Viðskipti

Fréttamynd

Ekki lengur Bolli í 17

Bolli Kristinsson, gjarnan nefndur Bolli í Sautján, hefur selt hlut sinn í verslunarkeðjunni NTC sem meðal annars rekur verslanirnar Sautján. Kaupandi er Svava Johansen kaupmaður sem hefur um árabil átt fyrirtækið með Bolla.

Lífið
Fréttamynd

Íslensk skuldabréf erlendis

Ört vaxandi útgáfa erlendra banka á erlendum skuldabréfum í íslenskum krónum er að verða tikkandi tímasprengja í íslensku hagkerfi, að mati sérfræðinga í verðbréfaviðskiptum. Kaupþing banki hefur nú blandað sér í leikinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Apple fjórfaldast

Hagnaður Apple fjórfaldaðist á síðasta ársfjórðungi í samanburði við sama tímabil í fyrra en hagnaður fyrirtækisins nam 26 milljörðum íslenskra króna. Ástæða góðs gengis er án efa góð sala á iPodinum svokallaða en fyrirtækið seldi 6,5 milljónir tækja af þessu tagi á tímabilinu. Tekjur Apple voru samt sem áður minni en sérfræðingar á Wall Street höfðu búist við og gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 10% eftir að hagnaðartölur birtust. >

Erlent
Fréttamynd

Svafa aðstoðarforstjóri Actavis

Svafa Grönfeldt hefur tekið við nýju starfi sem aðstoðarforstjóri Actavis Group eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Svafa hóf störf hjá Actavis árið 2004 sem framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs en hún mun í nýju starfi samtvinna stefnu og innra skipulag samstæðunnar ásamt því að stýra verkefnum sem lúta að aukinni skilvirkni í rekstri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sterkur ríkissjóður í þöndu kerfi

"Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2006 er lagt fram með 14,2 milljarða króna tekjuafgangi og felur því í sér áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum og sífellt sterkari stöðu ríkissjóðs. Stefnan í ríkisfjármálum hefu stuðlað að stöðugleika samhliða öflugum hagvexti..."

Innlent
Fréttamynd

Vaxtahækkunin ekki góð tíðindi

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans ekki góð tíðindi. Hann telur vafasamt að hún verði til að slá á þá eftirspurn sem drífi áfram verðbólguna og varar fjölskyldur við of mikilli skuldsetningu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Actavis kaupir ungverskt félag

Actavis undirritaði í dag samning um kaup á ungverska lyfjafyrirtækinu Kéri Pharma. Félagið var stofnað árið 1991 og sérhæfir sig í þróun, sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Mið- og Austur-Evrópu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útflutningsgreinar í uppnámi

Samspil hækkandi stýrivaxta Seðlabankans og gengisþróunar veldur þeim áhyggjum sem byggja afkomu sína á erlendri mynt. Seðlabankinn hækkar á þriðjudaginn stýrvexti í 10,25 prósent til að slá á verðbólgu og gengi krónunnar er þegar farið að styrkjast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vodafone býður nú Mobile Connect

Og Vodafone hefur hafið sölu á Vodafone Mobile Connect, gagnaflutningskorti, fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Gagnaflutningskortið býr yfir SIM korti sem gerir fartölvunotendum mögulegt að tengjast Netinu þráðlaust, óháð stað og stund. Með þessum hætti getur fólk ávallt haft aðgang að þeim gögnum og hugbúnaði sem á þarf að halda.

Innlent
Fréttamynd

Selja skrifstofur sínar í Evrópu

Íslandsferðir, dótturfélag FL Group, hafa selt allar söluskrifstofur sínar á meginlandi Evrópu til svissneska fyrirtækisins IS-Travel. Íslandsferðir skýra söluna með því að verið sé að gera stefnumarkandi breytingu á starfsemi félagsins sem felst í því að fyrirtækið mun hverfa af almennum neytendamarkaði í tilteknum löndum

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skoðar ekki hæfi Halldórs

Umboðsmaður Alþingis segist ekki ætla að skoða að eigin frumkvæði hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra vegna sölu ríkisins á Búnaðarbankanum. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi höfðu sent umboðsmanni erindi þar sem hann var hvattur til að kanna hæfi Halldórs í tengslum við sölu bankans.

Innlent
Fréttamynd

2 milljarða afgangur á ríkissjóði

Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi á síðasta ári samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2004 samanborið við 6,1 milljarðs króna halla árið áður. Þegar afkoman er skoðuð án tilfallandi liða eins og eignasölu, lífeyrisskuldbindinga og afskrifta skattkrafna er afgangur um 23 milljarðar á meðan halli ársins á undan nam rúmum einum milljarði króna á sama grunni.

Innlent
Fréttamynd

Lakari afkoma en stefnt var að

Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var nær fimm milljörðum króna lakari en stefnt var að. Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi en í fjárlögum var gert ráð fyrir tæplega sjö milljarða króna afgangi. Niðurstaðan er þó hagstæðari en árið 2003 þegar rúmra sex milljarða króna halli var á rekstri ríkissjóðs.

