Erlent
Ísraelar krafðir útskýringa Erlent 21.9.2006 21:37 « ‹ 270 271 272 273 274 275 276 277 278 … 334 ›
23 létust í lestarslysi Nú er vitað að 23 týndu lífi í lestarslysi í Þýskalandi í gær. Lest, sem knúin er með segulafli, fór þá af sporinu þegar hún skall á viðgerðarvagni. Áætlað er að á fjórða tug farþega hafi verið um borð í lestinni en engan farþegalista er að finna þar sem um tilraunaferð var að ræða. Erlent 23.9.2006 18:18
Taugaveiki sögð hafa dregið bin Laden til dauða Franskt blað fullyrðir í dag að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Hann hafi dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. Ekki hefur verið hægt að staðfesta fréttir blaðsins. Erlent 23.9.2006 18:09
Einungis milljarðamæringar á Forbes listanum Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur nú byrt árlegan lista sinn í 400 ríkustu menn og konur Bandaríkjanna og að þessu sinni eru einvörðungu milljarðamæringar á listanum. Höfundur listans segir þetta í fyrsta sinn sem auður hvers og eins á listanum er að lágmarki einn milljarður bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 70 milljarða íslenskra króna. Erlent 23.9.2006 12:16
Fóstur skorið úr kvið látinnar konu Lögregla í Saint Louis í Bandaríkjunum leitar nú þriggja barna sem hafa verið týnd síðan á mánudaginn. Þau eru eins, tveggja og sjö ára. Móðir þeirra fannst myrt í gær og hafði fóstur verið skorið úr kvið hennar. Lögregla telur sig hafa fundið fóstrið en það hefur ekki verið staðfest. 26 ára kona, sem sást í fylgd barnanna skömmu áður en þau hurfu, er nú í haldi lögreglu. Erlent 23.9.2006 12:09
Mannskæð sprengjuárás við upphaf föstumánaðar Írakar í Bagdad flykktust í verslanir og á götumarkaði í borginni í morgun til að kaupa inn fyrir Ramadan föstumánuðinn. Súnníar byrjuðu að fasta í dag en sjíar byrja á morgun eða á mánudaginn. Þrátt fyrir að þessi heilagi tími sé að hefjast var mannskæð sprengjuárás gerð í Sadr-hverfi sjía í Bagdad í morgun. Erlent 23.9.2006 12:13
Bin Laden sagður hafa látist úr taugaveiki Yfirvöld í Pakistan segjast ekki hafa fengið fréttir af því að Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, hafi látist úr taugaveiki þar í landi. Franskt dagblað fullyrðir það í dag og vitnar þar til leyniskýrslu sem var lekið í blaðamann. Erlent 23.9.2006 12:06
23 létust í lestarslysi 23 týndu lífi og 10 slösuðust þegar hraðlest, sem knúin er áfram af segulafli, fór af sporinu í norð-vestur Þýskalandi í gær. Lestin skall á faratæki viðgerðarmanna á upphækkaðri tilraunabraut og fór útaf sporinu. Erlent 23.9.2006 10:08
Bin Laden sagður látinn Franska dagblaðið L´Est Republicain greinir frá því í morgun að Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé látinn. Þetta er haft upp úr leyniþjónustuskýrslu sem mun hafa verið lekið í blaðið. Fulltrúi franska varnarmálaráðuneytisins segist ekki geta staðfest að þetta komi fram í skýrslunni. Erlent 23.9.2006 10:03
Bandaríkin hótuðu árás Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hitti George W. Bush að máli í gær í Hvíta húsinu. Heimsóknin komst í hámæli vegna ummæla sem Musharraf lét falla í viðtali í þættinum 60 Minutes á CBS fyrir fundinn; að Bandaríkjamenn hefðu hótað að „sprengja Pakistan aftur á steinöld“ ef ríkið fylkti ekki liði í „stríðinu gegn hryðjuverkum“. Erlent 22.9.2006 21:44
