
Danski handboltinn

Aron og félagar styrktu stöðu sína á toppnum
Aron Pálmarsson og félagar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Álaborg styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar er liðið vann þriggja marka útisigur gegn SönderjyskE í dag, 33-36.

Hefði viljað sjá Lovísu þrauka lengur í Danmörku
Einar Jónsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, mun ekki hoppa hæð sína í loft upp ef Lovísa Thompson fer aftur í Val. Honum fannst hún gefast full fljótt upp á atvinnumennskunni.

Ágúst Elí bjargaði stigi fyrir Íslendingalið Ribe-Esbjerg
Íslendingalið Ribe-Esbjerg, með þá Elvar Ásgeirsson, Ágúst Elí Björgvinsson og Arnar Birkir Hálfdánarson innanborðs, gerði 31-31 jafntefli er liðið tók á móti Bjerringbro/Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Lovísa segir farvel við Ringkøbing
Lovísa Thompson hefur verið leyst undan samningi við danska úrvalsdeildarliðið Ringkøbing að eigin ósk.

Daníel og félagar sóttu sín fyrstu stig
Hnadboltamarkvörðurinn Daníel Freyr Andrésson og félagar hans í danska liðinu Lemvig sóttu sín fyrstu stig á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta er liðið vann þriggja marka útisigur gegn Nordsjælland í kvöld, 22-25.

Einar Þorsteinn skoraði eitt í naumum sigri Fredericia
Handboltamaðurinn Einar Þorsteinn Ólafsson og félagar hans í Fredericia unnu nauman tveggja marka sigur er liðið tók á móti SønderjyskE í dönsku úrvasldeildinni í handbolta í dag, 34-32.

Ulrik Wilbek að missa heyrnina
Ulrik Wilbek, fyrrverandi landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta og borgarstjóri í Viborg, þjáist af heyrnarkvilla.

Aron öflugur þegar Álaborg tyllti sér á toppinn
Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir Álaborg þegar liðið heimsótti GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Sveinn hafði betur í Íslendingaslag
Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Skjern unnu góðan tveggja marka sigur, 30-28, er liðið tók á móti Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Aron skoraði fjögur í jafntefli gegn Bjerringbro-Silkeborg
Aron Pálmarsson, leikmaður Álaborg, skoraði fjögur mörk í 29-29 jafntefli við Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Íslendingarnir mikilvægir í góðum sigri Ribe-Esbjerg
Íslendingalið Ribe-Esbjerg vann sex marka sigur á Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, lokatölur 31-25.

Aron og félagar enn með fullt hús stiga | Jafntefli hjá Ísendingaliði Ribe-Esbjerg
Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg eru enn með fullt hús stiga í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir sex marka útisigur gegn Skjern í dag, 28-34.

„Gefur þeim ákveðið forskot á leikmenn á sama aldri í öðrum löndum“
„Ég held að fyrsta tímabilið hafi verið þegar ég var nýorðinn sextán ára,“ sagði Arnór Atlason aðspurður hvenær hann hefði byrjað að spila með meistaraflokki í handbolta. Arnór, sem er í dag aðstoðarþjálfari danska stórliðsins Álaborgar sem og danska U-20 ára landsliðið ræddi við þá Stefán Árna Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar.

Arnór segir frá Hansen-æði í Danmörku: „Allt farið á fleygiferð“
Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari hjá Álaborg í Danmörku, segir félagið hafa umturnast eftir komu danska landsliðsmannsins Mikkels Hansen í sumar. Önnur félög hafi tekið upp á því að færa leiki gegn Álaborg í stærri hallir til að sinna eftirspurn um miða.

Íslendingalið Ribe-Esbjerg ekki í vandræðum með Nordsjælland
Íslendingalið Ribe-Esbjerg vann öruggan tólf marka sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 35-23.

Íslendingaliðin skildu jöfn
Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad
Íslendingalið Kolstad komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld.

Misjafnt gengi Íslendingaliðana í upphafi dönsku deildarinnar
Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag og voru Íslendingar í eldlínunni í þremur þeirra. Íslendingalið Ribe-Esbjerg og Fredericia unnu sigra í sínum leikjum, en leikmenn Lemvig þurftu að sætta sig við tap.

Aron markahæstur er Álaborg tryggði sér danska Ofurbikarinn
Aron Pálmarsson var markahæsti maður Álaborgar er liðið tryggði sér danska Ofurbikarinn með fimm marka sigri gegn GOG í kvöld, 36-31.

Mikkel Hansen um veikindin sín: Sjokk fyrir mig
Danski handboltamaðurinn Mikkel Hansen var kynntur í gær sem nýr leikmaður danska félagsins Aalborg Handball en hann kemur til liðsins frá franska liðinu Paris Saint Germain.

Gríðarlegur áhugi á kynningarkvöldi Mikkel Hansen
Mikkel Hansen er kominn aftur heim til Danmerkur og Danir eru spenntir fyrir heimkomu eins allra besta handboltamannsins í sögu dönsku þjóðarinnar.

Arnór Atla tekur við liði TTH Holstebro
Arnór Atlason mun taka við þjálfun danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro næsta sumar.

Berta Rut söðlar um til Danmerkur
Handboltakonan Berta Rut Harðardóttir hefur samið við danska félagið Holstebro Håndbold um að leika með liðinu á næstu leiktíð.

Holstebro staðfestir komu Halldórs Jóhanns
Handknattleiksþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon hefur verið ráðinn til starfa sem aðstoðarþjálfari danska úrvalsdeildarfélaginu TTH Holstebro.

Sveinn til Skjern
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson hefur samið við danska félagið Skjern. Gildir samningurinn til eins árs.

Arnar þriðji Íslendingurinn sem skiptir til Ribe í sumar
Örvhenta skyttan Arnar Birkir Hálfdánsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við danska úrvalsdeildarfélagið Ribe-Esbjerg.

Danmerkurmeistarinn Viktor Gísli: „Staðráðinn í að láta þetta ganga upp“
„Það var ekki verið að haga sér, það voru tekin nokkur pissustopp og rútuferð sem átti að taka tvo og hálfan tíma tók örugglega fjóra og hálfan tíma,“ sagði markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson um heimferðina eftir að GOG varð Danmerkurmeistari í handbolta um liðna helgi.

Sveinn þurfti að fara aftur undir hnífinn
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson þurfti að gangast undir aðra aðgerð á hné vegna alvarlegra meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með íslenska landsliðinu seint á síðasta ári.

Viktor Gísli og félagar danskir meistarar
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru danskir meistarar í handbolta eftir nauman eins marks sigur gegn Aroni Pálmarssyni og félögum hans í Álaborg í dag, 26-27.

Yfirgefur Viggó til að taka við stöðu Viktors Gísla
Sænski markvörðurinn Tobias Thulin mun ganga í raðir danska handknattleiksfélagsins GOG í sumar. Á hann að fylla skarð Viktors Gísla Hallgrímssonar sem er á leið til Nantes í Frakklandi.