Tjáningarfrelsi

Fréttamynd

Ætlar ekki að sitja undir á­sökunum um barna­níð

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir hefur stefnt Eldi Smára Kristinssyni Ísidóri fyrir héraðsdóm vegna ummæla hans um Uglu. Hún segir málið prófstein á það hvað megi og megi ekki í opinberri umræðu, hún segist ítrekað hafa óttast um öryggi sitt vegna orðræðu sem farið hafi harðnandi upp á síðkastið.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meið­yrða­mál

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“

Innlent
Fréttamynd

Magga Frið­riks leitar til al­mennings eftir stuðningi

Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella.

Innlent
Fréttamynd

„Auð­vitað stendur valda­klíkan saman“

Margrét Friðriksdóttir, sem var í morgun sakfelld fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. „Auðvitað stendur valdaklíkan saman það er gömul saga og ný á Íslandi, en þessum óréttláta dómi verður að sjálfsögðu áfrýjað,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“

Margrét Friðriksdóttir hefur verið dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Þess var ekki krafist að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og þau standa því. Margrét kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“.

Innlent
Fréttamynd

Margrét átti loka­orðið í málinu og flutti Passíusálm

Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm.

Innlent
Fréttamynd

Al­ræmdur faðir stígur fram

Barnið mitt er í Vesturbæjarskóla. Við foreldrarnir lögðum fram þá ósk til skólastjórnenda að fá undanþágu fyrir barnið okkar frá kynfræðslu skólans sem er í samvinnu við Samtökin 78.

Skoðun
Fréttamynd

Söngvari Massive Attack hand­tekinn á mót­mælum

Söngvari Massive Attack, Robert Del Naja, var handtekinn fyrir að sýna stuðning við samtökin Palestine Action á mótmælum gegn banni gegn samtökunum í miðborg London á laugardag. Handtakan gæti haft áhrif á tónleikaferðalag hljómsveitarinnar. 

Lífið
Fréttamynd

Stríðandi við­horf Sjálf­stæðis­manna til tjáningar­frelsis

Um aldamótin höfðaði Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, meiðyrðamál á hendur Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni vegna ummæla í blaðagrein. Málsvörn Sigurðar byggði á því að ummælin væru varin af tjáningarfrelsinu, hornsteini íslenskrar stjórnskipunar. Sigurður var sýknaður í héraðsdómi og Hæstarétti en Kjartan skaut málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu sem vísaði kærunni frá.

Skoðun
Fréttamynd

Mál­frelsi, meið­yrði og mútugreiðslur

„Tekið er fram að tjáningarfrelsi hennar sé ekki heft heldur sé henni frjálst „að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast“. Hins vegar verði hún að ábyrgjast þau fyrir dómi.“ [1]Þessi einstaklega Orwellísku orð kjarna fullkomlega sýn alltof margra á vinstri væng stjórnmálanna á málfrelsi og skoðanafrelsi almennt. Ítrekað er því haldið fram að málfrelsi, og þar með skoðanafrelsi, sé ekki skert þegar orðræðu almennings eru settar skorður af hinu opinbera.

Skoðun
Fréttamynd

Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm

Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar.

Innlent
Fréttamynd

„Nú getum við sagt það fullum hálsi“

Blaðamaður sem sýknaður var í Landsrétti af stefnu vegna fréttaflutnings af andláti sextugs Pólverja í bruna árið 2023 segir ótrúlegt að hafa verið dreginn fyrir dóm fyrir að hafa greint frá staðreyndum málsins vegna brunans. Málið sýni fram á hverjir beri í raun ábyrgð vegna málsins, það sé ekki fyrirtæki eða stofnanir heldur einstaklingar af holdi og blóði.

Innlent
Fréttamynd

Mátti kalla fjárfesta „nú­tíma þrælahaldara“

Hjálmar Friðriksson blaðamaður á Samstöðinni hefur verið sýknaður í Landsrétti af stefnu þriggja fjárfesta og félags þeirra vegna ummæla í fréttum í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023. Fjárfestarnir og félagið þurfa að greiða honum 1,4 milljónir króna í málskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Hve­nær verður á­greiningur að hatursorðræðu?

Orð hafa alltaf haft þunga í íslensku samfélagi. Í Hávamálum er minnt á að allt deyi að lokum – fé, ættingjar og maðurinn sjálfur – en orðspor manns lifi áfram. Orð skipta máli. Þau móta hvernig við sjáum hvert annað og hvernig samfélagið þróast.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja gagna­grunn um hatursorðræðu og hatursglæpi á Ís­landi

Nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (ECRI) gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa ekki enn komið upp heildstæðum gagnagrunni um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi . Nefndin hvetur íslensk stjórnvöld til að dreifa fræðsluefni um bann við mismunun á fleiri tungumálum en íslensku.

Innlent
Fréttamynd

Pútín þjarmar að vin­sælasta samfélagsmiðli Rúss­lands

Rússnesk stjórnvöld hafa takmarkað aðgang að samfélagsmiðlinum Telegram og sektað hann um milljónir til þess að „vernda rússneska borgara“. Þau vilja fá Rússa til að nota ríkissnjallforrit sem gerir þeim auðveldara fyrir að fylgjast með borgurunum.

Erlent