
Reykjavík síðdegis

Hægt að fara með rusl til Sorpu og nýta önnur úrræði
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að nota önnur úrræði til að nýta öskutunnurnar sem best á meðan sorphirðumenn eru í verkfalli. Sömuleiðis er hægt að fara með tiltekið magn af sorpi beint til Sorpu.

Gæti tekið langan tíma að vinda ofan af verkfalli sorphirðufólks
Rekstrarstjóri sorphirðu hjá Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að fara sjálfir með sorp á endurvinnslu- og grenndarstöðvar á meðan á verkfalli stendur.

Metanbóndi segir metanframleiðslu góða nýtingu á lífrænum úrgangi
"Þetta er takmörkuð auðlind og leysir ekki orkuþörf samgönguflotans en það er gott að þetta geti verið valkostur í þessari grein. Rafmagnið er mjög góður kostur fyrir léttari og smærri bíla en það væri gott að geta afsett þessa vöru við nýtingu á úrganginum,“ segir Jón Tryggvi Guðmundsson, metanbóndi.

„Þetta slæðist hingað með matvöru, ávöxtum eða blómum“
Það er ekki algengt að sporðdrekar, líkt og sá sem spásseraði um heimahús á Akureyri um helgina, berist hingað til lands. Líklegast er að sporðdrekinn hafi komið hingað sem laumufarþegi um borð í matvælasendingu.

Mikilvægt að huga að flóttaleiðum út úr höfuðborginni
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og formaður samgöngunefndar Alþingis, segir nú vera tækifæri til þess að ræða flóttaleiðir út úr höfuðborginni í ljósi þeirra jarðhræringa sem eiga sér stað í Svartsengi.

Telur fráleitt að banna flugelda hér á landi
Jón Gunnarsson þingmaður segir að herða þurfi reglugerð í kringum innflutning og sölu á flugeldum.

2,5 prósent Íslendinga eiga auðveldara með að „lifa af Þorláksmessuna“
Umfangsmikil heilsufarsrannsókn hefur leitt það í ljós að stökkbreyting í erfðamegni getur gert það að verkum að fólk á erfiðara með að finna lykt af fiski.

20 mínútna hreyfing á dag stórminnkar líkur á blöðruhálskrabbameini
Tuttugu mínútna hreyfing á dag getur minnkað líkur á því að karlmenn þrói með sér krabbamein í blöðruhálskirtli um 51 prósent samkvæmt nýrri breskri rannsókn.

„Fólk er grátandi og miður sín þarna fyrir norðan“
Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsamband Íslands, biður þá sem gagnrýnt hafa bændur á Norðurlandi sem misstu hesta í óveðrinu sem geisaði í síðustu viku, að gæta orða sinna

Felur ríkislögreglustjóra að skoða viðmiðin eftir frásögn lögreglukonu
Dómsmálaráðherra hyggst beina því til embættis ríkislögreglustjóra að skoða þau viðmið sem stuðst er við varðandi inngöngu í starfsnám í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri.

Gott að huga að vatnslögnum fyrir komandi frostgadd
Kalt verður í veðri fram yfir helgi og ættu landsmenn að búa sig undir tveggja stafa frost næstu daga. Er mælt með því að fólk fari að huga að vatnslögnum í híbýlum sínum og sumarbústöðum, enda getur mikið frost valdið skemmdum á lögnum og jafnvel eignatjóni.

„Besta leiðin til þess að minnka mengun er að leggja bílnum“
Líf Magneudóttir, formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkur, segir óviðunandi að Reykjavíkurborg lendi í því að fara yfir heilsuverndarmörk í loftgæðum.

Segir kostnaðarsamara fyrir Kínverja að ráðast inn í Hong Kong en að leyfa borginni að brenna
"Þeir hafa lært það í gegn um tíðina hvað gerist þegar þú sendir inn hermenn og skriðdreka, við sáum það á torgi Hins himneska friðar árið 1989. Þá var Kína allt öðruvísi land en það er í dag. Kína hefur vissulega, þó að stjórnvöld í Peking séu mjög hörð á svona hlutum, þá myndu þeir bara hafa miklu meiru að tapa núna á þessum tíma en áður fyrr.“

Telur Ignatovu hafa flúið undan rannsóknum
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrirsæta, segist trúa því að gömul og góð vinkona hennar til margra ára, Ruja Ignatova, hafi látið sig hverfa til að sleppa við fangelsisvist á meðan rannsóknir gegn henni stæðu yfir.

