„Góð tilfinning að skora sigurmarkið á móti gamla þjálfaranum“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 29. ágúst 2026 16:55 Sara Svanhildur innsiglaði sigur Fram í dag. Guðmundur Þórlaugarson Fram nældi sér í mikilvæg þrjú stig með 3-2 sigri á Stjörnunni í sautjándu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Eftir að hafa lent 2-0 undir í fyrri hálfleik tókst liðinu að snúa taflinu við og tryggja sér sigur með tveimur mörkum á lokamínútunum.
Óskar Smári Haraldsson þjálfaði Fram á síðasta tímabili en tók við Stjörnunni fyrir þetta tímabil. „Það er ótrúlega góð tilfinning að skora sigurmarkið og sérstaklega á móti gamla þjálfaranum eftir að hafa lent 2-0 undir,“ sagði Sara Svanhildur Jóhannsdóttir sem tryggði Fram sigurinn með marki á 90. mínútu. Stjarnan byrjaði leikinn af krafti og var með yfirhöndina fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Fram hrökk þá í gang og minnkaði Alda Ólafsdóttir muninn á 23. mínútu fyrri hálfleiks. „Anton lét okkur heyra það í hálfleik og ég held að það hafi hjálpað. Við byrjuðum leikinn ekki nógu vel. Við ætluðum að ná í þessi sex stig sem voru eftir, nú erum við komin með þrjú og við ætlum að ná í hin þrjú líka.“ Höfðu þið fulla trú á því að þið gætuð sótt þrjú stig í þessum leik? „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við gerum þetta, komum til baka. Við gerðum þetta fyrr í sumar líka og við höfum alltaf trú á að við getum þetta.“
Fram Besta deild kvenna Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ „Ég tek því hlutverki sem mér er gefið“ Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut „Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Sá besti óvænt orðaður við brottför Brottrekstrarsök að tapa þessari stöðu Loksins vann Allen í framlengingu Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Formúla 1 snýr aftur til Afríku „Það rignir ekkert inn peningum“ Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Þurfum að vera einbeittar allan leikinn Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Sjá meira