
Forsetakosningar 2020

Guðmundur Franklín vill Bjarna á Bessastaði
Guðmundur Franklín Jónsson segist ekki liggja undir feldi þessa stundina og íhuga forsetaframboð. Hann segist ekki stefna á að gera slíkt aftur. Aðspurður segist hann ekki hafa talið að hann ætti séns í forsetakosningunum 2020.

Játar og gæti borið vitni gegn Trump
Lögmaðurinn Sydney Powell, sem tók virkan þátt í tilraunum Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020, hefur gengist við brotum sínum í Georgíu. Hún hefur gert samkomulag um að bera vitni gegn öðrum sakborningum, þeirra á meðal Trump, og var dæmd á sex ára skilorð.

Trump handtekinn í tugthúsinu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið formlega handtekinn í Fulton-sýslu í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar hefur hann og átján bandamenn hans verið ákærðir vegna tilrauna þeirra til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020.

Stuðningsmenn Trumps bíða við fangelsið í Fulton-sýslu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun gefa sig fram við lögreglu í Fulton-sýslu í Georgíu í kvöld. Mikill fjöldi stuðningsmanna forsetans hefur þegar komið sér fyrir við fangelsið þar sem Trump ætlar að gefa sig fram á tólfta tímanum í kvöld.

Starfsmaður Trumps dró framburð sinn til baka eftir að hann skipti um lögmann
Starfsmaður í Mar-a-Lago, heimili og sveitaklúbbi Donalds Trump í Flórída, dró vitnisburð sinn í einu af fjórum sakamálum gegn Trump til baka. Það gerði hann eftir að hann skipti um lögmann og hefur hann bendlað Trump og tvo aðstoðarmenn hans við að reyna að hindra framgang réttvísinnar.

Færast nær því að ákæra Biden fyrir embættisbrot
Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa færst nær því að hefja rannsókn á því hvort tilefni finnist til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir embættisbrot. Donald Trump, fyrrverandi forseti sem var tvisvar ákærður fyrir embættisbrot, vill ólmur að Biden verði einnig ákærður.

Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng
Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni.

„Það er ekki þannig sem hvítir menn slást“
Uppgötvun skilaboða sem sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson sendi framleiðanda hjá Fox News leiddi til röð atburða sem urðu til þess að forsvarsmenn Fox ákváðu að gera dómsátt við Dominion Voting Systems og láta Carlson fjúka.

Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu?
Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig.

Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara
Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020.

Árið 2020 í myndum
Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi.

Konur tíðari gestir í kjörklefanum
Rétt tæplega 67 prósent fólks á kjörskrá greiddi atkvæði í forsetakosningunum hér á landi í sumar. Rúmlega 252 þúsund manns voru á kjörskrá eða 69,2 prósent landsmanna. Af þeim greiddu 168.790 atkvæði eða 66,9 prósent að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.

Kostnaður vegna forsetakosninganna tæpar 416 milljónir
Það er um 75 milljónum meira en kostnaður vegna síðustu forsetakosninga þar á undan árið 2016.

Forsetaframboð Guðmundar Franklín kostaði hann og stuðningsmenn fimm milljónir króna
Kostningarnar kostuðu forsetann og hans stuðningssveit 1,5 milljón króna.

Guðmundur Franklín undirbýr sig fyrir hugsanlegt framboð í komandi alþingiskosningum
Telur ekki ólíklegt að Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn kynni framboð á nýju ári.

Stjórnarskrártillaga hefði stytt forsetatíð þriggja forseta
Kristján Eldján er eini fyrrverandi forseti Íslands sem sjálfviljugur sat í embætti í tólf ár eins og lagt er til að verði hámarks tími sem forseti geti gengt embættinu í frumvarpi til breytinga á stjórnarskránni.

Fjárheimild vegna forsetakosninga rúmar 432 milljónir
Endanlegur kostnaður vegna forsetakosninganna sem fram fóru síðastliðinn laugardag mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir einhverjar vikur.

Hvað með að skrifa bara grein?
Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn sbr 1. málsgrein í okkar stjórnarskrá síðan 1944. Við iðkum lýðræði og reynum flest öll að umvefja það og umbera.

„Kannski ættum við að horfa meira til óbeinna áhrifa forseta í aðdraganda kosninga“
Guðni Th. Jóhannesson var endurkjörinn forseti Íslands segir að kjósendur hafi valið að embættið sé sameiningartákn þjóðarinnar. Þó kjörsókn hafi verið minni en í síðustu forsetakosningum hafi hún verið góð.

„Þetta var svona Davíð og Golíat móment“
Guðmundur Franklín Jónsson segir að sér hafi fundist gullið tækifæri að bjóða sig fram til forseta til að vekja athygli á sínum málstað. Framboðið hafi kostað um tvær milljónir sem hann greiði að miklum hluta sjálfur.

Forsetinn og fleiri fara yfir kosningarnar í Víglínunni
Guðni Th. Jóhannesson, nýendurkjörinn forseti Íslands, verður gestur Elínar Margrétar Böðvarsdóttur í Víglínunni á Stöð 2 í dag.

Minni kosningaþátttaka en í síðustu tveimur forsetakosningum
Guðni Th. Jóhannesson var endurkjörinn forseti í gær með 92,2% atkvæða. Guðmundur Franklín Jónsson fékk 7,8% atkvæða. Kjörsókn var minni en í síðustu tvennum forsetakosningum.

Vildi vekja fólk til umhugsunar
„Þetta var löng nótt en í rauninni komu úrslitin ansi snemma í ljós,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, flissandi.

Guðni með yfirburðasigur
Guðni Th. Jóhannesson var endurkjörinn í embætti forseta í gær með yfirburðum.

Ökufantar töfðu talningu í Suðurkjördæmi
Ofsaakstur ökumanna í Suðurkjördæmi varð þess valdandi að lögreglumenn, sem farið höfðu að sækja kjörgögn á Höfn í Hornafirði og ætluðu að koma þeim til talningar á Selfossi, töfðust við önnur embættisstörf.

Lítur á niðurstöðurnar sem hvatningu til að halda áfram á sömu braut
Þótt lokatölur liggi ekki fyrir er nokkuð ljóst að Guðni Th. Jóhannesson hefur verið endurkjörinn í embætti forseta lýðveldisins Íslands.

„Tíu prósent er bara stórsigur fyrir mig“
Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi segist lítast mjög vel á tölurnar sem hafi verið birtar það sem af er kvöldi. „Tíu prósent er bara stórsigur fyrir mig.“

„Sannar að fólk hefur kunnað vel við það sem við höfum verið að gera á Bessastöðum“
Guðni Th. Jóhannesson forseti segir að fyrstu tölur fylla sér kraft, einbeitingu og vilja að halda áfram á sömu braut.

Viðbrögð Guðna við fyrstu tölum: Auðmýkt og þakklæti
Guðni Th. Jóhannesson forseti segist finna fyrir auðmýkt og þakklæti verði úrslitin á ann veg og fyrstu tölur frá Norðvestur- og Suðurkjördæmi benda til.

Fyrstu tölur benda til stórsigurs Guðna
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi og Norðvesturkjördæmi benda til þess að Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands, muni fara með nokkuð öruggan sigur af hólmi í forsetakosningunum sem nú standa yfir.