Innlent
Fréttamynd

Ofnæmislyf á markað í Rússlandi

Actavis hefur sett ofnæmislyfið Cetrizine á markað í Rússlandi. Unnið er að skráningu lyfsins á öðrum mörkuðum fyrirtækisins, svo sem í Úkraínu, Moldavíu og í Hvíta-Rússlandi, og er búist við að það verði markaðssett þar í byrjun næsta árs. Jafnframt verður blóðþrýstingslyfið Fosinopril sett á markað í Rússlandi í lok október.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eyrir gerir stórkaup í Marel

Eyrir fjárfestingarfélag keypti í gær yfir tólf prósent hlutafjár í hátæknifyrirtækinu Marel fyrir tæpar 2.200 milljónir króna. Bréfin voru að megninu til keypt af Sjóvá-Almennum, sem áttu um tíu prósent í fyrirtækinu, en talið er líklegt að Landsbankinn hafi einnig selt bréf í sinni eigu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hyggst segja upp 10 þúsund manns

Raftækjarisinn Sony hyggst segja upp tíu þúsund manns á næstu þremur árum. Aðgerðirnar eru liður í endurskipulagningu fyrirtækisins sem hefur farið halloka á raftækjamarkaði undanfarin árin, en bréf í fyrirtækinu hafa lækkað um tvo þriðju á síðustu fimm árum og búist er við að tap fyrirtækisins ár árinu muni nema 5,4 milljörðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Avion kaupir fjórar nýjar þotur

Avion Group sem er alfarið í eigu Íslendinga hefur fest kaup á fjórum nýjum Boeing 777 þotum fyrir rúmlega sextíu milljarða króna. Félagið er annað tveggja flugfélaga í heiminum til að veðja á nýju vélarnar sem verða teknar í notkun árið 2009.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Methagnaður hjá sparisjóðum

Methagnaður varð á rekstri sparisjóðanna og Sparisjóðabankans á fyrri hluta ársins 2005, en alls nemur hagnaðurinn 4.582 milljónum króna eftir skatta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða. Hagnaðurinn á fyrstu sex mánuðum ársins er aðeins sex prósentum minni en hann var allt árið 2004 en þá var hann ríflega 4,8 milljarðar króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Krónan muni ekki brotlenda

Greiningardeild Landsbankans spáir áframhaldandi hagvexti og segir að gengi krónunnar lækki mjúklega án brotlendingar. Spá bankans, sem var kynnt á morgunverðarfundi í morgun, er mun bjartsýnni en spá Íslandsbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB gagnrýnir félagsmálaráðherra

Heimildir Íbúðalánasjóðs til að lána fjármálastofnunum fé, sem mikið voru ræddar í sumar, hafa nú verið rýmkaðar með nýjum viðauka við reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu. Í hálffimm fréttum KB banka er þessi ákvörðun félagsmálaráðherra gagnrýnd, þar sem áhættu sjóðsins sé þannig stýrt með sértækum reglugerðum félagsmálaráðuneytisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Keyptu vatnsveitu Grundarfjarðar

Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur gengu í morgun frá kaupum á vatnsveitu Grundarfjarðar og skuldbundu sig á sama tíma til að leggja hitaveitu í bænum. Áætlað er að kostnaður Orkuveitunnar vegna samningsins verði 450 milljónir króna sem fara í að byggja upp hitaveituna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vísitalan hefur hækkað um 4,5%

Vísitala byggingaverðs hækkaði um 0,4 prósent í síðasta mánuði og hefur því hækkað um 4,5 prósent á einu ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 36 prósent en það lækkaði um 0,6 prósent í síðasta mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dregur úr verðbólgunni

Greiningardeild KB banka spáir því að nokkuð dragi úr verðbólgu í næsta mánuði. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að þá verði hún hálft prósent. Það er minni verðbólga en í sama mánuði í fyrra og gangi spáin eftir þýðir það að verðbólga á ársgrundvelli verði 4,5 prósent en hún er nú 4,8 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aukning um 2 milljónir fata á dag

OPEC, Samtök olíuútflutningsríkja, ákváðu á fundi sínum í dag að auka framboð á olíu um tvær milljónir fata á dag næstu þrjá mánuðina. Ætlunin er að auka framboð með því að selja hluta af varaforða aðildarríkjanna en ekki með því að auka framleiðslu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Viðskiptaráð Austurlands stofnað

Viðskiptaráð Austurlands var stofnað á Austurlandi í dag. Á meðal markmiða ráðsins er að vera málsvari aukins frelsis í viðskiptum og minni ríkisafskiptum og efla tengslanet fyrirtækja sem starfa á Austurlandi við önnur íslensk og erlend fyrirtæki.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stóru olíufélögin lækka

Olíufélögin Esso, Olís og Skeljungur hafa öll ákveðið að lækka verð til viðskiptavina sinna í dag í kjölfar lækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu. Verðið lækkar um tvær og hálfa krónu á hvern lítra af bensíni og um tvær krónur á dísilolíulítrann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verðbólgan lægst á Íslandi

Verðbólga er hvergi minni í Evrópu en á Íslandi. Verðbólgan hér mældist 0,4 prósent í ágúst samkvæmt samræmdri vísitölu neyðsluverðs í EES-ríkjunum. Mest er verðbólgan í Lettlandi en verðbólgan er að meðaltali 2,2 prósent í Evrópu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kaupa finnskt matvælafyrirtæki

Íslenska matvælafyrirtækið Fram Foods hefur keypt finnska matvælafyrirtækið Boyfood sem sérhæfir sig í fullvinnslu og sölu á síld. Það er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Finnlandi en Finnar neyta mikillar síldar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dregur úr hækkunum á íbúðaverði

Dregið hefur úr verðhækkunum á íbúðamarkaði að undanförnu og spáir Greiningardeild Íslandsbanka því nú að íbúðaverð staðni á næsta ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um rúmlega hálft prósent í síðasta mánuði og er það í fyrsta skipti í eitt ár sem íbúðaverð lækkar milli mánaða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Brynjólfur áfram hjá Símanum

Stjórn Símans hefur gengið frá áframhaldandi ráðningu Brynjólfs Bjarnasonar sem forstjóra fyrirtækisins. Brynjólfur hefur gegnt starfinu frá árinu 2002 en var áður forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Granda.

Viðskipti innlent