Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Sérfræðingar Stúkunnar tókust á um umdeilt atvik sem átti sér stað í leik ÍA og FH upp á Skaga í Bestu deildinni á dögunum. Þjálfari ÍA, fyrrverandi sérfræðingur þáttarins, krafðist þess að atvikið yrði tekið fyrir. Íslenski boltinn 25.8.2026 12:17
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24.8.2026 09:02
„Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ ÍA gerði 1-1 jafntefli við FH á heimavelli. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ekki sáttur með fyrri hálfleik liðsins. Sport 23.8.2026 21:22
„Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn 16.8.2026 21:07
Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val Tryggvi Hrafn Haraldsson virðist ætla að klára tímabilið hjá Val. Hann hefur þó skrifað undir samning við ÍA en hann tekur ekki gildi fyrr en samningur hans við Val klárast. Íslenski boltinn 10. ágúst 2026 15:30
Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gat leyft sér að brosa í leikslok eftir 2-0 sigur liðsins gegn Þór í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 9. ágúst 2026 21:13
„Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ „Þetta var bara þvæla og ég trúi ekki að við séum að taka þátt í viðburði sem þessum árið 2026,“ sagði Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 2-0 tap liðsins gegn ÍA í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 20:49
Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA ÍA vann sterkan 2-0 sigur er liðið tók á móti Þór í 18. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Þetta var þriðji deildarleikur ÍA í röð án taps. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 19:59
Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Albert Brynjar Ingason segir heimskulegt athæfi Gísla Eyjólfssonar, leikmanns ÍA í leik gegn Víkingi Reykjavík á dögunum, hafa verðskuldað rautt spjald líkt og var raunin. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 15:31
Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ánægður með sitt lið eftir 2-2 jafntefli við Íslandsmeistara Víkings á Akranesi í Bestu deild karla í dag. Hann er svekktur að hafa ekki unnið leikinn og segir það alfarið skrifast á dómara leiksins. Íslenski boltinn 2. ágúst 2026 16:50
„Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Böðvar Böðvarsson, fyrirliði ÍA, segir vonbrigði að hafa ekki unnið Íslandsmeistara Víkings í 2-2 jafntefli liðanna í Bestu deild karla á Akranesi í dag. Böðvar vildi víti seint í leiknum en fékk ekki. Íslenski boltinn 2. ágúst 2026 16:36
Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Fjögur mörk voru skoruð og tvö rauð spjöld fóru á loft þegar ÍA tók á móti Íslandsmeisturum Víkings í 16. umferð Bestu deildar karla í dag. Lokatölur í hörkuleik á Akranesi, 2-2. Íslenski boltinn 2. ágúst 2026 16:27
Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim ÍA og Víkingur skildu jöfn 2-2 á Akranesi í 17. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Skagamenn komust tvisvar yfir og þá fóru tvö rauð spjöld á loft í fjörugum leik. Íslenski boltinn 2. ágúst 2026 15:55
Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Haukar og ÍA gerðu markalaust jafntefli að Ásvöllum í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 21:26
Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Eftir fimm töp í röð vann ÍA stórsigur á Stjörnunni, 5-1, á Akranesi í Bestu deild karla í gær. Skagamenn eru nú aðeins einu stigi frá efri hlutanum en Stjörnumenn einungis tveimur stigum frá fallsæti. Íslenski boltinn 27. júlí 2026 10:02
Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, átti erfitt með að finna orðin til að lýsa frammistöðu sinna manna eftir 5-1 tap gegn ÍA uppi á Skaga í kvöld. Íslenski boltinn 26. júlí 2026 22:10
Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. Íslenski boltinn 26. júlí 2026 21:13
Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 22:27
„Þetta lítur bara illa út“ Skagamenn eru á slæmum stað í Bestu deild karla í fótbolta, búnir að tapa fimm deildarleikjum í röð og hafa fengið á sig sautján mörk í þessum fimm leikjum. Stúkan ræddi stöðuna á Skagaliðinu sem er á leið í harða fallbaráttu en ekki í toppbaráttuna eins og margir bjuggust við. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 11:30
Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Keflvíkingar unnu stóran sigur á Skagamönnum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leiknum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 08:45
„Við erum að skila ágætum frammistöðum en þær gefa okkur ekki neitt“ Lárus Orri Sigurðsson var svekktur eftir 5-2 tap ÍA gegn Keflavík í Bestu deild karla. Hann taldi leikinn hafa verið í ágætu jafnvægi framan af en sagði tvö mörk á tveggja mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks hafa slegið Skagamenn út af laginu. Fótbolti 20. júlí 2026 22:20
Uppgjörið: Keflavík – ÍA 5-1 | Slátrun á Suðurnesjunum Keflavík vann sannfærandi 5–2 sigur á ÍA þegar liðin mættust í Bestu deild karla á HS Orku vellinum í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 18:32
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 10:32
Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, segir erfitt að kyngja tapi liðsins gegn KA í Bestu deildinni í kvöld, eftir að hafa verið 2-0 yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann segir sömu sögu endurtaka sig aftur og aftur og eitthvað þurfi að breytast. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 22:07