Íþróttir
224 225 226 227 228 229 230 231 232 … 334 ›
Forsetinn sagði af sér Fernando Martin sagði af sér sem forseti Real Madrid eftir stjórnarfund í gærkvöldi eftir að í ljós kom að hann naut ekki stuðnings stjórnarinnar. Martin tók við í lok febrúar þegar Florentino Perez sagði af sér og hefur aflað sér takmarkaðra vinsælda með störf sín síðan. Það verður hinn 83 ára gamli Luis Gomez-Montejano sem tekur við stöðunni í stað Martin fram í júní þegar kosið verður aftur. Sport 27.4.2006 04:45
Verður Scolari ráðinn í næstu viku? Fréttavefur BBC greindi frá því seint í gærkvöldi að útsendarar enska knattspyrnusambandsins væru staddir í Portúgal þar sem verið væri að ganga frá lausum endum svo hægt sé að ráða brasilíska þjálfarann Luiz Felipe Scolari í starf landsliðsþjálfara þegar Sven-Göran Eriksson lætur af störfum eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Sport 27.4.2006 04:27
Liverpool lagði West Ham Liverpool vann í kvöld góðan 2-1 útisigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að tefla ekki fram sínu sterkasta liði. Það var Djibril Cisse sem skoraði bæði mörk Liverpool í leiknum, en Reo Coker minnkaði muninn fyrir Lundúnaliðið. Þeir Hayden Mullins hjá West Ham og Luis Garcia hjá Liverpool fengu báðir að líta rauða spjaldið á 82. mínútu fyrir slagsmál. Sport 26.4.2006 20:43
Barcelona og Arsenal leika til úrslita Það verða Barcelona og Arsenal sem leika til úrslita í meistaradeild Evrópu í ár, en Barcelona tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn með því að gera markalaust jafntefli við AC Milan á heimavelli sínum Nou Camp í kvöld. Heimamenn fengu fleiri marktækifæri í leik kvöldsins en eru komnir áfram þrátt fyrir markalaust jafntefli eftir 1-0 sigur á útivelli í fyrri leiknum. Sport 26.4.2006 20:36
Annar leikur Dallas og Memphis í beinni Annar leikur Dallas Mavericks og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á miðnætti í kvöld. Dallas var í bílstjórasætinu í fyrsta leiknum og vann nokkuð sannfærandi sigur, en lið Memphis er enn að bíða eftir fyrsta sigri sínum í úrslitakeppni í stuttri sögu félagsins og hefur tapað öllum níu leikjum sínum hingað til. Sport 26.4.2006 20:07
Liverpool hefur forystu á Upton Park Liverpool hefur 1-0 forystu í hálfleik gegn West Ham í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse sem skoraði mark gestanna á 19. mínútu, en Liverpool stillir upp hálfgerðu varaliði í leiknum. Sport 26.4.2006 19:54
Jafnt á Nou Camp í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í síðari leik Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar og hefur hvorugu liðinu tekist að skora. Ítalska liðið þarf að skora mark til að knýja fram framlengingu en heimamönnum nægir jafntefli eftir sigur í fyrri leiknum. Sport 26.4.2006 19:48
Standið ykkur eða verðið sendir heim Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur gefið dómurunum sem verða á HM í sumar mjög ströng fyrirmæli áður en þeir halda í æfingabúðir fyrir mótið og segir menn sem ekki standa sig verða senda heim. Sport 26.4.2006 19:10
Deco í byrjunarliði Barcelona Leikur Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar er nú að hefjast og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Deco kemur aftur inn í byrjunarlið Barcelona eftir leikbann, en gamla brýnið Costacurta tekur stöðu Nesta í byrjunarliði AC Milan, en Nesta er meiddur. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn eru í byrjunarliðum. Sport 26.4.2006 18:37
Brasilía gæti lent í vandræðum Lothar Matthaus, sem var fyrirliði Þjóðverja þegar liðið varð heimsmeistari árið 1990, spáir að heimsmeistarar Brasilíu eigi eftir að lenda í vandræðum í Þýskalandi í sumar og tippar á að Argentínumenn og Englendingar fari langt í keppninni. Sport 26.4.2006 17:38
