Íþróttir
195 196 197 198 199 200 201 202 203 … 334 ›
Bera til baka fregnir af slagsmálum Svía Forráðamenn sænska landsliðsins neita þeim orðrómi að slagsmál hafi brotist út í búningsherbergi þeirra eftir jafnteflið gegn Trinidad & Tobago. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Freddy Ljungberg og Olaf Mellberg hafi lent í ryskingum inn í klefa sænska landsliðsins eftir leikinn, en forráðamenn sænska landsliðsins segja það algjöra vitleysu. Fótbolti 13.6.2006 03:23
KR lá í Eyjum Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍBV vann góðan 2-0 sigur á KR með mörkum frá Atla Jóhannssyni og Jonah Long, en Keflvíkingar töpuðu sínum þriðja leik í röð þegar þeir lágu 2-1 fyrir Fylki í Árbænum. Sævar Þór Gíslason skoraði bæði mörk Fylkis, en Guðmundur Steinarsson minnkaði munin í lokin fyrir Keflvíkinga. Sport 12.6.2006 22:28
Markalaust í Árbænum Nú er kominn hálfleikur í viðureign Fylkis og Keflavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hvorugu liðinu hefur tekist að skora enn sem komið er. Þá er hinn margfrestaði leikur ÍBV og KR einnig hafinn í Vestmannaeyjum. Sport 12.6.2006 20:07
Ítalir yfir gegn Gana Ítalir hafa yfir 1-0 gegn Gana í hálfleik í viðureign liðanna í e-riðli HM. Það var miðjumaðurinn Andrea Pirlo sem skoraði mark ítalska liðsins á 40. mínútu með glæsilegu langskoti utan teigs. Ítalska liðið hefur nokkuð óvænt boðið upp á skemmtilegan sóknarbolta, en Ganamenn eru þó enn til alls líklegir. Sport 12.6.2006 20:02
Ítalía - Gana að hefjast Seinni leikur dagsins í e-riðlinum á HM er nú að hefjast og þar er á ferðinni mjög athyglisverður leikur Ítalíu og Gana. Byrjunarliðin eru klár og ítalska liðið getur aftur teflt fram Rómverjanum Francesco Totti sem er stiginn upp úr erfiðum meiðslum. Sport 12.6.2006 18:32
Shaquille O´Neal sektaður Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur verið sektaður um 10.000 dollara fyrir að veita ekki viðtöl eftir tapleikinn gegn Dallas í nótt. Dallas vann leikinn örugglega og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu um NBA meistaratitilinn, en O´Neal átti sinn versta leik á ferlinum í úrslitakeppni í gær. Sport 12.6.2006 18:21
Theo Walcott meiddur Táningurinn Theo Walcott hefur ekki geta æft með enska landsliðinu undanfarna daga vegna meiðsla og því er að verða fátt um fína drætti í framlínu enska landsliðsins. Michael Owen lék aðeins rúmar 50 mínútur í fyrsta leiknum og Wayne Rooney er enn meiddur eins og flestir vita. Peter Crouch er því í raun eini brúklegi framherji enska liðsins sem stendur og ekki laust við að menn setji spurningarmerki við val Sven-Göran Eriksson á landsliðshópnum. Sport 12.6.2006 18:13
Einbeitingarleysi okkar kostaði tap Zico, hinn brasilíski þjálfari japanska landsliðsins, segir að hitinn á Fritz Walter-vellinum í dag og einbeitingarleysi leikmanna sinna, hafi kostað sína menn sigurinn. Sport 12.6.2006 18:00
Joe Cole skrifar undir nýjan samning Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole undirritaði í dag nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Cole er 24 ára gamall og var einn af fyrstu leikmönnunum sem Roman Abramovich keypti til liðsins í stjórnartíð Claudio Ranieri. Honum gekk illa að vinna sér sæti í liðinu framan af, en er nú orðinn einn af lykilmönnunum í liði Jose Mourinho. Sport 12.6.2006 17:54
Öruggur sigur Tékka Tékkar unnu öruggan 3-0 sigur á Bandaríkjamönnum í e-riðli HM í dag. Jan Koller skoraði fyrsta markið með glæsilegum skalla á 5. mínútu, en þurfti síðar að fara meiddur af velli. Tomas Rosicky, leikmaður Arsenal, skoraði annað markið með stórglæsilegu skoti á 36. mínútu og innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik með öðru marki sínu. Sport 12.6.2006 17:49
