 6,8% í 6% nú í apríl og hefur ekki verið minni í rúmlega tvö ár.

Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti
Formaður Starfsgreinasambandsins segir Seðlabankann ekki geta annað en lækkað vexti um að minnsta kosti hálft prósentustig nú þegar verðbólga mælist sex prósent. Verkalýðshreyfingin hafi farið að tilmælum bankans um hógværa kjarasamninga og nú væri komið að Seðlabankanum.

Minnsta verðbólga í rúm tvö ár
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55 prósent á milli mars og apríl. Verðbólga undanfarinna tólf mánaða mælist nú sex prósent og heldur áfram að hjaðna.