Benitez ætlar að hvíla lykilmenn Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir líklegt að hann muni hvíla einhverja af lykilmönnum sínum í kvöld þegar Liverpool sækir West Ham heim í ensku úrvaldeildinni, en liðin eigast einmitt við í úrslitaleik bikarkeppninnar. Liverpool er sex stigum á eftir Manchester United í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Sport 26.4.2006 16:13
Diaw líklegur framfarakóngur Hinn fjölhæfi franski leikmaður Boris Diaw hjá Phoenix Suns þykir líklegastur til að verða kjörinn framfarakóngur NBA deildarinnar í ár, en á hverju ári er einn leikmaður verðlaunaður sérstaklega fyrir að hafa náð mestum framförum frá árinu áður. Sport 26.4.2006 13:55
6,6 milljarðar fyrir tveggja ára samning? Þýska blaðið Bild segist hafa heimildir fyrir því að formúlulið Ferrari sé búið að bjóða fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher tæpa 6,6 milljarða íslenskra króna fyrir að framlengja samning sinn um tvö ár. Í samningi þessum á að vera klásúla sem heimilar honum að leggja stýrið á hilluna ef hann yrði meistari á samningstímanum, jafnvel þó það yrði strax á þessu tímabili. Sport 26.4.2006 15:40
Pires hugsar málið Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal segist enn vera að íhuga samningstilboð frá spænska liðinu Villarreal sem Arsenal sló einmitt út úr meistaradeildinni í gær. Pires viðurkennir að það verði sér erfitt að yfirgefa herbúðir Arsenal eftir mörg góð ár, en segist þó hafa fundið fyrir frábæru andrúmslofti á heimaleik liðsins. Sport 26.4.2006 15:11
Barcelona gæti orðið stórveldi Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að ef liðið nær að slá AC Milan út úr meistaradeildinni í kvöld, gæti sigurinn markað þáttaskil í sögu félagsins og orðið til þess að gera Barcelona að nýju stjórveldi í Evrópuboltanum - líkt og lið AC Milan á árunum í kring um 1990. Sport 26.4.2006 14:59
Lætur gagnrýnendur heyra það Arsene Wenger segir að lið sitt hafi endanlega þaggað niður í hörðum gagnrýnendum þess á undanförnum árum með vasklegri framgöngu sinni í meistaradeildinni í vetur og segist hafa fulla trú á því að sínir menn geti klárað dæmið í úrslitaleiknum. Sport 26.4.2006 14:30
Scolari gerði heiðursmannasamkomulag Gilberto Madail, formaður portúgalska knattspyrnusambandsins, segir að Luiz Scolari hafi gert heiðursmannasamkomulag við sambandið um að einbeita sér algjörlega að starfi sínu þangað til eftir HM í sumar og útilokar þar með að hann eigi í viðræðum við enska knattspyrnusambandið. Scolari er samningsbundinn Portúgal þangað til og segist ætla að virða samning sinn. Sport 26.4.2006 14:11
Kenyon Martin í bann Framherjinn Kenyon Martin hefur verið settur í bann af liði sínu Denver Nuggets í óákveðinn tíma fyrir hegðun sem þótti hafa slæm áhrif á andann í liðinu. Martin hefur átt við hnémeiðsli að stríða í allan vetur og hefur ekki geta beitt sér að fullu í úrslitakeppninni, en hann á að hafa látið þjálfara sinn George Karl heyra það í hálfleik í tapinu gegn LA Clippers í fyrrakvöld. Sport 26.4.2006 13:36
Verður Nash valinn aftur? Nokkur dagblöð í Bandaríkjunum greina frá því í dag að kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns verði kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar annað árið í röð á næstu vikum. Nash lék betur í vetur en í fyrra og fór fyrir liði Phoenix sem náði mjög góðum árangri þrátt fyrir að vera án Amare Stoudemire. Sport 26.4.2006 13:18
Úrvalshryssur á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands Á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands sem haldin verður í Ölfushöllinni á laugardagin næstkomandi verður úrval bestu ræktunarhrossa suðurlands. Úrvalshryssur frá Dísarstöðum mæta til leika (m.a. Dáð frá Dísarstöðum). Sport 26.4.2006 12:34