Heimild til að túlka Genfarsáttmálann George W. Bush Bandaríkjaforseti náði í gær samkomulagi við hóp repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um frumvarp að lögum um sérstaka herdómstóla, sem eiga að fjalla um mál fanga bandaríska hersins við Guantanamo á Kúbu. Erlent 22.9.2006 21:44
Fjórir grunaðir um hryðjuverk Fjórir eru grunaðir um að hafa skipulagt sprengjuárásir á sendiráð Bandaríkjanna og Ísraels í Ósló. Danir segja meiri hættu stafa af litlum hryðjuverkahópum en þekktari samtökum á borð við Al Kaída. Erlent 22.9.2006 21:44
Vilhjálmur prins í herinn Vilhjálmur prins, eldri sonur Karls Bretaprins, mun gegna herþjónustu í Blues and Royals-riddaraliðssveitinni, eins og yngri bróðir hans, Harry. Vilhjálmur mun þó væntanlega ekki fylgja félögum sínum í hersveitinni til Afganistans, skyldi hún verða send þangað, þar sem hann er annar í erfðaröðinni að krúnunni og því viðbúið að reynt verði að halda honum utan fremstu víglínu. Harry hefur hins vegar svarið að fylgja sveitinni í hvert það verkefni sem henni kann að verða falið á meðan hann þjónar í henni. Erlent 22.9.2006 21:44
Leiðtogarnir deila um Ísrael Þúsundir stuðningsmanna Fatah-hreyfingarinnar, þeirra á meðal hundruð vopnaðra manna, gengu í mótmælagöngu gegn Hamas-samtökunum í Gaza-borg í gær. Andófið kemur í kjölfarið á bakslagi sem varð á stjórnarmyndunarþreifingum Hamas og Fatah, eftir að Mahmoud Abbas, æðsti yfirmaður Fatah og forseti Palestínu, lýsti því yfir á fundi allsherjarþings SÞ að væntanleg stjórn Palestínu myndi viðurkenna Ísrael sem ríki meðal ríkja. Erlent 22.9.2006 21:44
Mótmælendur færri og rólegri Þúsundir Ungverja söfnuðust saman til að mótmæla lygahneykslinu í Búdapest í gærkvöldi, fimmta kvöldið í röð. Hópurinn var heldur fámennari og rólegri en kvöldið áður. Talsmenn stærsta stjórnarandstöðuflokksins greindu frá því á fimmtudag að ákveðið hefði verið að fresta fjöldafundi um helgina, vegna sprengjuhótana. Erlent 22.9.2006 21:44
Segulhraðlest ók á lestarvagn Á þriðja tug fórust þegar tilraunahraðlest ók á um það bil 200 kílómetra hraða beint á kyrrstæðan viðgerðarvagn í Þýskalandi í gærmorgun, skammt frá landamærum Hollands. Erlent 22.9.2006 21:44
Allt gengur sinn vanagang í Tælandi Valdaránið í Taílandi virðist varla hafa haft nokkur áhrif á daglegt líf í landinu. Allar stofnanir eru opnar og skriðdrekarnir á götum Bangkok virðast fremur draga ferðamenn að en hrekja þá frá. Erlent 22.9.2006 21:21
Hörð átök vegna aftaka á Indónesíu Til harðra átaka kom á Austur-Indónesíu í morgun þegar hópur kristinna manna frelsaði mörg hundruð fanga úr fangelsum á svæðinu, lagði elda að bílum og rændi verslanir í eigu múslima. Erlent 22.9.2006 14:19
Kemur í fyrsta sinn fram opinberlega eftir átök Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-skæruliða, kom fram opinberlega í dag í fyrsta sinn síðan til átaka kom milli Ísraela og skæruliðahópsins í sumar. Nasrallah tekur þátt í miklum útifundi í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Erlent 22.9.2006 13:57