Skorar á KSÍ að kvarta formlega undan framgöngu Tyrkja
Sigríður Andersen, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, skorar á KSÍ að kvarta formlega undan framgöngu tyrkneskra stuðningsmanna á landsleik Tyrkja og Íslendinga síðasta fimmtudag.

Fólk tregara að fara að á uppeldisnámskeið en hundanámskeið
Una María Óskarsdóttir, uppeldis- menntunar- og lýðheilsufræðingur, segir mikilvægt að uppalendur tileinki sér góðar uppeldisaðferðir.

Dorrit líkir klónun hunda við hjónaband samkynhneigðra
Dorrit segir að hún gerii sér grein fyrir því að sumum finnist einræktun ósiðleg, sagðist hún skilja þá afstöðu fullkomlega.

Leggur til að Reykjavíkurborg búi til vettvang þar sem fólk geti gefið húsgögn til þeirra sem þurfa
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram tillögu í morgun þar sem lagt var til að koma upp vettvangi á forræði borgarinnar þar sem fólk gæti skilað af sér húsgögnum og aðrir gætu fengið án endurgjalds.

Neysla örvandi vímuefna „líklega aldrei verið meiri“
Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi formaður SÁÁ og yfirlæknir á Vogi, segir mikla aukningu hafa orðið undanfarin þrjú ár í fjölda kókaín neytenda.

Segir Uber mögulega geta hafið starfsemi hér í vetur
Frumvarp sem hafi verið í smíðum um nokkuð skeið verði lagt fyrir þingið á næstu mánuðum.

Segir Bjarna fjármagna kosningaloforð Dags B. Eggertssonar í Reykjavík
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir nálgun borgaryfirvalda í samgöngumálum og varðandi Borgarlínu "kolranga“.

Frumvarp um aukið eftirlit með barnaníðingum lagt fram í þriðja sinn
Frumvarp til lagabreytinga er varða eftirlit með dæmdum barnaníðingum hefur verið lagt fram í þriðja sinn. Flutningsmaður frumvarpsins er sem fyrr Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Það verður að ræða erfiðu hlutina á meðan allt leikur í lyndi
"Í rauninni væri lang best ef við gætum komið því þannig fyrir að við værum búin að ræða alla mögulega hluti, bara á besta aldri, og þá vissum við svolítið hvernig við vildum bregðast við,“ segir Hulda Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvarinnar.

Fékk að vita að hún yrði dómsmálaráðherra einni mínútu áður en fundurinn hófst
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir of snemmt að segja til um það hvort stefnubreytinga sé að vænta í dómsmálaráðuneytinu.

„Lausnin felst í að breyta ferðavenjum, númer eitt, tvö og þrjú“
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir það ömurlegt og óásættanlegt að fólk sitji fast í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Lausnin, númer eitt, tvö og þrjú, er að hennar sögn að breyta ferðavenjum.

Segir vandasamara að setja saman matseðil þegar matvæli eru útilokuð
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Embætti landlæknis, segir embættið vonandi gefa út könnun í haust um mataræði fólks í skóla til að sjá hve stór hluti velji sér grænkerafæði.

Segir að borgaryfirvöld skorti auðmýkt, stjórnsýslan völundarhús og framkvæmdir illa útfærðar
Hildur segir að eitt af stóru vandamálunum Miðborgarinnar séu kvaðir sem borgin setti á nýbyggingar þess efnis að nýbyggingar þyrftu að gera ráð fyrir verslunarrými á neðstu hæð. Hildur segir að kvaðirnar séu hrópandi ósamræmi við þróunina sem sé að eiga sér stað erlendis.

EES samstarfið megi ekki verða verkfæri „samþjöppunarsinna í Evrópu“ til að ráðskast með innanlandsmál og auka miðstýringu
Sigmundur Davíð talaði í viðtalinu um Evrópusambandið með afar gagnrýnum hætti. Hann varaði við því að ESB myndi nýta EES-samninginn til að auka yfirþjóðlegt vald yfir Íslandi.

Erling ósáttur við að þurfa að láta af störfum
Ætlar þó ekki að hverfa frá köllun sinni.

Segir flesta Dani ánægða með ákvörðun Trump að fresta heimsókn
Fátt annað er til umræðu í Danmörku þessa dagana en fjaðrafokið í kringum Donald Trump Bandaríkjaforseta og áhuga hans á að kaupa Grænland.