Frábær fyrri hálfleikur hjá Tékkum Tékkar hafa sannarlega verið í essinu sínu í fyrri hálfleik gegn Bandaríkjamönnum í leik liðanna í e-riðli. Risinn Jan Koller kom liðinu yfir eftir aðeins 5 mínútur og Tomas Rosicky bætti við öðru marki á 36. mínútu með stórkostlegu langskoti. Tékkar urðu svo fyrir áfalli skömmu fyrir leikhlé þegar Koller var borinn af velli meiddur á læri og svo gæti farið að hann væri því búinn að spila sinn fyrsta og síðasta leik fyrir Tékka í keppninni. Sport 12.6.2006 16:41
Getum vonandi strítt Englendingum Stern John verður einn í framlínu Trinidad og Tobago þegar liðið tekur á móti Englendingum í Nurnberg á fimmtudaginn. Trinidad er þegar orðið eitt af spútnikliðunum í keppninni eftir jafntefli við Svía. Sport 12.6.2006 16:33
Við unnum verðskuldað Guus Hiddink, þjálfari Ástrala, sagði sigur sinna manna á Japan í f-riðli hafa verið fyllilega verðskuldaðan í dag. "Það var eins gott fyrir dómarann að við höfðum sigur, því honum hefði ekki liðið vel ef við hefðum tapað, því hann hefði aldrei átt að leyfa marki Japana að standa. Lið mitt sýndi styrk sinn í dag og gefst aldrei upp, enda er það sá hlutur sem mér þykir vænst um við þetta lið," sagði Hiddink. Sport 12.6.2006 15:48
Leikur Tékka og Bandaríkjamanna að hefjast Nú styttist í að leikur Tékka og Bandaríkjamanna í e-riðli HM hefjist og búið er að tilkynna byrjunarliðin. Milan Baros, leikmaður Aston Villa, er ekki í byrjunarliði Tékka vegna meiðsla og því verður hinn stóri Jan Koller einn í framlínunni. Brian McBride hjá Fulham er í framlínunni hjá Bandaríkjamönnunum. Sport 12.6.2006 15:35
Pfister snýr aftur á bekkinn Hinn þýski Otto Pfister hefur nú hætt við að hætta að þjálfa landslið Tógó á HM og mun stýra liðinu gegn Suður-Kóreu á morgun. Pfister hætti um helgina eftir að launadeila kom upp milli leikmanna og knattspyrnusambandsins, en hefur nú snúið aftur eftir að hann fékk bréf frá forseta knattspyrnusambandsins sem bað hann að endurskoða ákvörðun sína. Sport 12.6.2006 15:16
Frábær sigur Ástrala Ástralir unnu dramatískan sigur á Japönum í opnunarleik f-riðilsins á HM í dag. Shunsuke Yakamura kom Japan yfir í fyrri hálfleik þegar fyrirgjöf hans skoppaði í net Ástrala, en varamaðurinn Tim Cahill var hetja liðsins og skoraði tvö mörk á fimm mínútum í lokin. John Aloisi bætti svo við þriðja markinu í uppbótartíma. Sport 12.6.2006 15:05
Roy Keane leggur skóna á hilluna Knattspyrnugoðsögnin Roy Keane hjá Glasgow Celtic hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Keane gerði garðinn frægan hjá Manchester United lengst af á ferlinum og vann alla titla þá titla sem knattspyrnumanni standa til boða með liðinu. Keane verður minnst sem eins af betri leikmönnum í sögu Manchester United og ensku úrvalsdeildarinnar. Sport 12.6.2006 13:24
Dallas valtaði yfir Miami Flestir bjuggust við að annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í úrslitarimmu NBA deildarinnar yrði æsispennandi, en annað átti sannarlega eftir að koma á daginn. Dallas-liðið var betra á öllum sviðum leiksins í nótt og vann auðveldan 99-85 sigur og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu. Sport 12.6.2006 05:41
Dallas - Miami í beinni á Sýn í kvöld Annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í lokaúrslitum NBA deildarinnar í körfubolta fer fram í Dallas í kvöld. Dallas vann fyrsta leikinn á fimmtudag og eftir leik kvöldsins færist einvígið til Flórída, þar sem næstu þrír leikir fara fram. Leikur kvöldsins verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst klukkan eitt eftir miðnætti. Sport 11.6.2006 21:20
FH tapaði fyrstu stigum sínum á Kópavogsvelli Íslandsmeistarar FH töpuðu sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn skipulögðum Blikum í Kópavogi. Daði Lárusson kom heimamönnum yfir með sjálfsmarki um miðbik leiksins, en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir gestina á 70. mínútu. Skömmu síðar var Guðmundi Sævarssyni vikið af leikvelli og meistararnir töpuðu þar með sínum fyrstu stigum á leiktíðinni. Sport 11.6.2006 21:04