LeBron James kippt niður á jörðina LeBron James sýndi að hann á nokkuð eftir ólært í gær þegar lið hans Cleveland tapaði öðrum leiknum við Washington á heimavelli sínum 89-84. James skoraði 26 stig fyrir Cleveland, en tapaði 10 boltum og gerði mjög dýr klaufamistök á lokasprettinum sem kostuðu lið hans sigurinn. Lið Washington lék mikið betur en í fyrsta leiknum með Gilbert Arenas sem sinn besta mann, en hann skoraði 30 stig. Sport 26.4.2006 12:29
Myndir frá Hrafnsmessu Komnar eru myndir frá Hrafnsmessu sem haldin var í Ölfushöll á Ingólfshvoli í myndasafn Hestafrétta. Það var Örn Karlsson sem tók myndirnar og fékk Hestafréttir góðfúslegt leifi til að birta þær hér á vefnum. Sport 26.4.2006 07:12
Úrslit Líflandsmóts Líflandsmótið var haldið um síðastliðna helgi í Fák í Víðidal og var þátttaka mjög góð. Teitur Árnason á Prinsessu frá Stóra-Hofi vann fimmgang unglinga og einnig tölt unglinga á Stefni frá Breið. Sara Sigurbjörnsdóttir á Kára frá Búlandi vann fjórgang unglinga og það var síðan Ragnar Bragi Sveinsson á Fjalari frá Hvolsvelli sem vann fjórgang barna. Sport 26.4.2006 07:09
Upptökur frá Hrafnsmessu á Vef TV Hin magnaða Hrafnssýning sem haldin var í Ölfushöll 19. apríl síðastliðin er nú komin inn á Vef TV Hestafrétta. Alls eru þetta um 50 mínútur að lengd og skiptist í tvo hluta, fyrir hlé og eftir hlé. Við vonum að lesendur okkar hafi gaman af því myndefni sem komið er inn á Vef TV Hestafrétta. Sport 26.4.2006 07:05
Við vorum heppnir Arsene Wenger viðurkenndi að hans menn hefðu verið heppnir að sleppa með jafntefli gegn Villarreal í meistaradeildinni í kvöld, en var yfir sig ánægður með baráttuna í liði sínu - ekki síst í manni leiksins Jens Lehmann sem varði vítaspyrnu á síðustu mínútunni. Sport 25.4.2006 21:42
Sýningin heldur áfram í kvöld Úrslitakeppni NBA heldur áfram á fullu í kvöld og alls eru þrír leikir á dagskránni. Sjónvarpsleikurinn á NBA TV er annar leikur Cleveland Cavaliers og Washington Wizards og er hann á besta tíma klukkan 23:00. LeBron James var maður fyrsta leiksins og náði þrefaldri tvennu í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni á ferlinum. Sport 25.4.2006 21:35
Jimmy Jump í essinu sínu Knattspyrnufyrirbærið Jimmy Jump lét sig ekki vanta á leik Villarreal og Arsenal í kvöld og í síðari hálfleik náði hann að brjótast inn á völlinn og kastaði Barcelona-treyju yfir öxlina á Thierry Henry, leikmanni Arsenal. Henry hefur lengi verið orðaður við Barcelona-liðið og telja margir að hann muni ganga til liðs við Katalóníuliðið í sumar. Atvik sem þetta eru nokkuð algeng og illa virðist ganga að koma í veg fyrir að ævintýramenn á borð við hinn geðþekka Jimmy setji svip sinn á leikinn. Sport 25.4.2006 21:17
Sigur hjá Stjörnunni og Val Fyrri leikirnir í undanúrslitum deildarbikars kvenna fóru fram í kvöld. Stjarnan lagði ÍBV í Eyjum 24-20 og Valsstúlkur lögðu Hauka 23-22 í æsispennandi leik í Laugardalshöllinni. Sport 25.4.2006 21:11
Man.City lagði Aston Villa Manchester City lagði Aston Villa 1-0 á útivelli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Darius Vassell, fyrrum leikmaður Aston Villa, sem tryggði gestunum sigur með óeftirminnilegu marki á 70. mínútu leiksins og því er ljóst að Aston Villa þarf enn að krækja sér í eitt stig í viðbót á lokasprettinum til að forða sér frá falli. Sport 25.4.2006 20:56
Arsenal í úrslit - Lehmann hetja dagsins Arsenal er komið í úrslitaleikinn í meistaradeild Evrópu eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við spænska liðið Villarreal á útivelli í kvöld. Arsenal getur þakkað markverði sínum Jens Lehmann að hafa komist áfram, því hann varði vítaspyrnu frá Juan Riquelme á lokamínútu leiksins. Vítaspyrnudómurinn var mjög loðinn og því má segja að réttlætinu hafi verið fullnægt að þessu sinni. Sport 25.4.2006 20:38