Ástin á götunni
331 332 333 334 ›
Man.Utd má ekki tapa einum leik Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man.Utd, segir að lið sitt megi ekki tapa einum einsta leik á næsta tímabili, ætli liðið sér að eiga möguleika á enska meistaratitlinum. Sport 13.10.2005 19:31
Mourinho hrósar Eiði Smára José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hrósaði Eiði Smára Guðjohnsen í hástert eftir fyrsta æfingaleik félagsins á tímabilinu gegn Wycombe Wanderers, en honum lauk með 5-1 sigri Chelsea. Sport 13.10.2005 19:31
Sao Paulo S-Ameríkumeistari Sao Paulo, frá Brasilíu, sigraði í gær í Suður Ameríku keppni félagsliða eða Copa Libertadores keppninni í knattspyrnu. Þeir sigruðu Atletico Parananense, sem einnig eru frá Brasilíu, 4-0 í seinni leik liðanna en Sao Paulo vann einnig fyrri leik liðanna. Markvörður Sao Paulo, Rogerio Ceni, skoraði enn eina ferðina.... Sport 13.10.2005 19:31
Ungur markvörður Stoke til Man Utd Ben Foster, 22 ára gamall varamarkvörður Stoke City, er genginn til lið við Manchester United. Kaupverðið á markverðinum stóra og stæðilega er talið nema rúmri einni milljón punda. Forster er annar markvörðurinn til að ganga til við United í sumar, því í júní mánuði fékk liðið holleska markvörðinn Edwin van der Saar. Sport 13.10.2005 19:31
Frétti af áhuga Newcastle hér Almir Cosic er úrvals knattspyrnumaður að sögn Vilbergs Jónassonar, þjálfara Leiknis á Fáskrúðsfirði sem leikur í þriðju deildinni á Íslandsmótinu. Það vakti furðu margra þegar greint var frá því í fjölmiðlum fyrr í sumar að Leiknir væri með mann innanborðs sem stuttu áður hefði verið metinn á um 300 milljónir króna. Sport 13.10.2005 19:31
Tilboði Chelsea í S.W.P. hafnað Tilboði Chelsea, ensku meistaranna í knattspyrnu, í sóknar-miðjumann Manchester City, Shaun Wright-Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda hefur verið hafnað. Chelsea ætla þó ekki að gefast upp og búist er við því að þeir reyni aftur að klófesta kappann nú helgina. Sport 13.10.2005 19:31
Souness aðvarar Arsenal Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að forráðamenn Arsenal muni ekki hafa efni á að kaupa Jermaine Jenas af félaginu til að leysa af Patrick Vieira, sem í gær gekk í raðir Juventus á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:31
Toppliðin unnu í 1. deild Öll toppliðin þrjú unnu leiki sína í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld en þá fóru fram þrír leikir í 11. umferð. Topplið Breiðabliks vann nauman sigur á Haukum að Ásvöllum, 0-1 og það var dramatík á Fjölnisvelli þar sem annað efsta lið deildarinnar, Víkingur tryggði sér 1-2 sigur á Fjölni á lokamínútu leiksins. KA vann 0-1 útisigur á Völsungi. Sport 13.10.2005 19:31
Eyjamenn standa í ströngu gegn B36 Staðan er jöfn, 1-1, í leik ÍBV og B36 frá Færeyjum en nú stendur yfir fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða á Hásteinsvelli í Ejum. Leikurinn hófst kl. 18.00. Sport 13.10.2005 19:31
Keflavík yfir í hálfleik Keflvíkingar eru 0-1 yfir í hálfleik gegn Etzella frá Luxembourg í hálfleik en nú stendur yfir ytra fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Leikurinn hófst kl. 16.30. Hörður Sveinsson skoraði mark Keflavík strax á 10. mínútu leiksins. Eyjamenn leika gegn Færeyska liðinu B-36 klukkan 18.00. Sport 13.10.2005 19:31
Mourinho ætlar sér að fá Essien José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki búinn að gefast upp á því að reyna að fá Mikael Essien, landsliðsmann Ghana og miðjumann Lyon í Frakklandi, til Chelsea þrátt fyrir að síðasta boði í leikmanninn hafi verið neitað. Sport 13.10.2005 19:30
Pressa á Ferdinand Sir Alex Ferguson, framkvæmdarstjóri Manchester United, hefur sett meiri pressu á varnarmanninn Rio Ferdinand að skrifa undir nýjan samning við félagið. Pini Zahavi, umboðsmaður leikmannsins, hefur sagt að viðræður um nýjan samning gangi hægt. Sport 13.10.2005 19:30
Heiðar ekki með Fulham í gær Fulham lið Heiðars Helgusonar tapaði fyrir þýska liðinu Schalke 3-2. Heiðar lék ekki með Lundúnarliðinu. Þá vann WBA MK Dons 1-0. Sport 13.10.2005 19:30
Gerrard hvíldur í vetur Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verður hvíldur reglulega á komandi keppnistímabili til þess að hann verði ekki ofkeyrður fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi á næsta ári. Sport 13.10.2005 19:30