Býður sendiherra á sinn fund Páfi ætlar að gera tilraun til að ná sátt við múslima og hefur boðið sendiherra þeirra í heimsókn til sín til að ræða málin. Erlent 22.9.2006 13:05
Sátt næst um hryðjuverkafrumvarp Bush Náðst hefur samkomulag um umdeilt hryðjuverkafrumvarp Bush Bandaríkjaforseta. Frumvarpið lýtur meðal annars að því hversu langt bandaríska leyniþjónustan má ganga í yfirheyrslum á hryðjuverkamönnum. Erlent 22.9.2006 12:00
Öflug sprenging við bakarí í Suður-Þýskalandi Að minnsta kosti einn er látinn eftir gassprengingu á bak við bakarí í þorpinu Lehrberg í Suður-Þýskalandi í morgun. Svo öflug var sprengingin að bakaríð jafnaðist við jörðu og er óttast að allt að tólf manns kunni að vera grafnir undir rústunum. Erlent 22.9.2006 11:27
Olía hækkaði í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði annan daginn í röð á helstu fjármálamörkuðum í dag. Verð á Norðursjávarolíu fór niður í 60,31 bandaríkjadali á markaði í Lundúnum í Bretlandi á miðvikudag en verðið hefur ekki verið lægra síðan í byrjun mars. Sérfræðingar telja lækkanaferlinu lokið í bili. Viðskipti erlent 22.9.2006 10:26
Bill Gates ríkasti maður Bandaríkjanna Bill Gates, stofnandi og stjórnarformaður bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft, er ríkasti maður Bandaríkjanna, samkvæmt úttekt bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Þetta er fjarri því að vera nýlunda því þetta er í 13. árið í röð sem Gates vermir fyrsta sætið. Fast á hæla honum er Warren Buffett. Viðskipti erlent 22.9.2006 09:16
Benedikt páfi leitar sátta Bendedikt páfi sextándi hefur boðið sendiherra múslimaríkja á fund sinn á mánudaginn í Vatíkaninu. Auk þess hefur hann boðið trúarleiðtogum múslima á Ítalíu á fundinn. Með fundinum ætlar páfi að freista þess að ná sátt við múslima en þeir eru honum margir æfareiðir vegna ummæla hans um Múhameð spámann. Erlent 22.9.2006 09:15
Mótmælin fóru friðsamlega fram í nótt Um tíu þúsund manns söfnuðust saman fimmta kvöldið í röð við þinghúsið í Búdapest í Ungverjalandi. Erlent 22.9.2006 07:56
Ný aðildarríki ekki í Schengen Tafir verða á þátttöku nýrra aðildarríkja Evrópusambandsins í Schengen-vegabréfaeftirlitinu. Á fundi innanríkis- og dómsmálaráðherra ESB var tilkynnt um tafir á uppsetningu nýs gagnagrunns eftirlitsins. Erlent 21.9.2006 21:37
Skáldkona sýknuð Tyrkneskur rithöfundur þótti ekki hafa móðgað Tyrkland með því að láta armenska persónu í skáldsögu sinni tala um tyrknesku slátrarana. Úrskurðurinn vakti úlfúð mótmælenda. Erlent 21.9.2006 21:36
Sátt um hryðjuverkafrumvarp Bush Náðst hefur sátt um umdeilt hryðjuverkafrumvarp Bush Bandaríkjaforseta og nokkrurra flokksbræðra hans sem settu sig upp á móti frumvarpinu. Frumvarpið lýtur að því hversu langt CIA, bandaríska leyniþjónustan, má ganga í yfirheyrslum á hryðjuverkamönnum og hvernig rétta eigi yfir þeim. Bush fagnaði samkomulaginu og sagði það eitt helsta tækið sem stjórnvöld hefðu til að vernda landið. Erlent 22.9.2006 07:04
Herstjórnin herðir tökin Leiðtogar stjórnarbyltingarinnar í Taílandi hafa lagt strangar hömlur á alla stjórnmálastarfsemi í landinu. Þeir hafa tekið sér löggjafarvald, bannað starfsemi stjórnmálaflokka og fjórir af nánustu samstarfsmönnum Thaksins Shinawatras hafa verið hnepptir í varðhald. Erlent 21.9.2006 21:37