Keflavíkurflugvöllur

Fréttamynd

Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flug­stöðinni

Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna, í talsverðri fjarlægð frá flugstöðinni.

Innlent
Fréttamynd

Á­tján kíló af kókaíni undir fölskum botni

Par var dæmt í átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum átján kílóum af kókaíni til landsins í maí síðastliðnum. Fíkniefnin voru flutt til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi í tveimur farangurstöskum sínum. Annað þeirra sagist hafa keypt töskurnar notaðar og að þau hafi ekkert vitað um efnin í þeim.

Innlent
Fréttamynd

Veru­legur sam­dráttur hjá Isavia

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2026 var jákvæð um 3.338 milljónir króna samanborið við 4.245 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Lækkunin milli ára nemur um 907 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vaktin: Verk­falls­að­gerðum flug­virkja af­lýst

Verkfall flugvirkja stóð í um ellefu klukkustundir en var aflýst rétt fyrir hádegi. Icelandair aflýsti fjölda flugferða áður en Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair komust að samkomulagi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

„Gengið með eins eðli­legum hætti og hægt er“

Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst. 

Innlent
Fréttamynd

Fella niður 26 flug­ferðir

Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík á miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka.

Innlent
Fréttamynd

Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“

Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið.

Neytendur
Fréttamynd

Flug­freyjur og flug­menn styðja flug­virkja

Flugfreyjufélag Íslands auk Félags íslenskra atvinnuflugmanna lýsa yfir fullum stuðningi við Flugvirkjafélag Íslands í yfirstandandi kjaraviðræðum við forsvarsmenn Icelandair. Félögin skora á samningsaðila að finna samningsgrundvöll svo afstýra megi verkfalli.

Innlent
Fréttamynd

Verk­fallið skaði orð­spor Ís­lands

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana.

Neytendur
Fréttamynd

Tafir á Kefla­víkur­flug­velli

Nokkrar tafir hafa orðið á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna veðurs en gul viðvörun var í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan fimm í morgun og til níu.

Innlent
Fréttamynd

Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni

Framkvæmdastjóri Keilusambands Íslands þvertekur fyrir að um kynjamisrétti hafi verið að ræða þegar að leikmenn í karlalandsliði Íslands fengu sæti í Saga Class á leið í landsliðsverkefni á Írlandi í morgun á meðan að leikmenn kvennalandsliðsins þurftu að sitja á almennu farrými. 

Sport
Fréttamynd

Flug­virkjar fara í verk­fall

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atlantic Airways gefur eftir í sam­keppni við Icelandair

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways, eða Atlantsflog eins og það heitir á móðurmálinu, hefur ákveðið að fækka flugferðum milli Íslands og Færeyja í vetur, og raunar leggja Íslandsflug alfarið niður yfir háveturinn. Ástæðan er aukin samkeppni frá Icelandair, sem tilkynnti í lok maímánaðar að það hygðist fljúga allt árið til Færeyja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lét lífið á Kefla­víkur­flug­velli

Erlendur ríkisborgari lést í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 24. ágúst síðastliðinn. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum sem telur að andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Telja ís­lenska birgja sátta og áfengisverð í frí­höfninni sam­keppnis­hæft

Forsvarsmenn Heinemann sem opnuðu nýja og endurbætta fríhöfn á Keflavíkurflugvelli í dag segjast telja íslenska birgja sem selja vörur sínar í fríhöfninni vera sátta, þeir hafi lært margt síðan þeir tóku yfir rekstur fríhafnarinnar á síðasta ári. Þá segja þeir áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft þó ekki sé hægt að fullyrða að allar vörur séu ódýrari en í fríhöfnum í Kaupmannahöfn og í Frankfurt.

Innlent
Fréttamynd

Svona er um­horfs í endur­bættri frí­höfn

Forsvarsmenn Ísland Duty Free kynntu breytingar á fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugvelli á blaðamannafundi klukkan tíu. Fréttastofa kíkti á fríhöfnina í beinni útsendingu en horfa má á bæði blaðamannafundinn og gönguna um fríhöfnina hér fyrir neðan.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekkert heitt vatn á Suður­nesjum í dag

HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins.

Innlent
Fréttamynd

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Far­þegum fækkaði milli ára

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldan með á þriðja kíló af kókaíni

Þrír Kólumbíumenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi frá 29. júlí, voru gripnir með 2,4 kíló af kókaíni í farangri sínum. Daginn eftir voru tveir Kólumbíumenn til viðbótar teknir með 1,7 kíló af sama fíkniefni á Keflavíkurflugvelli.

Innlent