Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttamynd

Stjörnu­fólk stendur í ströngu á sunnu­daginn

Það stefnir allt í afar spennandi sunnudag fyrir stuðningsfólk Stjörnunnar. Karlalið félagsins tekur á móti ÍA í Bestu deild karla og stuttu seinna getur Stjarnan tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta.

Körfubolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld?

Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“

Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson hefur skipt um skoðun varðandi sigurkörfu Hilmars Smára Henningssonar í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Öfugt við það sem hann sagði í gær telur hann að dæma hefði átt skref á Hilmar Smára.

Körfubolti
Fréttamynd

Stór­sigur Stjörnunnar knúði fram odda­leik

Odda­leik þarf til að skera úr um hvort Stjarnan eða Grótta spili í Olís deild kvenna í hand­bolta á næsta tíma­bili. Tólf marka stór­sigur Stjörnunnar í dag, 36-24, í fjórða leik liðanna í úr­slita­ein­víginu sér til þess.

Handbolti
Fréttamynd

„Við erum bara svo miklir hundar“

Flautukarfa skildi liðin að þegar Stjarnan sigraði Tindastól með tveimur stigum í framlengdum leik. Tindastóll leiddi með nítján stigum í hálfleik en Stjarnan snéri leiknum sér í vil með ótrúlegum hætti. Viktor Jónas Lúðvíksson hefur komið sterkur inn í lið Stjörnunnar í kjölfar meiðsla lykilleikmanna og lét svo sannarlega til sín taka í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Stjörnukonur jöfnuðu metin

Það stefnir í svakalegt úrslitaeinvígi í umspilinu um sæti í Olísdeild kvenna í handbolta eftir að Stjörnukonur jöfnuðu í dag.

Handbolti