Fram

Fram

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Fram í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ó­sann­gjörn bar­átta um Gullskóinn

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu kláraðist í gær og er hörð barátta um Gullskóinn. Baráttan er þó ekki sanngjörn þar sem leikmenn í neðri hluta deildarinnar spila færri leiki en liðin í efri hlutanum og fá þá sumir leikmenn fleiri leiki til að skora mörk.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni

Rúnar Kristinsson gat ekki kvartað yfir því að hafa náð í stig í Víkinni í dag þegar hans menn í Fram gerðu 2-2 jafntefli í 22. umferð Bestu deildar karla. Fram komst yfir í seinni hálfleik en héldu ekki forskotinu en sátu á stiginu eftir að hafa lent manni undir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Fred fram­lengir við Fram til 2028

Fred Saraiva hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram í herbúðum félagsins til ársins 2028. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar reyndu Blikar að fá leikmanninn yfir í Kópavoginn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópa­vogi í gær

Fram vann 3-4 sigur í frábærum leik gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í 20. umferð Bestu deildar karla í gær. Framarar skoruðu öll fjögur mörk sín í fyrri hálfleik, Blikar bitu frá sér í seinni en gerðu ekki nóg til þess að jafna leikinn. Mörkin úr þessum bráðfjöruga leik má sjá neðar í fréttinni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Maður var aldrei al­veg ró­legur“

„Það er bara frábært að vinna og ná að halda fengnum hlut, ef svo má segja,“ sagði Rúnar Kristinsson eftir 3-4 sigur Fram gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld. Fram skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en þurfti að berja Blikana af sér í seinni hálfleik.

Íslenski boltinn