Sænska úrvalsdeildin Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad þegar liðið tapaði fyrir Gais 2-1 í sænsku bikarkeppninni í gær. Ásthildur Helgadóttir lék í 75.mínútu þegar lið hennar malmö bar sigurorð af AIK 2-0 í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Malmö og Umea eru efst í deildinni með 25 stig. Sport 13.10.2005 19:30
Young Boys Skagamaðurinn fyrrverandi Grétar Rafn Steinsson lék allann leikinn með Youngs Boys þegar liðið vann Neuchatel Xamax 3-1 í fyrsta leik svissnesku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Sport 13.10.2005 19:30
Formaður Newcastle vill árangur Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann ítrekar ósk sína um að liðið nái betri árangri í vetur en undanfarin ár og hefur með þessum orðum sett mikla pressu á Graeme Souness knattspyrnustjóra, sem margir spá því að verði fyrsti stjórinn til að taka pokann sinn í haust. Sport 13.10.2005 19:30
Vieira á förum til Juventus Arsenal hefur staðfest að félagið hefur tekið tilboði frá ítalska stórliðinu Juventus í fyrirliða sinn Patrick Vieira. Tilboðið hljóðar upp á 13,75 milljónir punda í þennan 29 ára miðjumann. Sport 13.10.2005 19:30
Kaupir Juventus Vieira í dag? Luciano Moggi, framkvæmdastjóri Juventus er staddur í London þessa stundina, þar sem hann segist vera að ganga frá kaupum á fyrirliða Arsenal, Patrick Vieira. Sport 13.10.2005 19:30
Evrópukeppni félagsliða í kvöld ÍBV og Keflavík verða í eldlínunni í dag í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Eyjamenn leika á heimavelli fyrri leik sinn gegn Færeyska liðinu B-36 og hefst leikurinn á Hásteinsvelli klukkan sex. Keflvíkingar leika gegn Etzella frá Luxembourg á útivelli og verður flautað til leiks klukkan 16.30. Sport 13.10.2005 19:30
Selfoss saxaði á Leikni Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. Topplið Leiknis gerði 1-1 jafntefli í nágrannaslagnum gegn ÍR og Selfoss vann Tindastól 3-0. Leiknir er efst með 22 stig eftir 10 leiki en Selfoss komst í 2. sætið með sigrinum og hafa 19 stig eftir 10 leiki. ÍR komst úr fallsæti með jafnteflisstiginu og eru í 7. sæti með 10 stig. Sport 13.10.2005 19:31
ÍBV náði ekki að sigra heima ÍBV og B36 frá Færeyjum gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leiknum var að ljúka á Hásteinsvellinum í Eyjum. Færeyska liðið skoraði strax á 7. mínútu en Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði á 25. mínútu. Sport 13.10.2005 19:31
Draumur að spila með aðalliðinu Bjarni Þór Viðarsson, knattspyrnumaðurinn ungi, lék sinn fyrsta leik með aðalliði enska liðsins Everton á miðvikudagskvöld þegar hann kom inn sem varamaður í æfingaleik gegn skoska liðinu Dundee United. Sport 13.10.2005 19:31
Fyrsta deild karla í kvöld Þrír leikir eru í fyrstu deild karla í fótbolta í kvöld og flautað verður til leiks klukkan 20. Fjölnir tekur á móti Víkingi Reykjavík. Haukar og Breiðablik eigast við og Völsungar mæta KA á Húsavík. Leiknir og ÍR leika í annarri deild og Selfoss og Tindastóll. Sport 13.10.2005 19:30
Beretta tekinn við Parma Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma. Sport 13.10.2005 19:30
Mathias Jonson til Djugardern Sænski sóknarmaðurinn Mathias Jonson sem leikið hefur með Norwich City er á leiðinni til Djurgarden en með liðinu leika íslendingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð en Jonson á eftir að semja um launaliði. Sport 13.10.2005 19:30
Forseti Juventus til London Samkvæmt Sky fréttastofunni er Luciano Moggi, forseti Juventus, mættur ásamt fylgdarliði sínu til London til að ræða við Arsenal um hugsanleg kaup á Patrick Vieira, franska miðvallarleikmanninum í liði Arsenal. Sport 13.10.2005 19:30
Zidane hvetur Viera til að fara Franska goðsögnin, Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid hvetur landa sinn Patrick Viera til að róa á önnur mið. Bæði Juventus og Real Madrid hafa sýnt Viera, sem er 29 ára gamall miðjumaður, mikinn áhuga. Sport 13.10.2005 19:30
Mourinho barmar sér Jose Mourinho segir að það sé ekki tekið út með sældinni að eltast við góða leikmenn ef maður er knattspyrnustjóri Chelsea, því lið séu fljót að rísa upp á afturlappirnar ef einhver af leikmönnum þess er orðaður við ensku meistarana. Sport 13.10.2005 19:30
Gerrard með þrennu Liverpool sigraði T.N.S. frá Wales 3-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerrard gerði öll þrjú mörk liðsins en leikurinn fór fram á Anfield í Liverpool. Þetta var fyrsta þrennan hans fyrir félagið. Liðin mætast að nýju að viku liðinni á heimavelli T.N.S. Sport 13.10.2005 19:30