Portúgalar lögðu Angóla Portúgalar lögðu Angóla 1-0 í lokaleik dagsins í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði markið strax í upphafi, en hafi einhver haldið að framhaldið byði upp á markasúpu, átti annað eftir að koma á daginn. Portúgalar og Mexíkóar eru því komnir með 3 stig á toppi riðilsins, en Mexíkó lagði Íran 3-1 fyrr í dag. Sport 11.6.2006 20:51
Blikar yfir gegn FH Nú er kominn hálfleikur í viðureign Breiðabliks og FH í Landsbankadeildinni og hafa heimamenn nokkuð óvænt 1-0 forystu. Það var enginn annar en Daði Lárusson, markvörður FH, sem skoraði markið sem skilur liðin að, þegar hann sló knöttinn í eigið net eftir hornspyrnu Blika. Íslandsmeistararnir hafa verið meira með knöttinn í hálfleiknum, en Blikar leika skipulagðan varnarleik. Sport 11.6.2006 20:04
Portúgal yfir í hálfleik Portúgalar hafa yfir 1-0 gegn Angóla þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði mark portúgalska liðsins strax á 4. mínútu, en Portúgalarnir hafa verið mun sterkari í hálfleiknum. Sport 11.6.2006 19:48
Powell jafnaði heimsmetstímann Spretthlauparinn Asafa Powell jafnaði heimsmet sitt og Justin Gatlin í 100 metra hlaupi í Gateshead á Englandi í dag þegar hann hljóp vegalengdina á 9,77 sekúndum. Þetta er í annað sinn á rúmu ári sem Powell nær þessum tíma og er einvígi þeirra tveggja þann 28. júlí nk því beðið með gríðarlegri eftirvæntingu. Sport 11.6.2006 19:22
Portúgalskt mark eftir aðeins fjórar mínútur Það stefnir í langt og erfitt kvöld fyrir Angólamenn því Portúgalar eru komnir í 1-0 eftir aðeins fjórar mínútur í leik þjóðanna í D-riðli HM í knattspyrnu. Markið skoraði Pauleta eftir frábæran undirbúning Luis Figo en Pauleta var líka kominn einn í gegn eftir aðeins 15 sekúndur. Portúgalir eru líklegir til þess að skora mörg mörk í þessum leik haldi þeir áfram af sama krafti það sem eftir er leiksins. Sport 11.6.2006 19:03
Heldur sigurganga Íslandsmeistara FH áfram? Íslandsmeistarar FH mæta nýliðum Breiðabliks á Kópavogsvelli klukkan 19.15 í sjöttu umferð Landsbankadeild karla og geta með sigri náð átta stiga forustu á toppi deildarinnar. Með sigri mun FH-liðið, fyrst allra liða í sögu tíu liða efstu deildar karla, ná annað árið í röð 18 stigum af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðum Íslandsmósins. Blikar reyna hinsvegar að enda þriggja leikja taphrinu sína. Sport 11.6.2006 18:35
Nauðsynlegt að vinna fyrsta leikinn Portúgalar taka á móti Angóla í lokaleik dagsins á HM í Þýskalandi. Þetta er seinni leikur dagsins í D-riðli en Mexíkó vann Íran 3-1 fyrr í dag í sama riðli. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu á Sýn. Þjálfari Portúgala Luis Felipe Scolari segir nauðsynlegt að liðið vinni fyrsta leikinn. Sport 11.6.2006 18:26
Mexíkóbúar unnu Írani með tveimur mörkum Mexíkó vann Íran 3-1 í fyrsta leik D-riðils á HM í Þýskalandi en Mexíkóbúar tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu 15 mínútum leiksins. Omar Bravo skoraði tvö marka Mexíkó í leiknum og var valinn maður leiksins en varamaðurinn Antonio Zinha átti þó mikinn þátt í sigrinum því hann kom inn á í hálfleik, lagði upp seinna mark Bravo og skoraði síðan þriðja markið sem innsiglaði sigurinn. Sport 11.6.2006 17:52
Vorum búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur "Þetta var frábær leikur hjá okkur. Við vorum greinilega búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur. Það var mjög gott fyrir okkur að fá mjög erfiða leiki á móti Dönunum því við gátum unnið mjög mikið úr mistökunum sem við vorum að gera þar," sagði þjálfarinn Alfreð Gíslason í viðtali við Geir Magnússon í útsendingu RÚV strax eftir 32-28 sigur íslenska handboltalandsliðsins á Svíum í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Sport 11.6.2006 17:46
Íslendingar lögðu Svía í fyrri leik þjóðanna fyrir HM Íslenska landsliðið í handknattleik vann fjögurra marka sigur á Svíum, 32:28, í fyrri leik þjóðanna í undankeppni HM í dag. Leikið var í Globen í Stokkhólmi. Þetta er fyrsti sigur Íslands á Svíum í handbolta í 48 ár. Innlent 11.6.2006 17:26