Lífeyrissjóðir
1 2 3 4 5 6 … 24 ›
Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórnendum félaga Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR. Innherji 14.4.2026 17:27
Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Vátryggingamiðlunin Tryggingar og ráðgjöf ehf. (T&R), sem er meðal annars samstarfsaðili þýska líftryggingafélagsins VPV Versicherungen (VPV), býður nú almenningi upp á opna og ókeypis fræðslufundi um lífeyrismál og viðbótarsparnað, bæði séreignarsparnað og viðbótarlífeyrissparnað. Lífið samstarf 14.4.2026 08:35
Að rýna lífeyriskerfið til gagns Frá því að viðmiðið var tekið upp árið 1991 hefur raunávöxtun lífeyrissjóða verið að meðaltali 4,2% og það þrátt fyrir að tæknibóla hafi sprungið, bankar lent í krísu og heimsfaraldur hrellt heimsbyggðina. Það er með öðrum orðum ekki ólíkar byrðar á milli kynslóða þeirra sem mynduðu sjóðina eins og Benedikt Gíslason notar til að þyngja tilgátu sína. Umræðan 13.4.2026 12:07
Boða aðgerðir til að auðvelda almenningi að fjárfesta með skilvirkum hætti Stjórnvöld vinna nú að undirbúningi frumvarps, sem áformað er að verði orðið að lögum snemma árs 2027, sem miðar að því að bæta miðlun innlends sparnaðar til fjárfestinga og meðal annars auðvelda einstaklingum að fjárfesta með skilvirkari hætti. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur áður sagt að verið sé að skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði. Innherji 12.4.2026 18:34
Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Ráðast þarf í breytingar á íslenska lífeyriskerfinu til að skapa varanlegar forsendur fyrir lægri vöxtum á íbúðalánum, að mati Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Í aðsendri grein á Innherja heldur hann því fram að núverandi fyrirkomulag lífeyriskerfisins, þar sem verðtrygging og föst raunávöxtunarforsenda séu í lykilhlutverki, haldi uppi hærra vaxtastigi en ella og bitni sérstaklega á ungu fólki á húsnæðismarkaði. Viðskipti innlent 1.4.2026 13:26
Stór skref að lægri vöxtum íbúðalána Þegar lífeyrissjóðir þurfa að tryggja 3,5% raunávöxtun til langs tíma og greiða út lífeyri með verðtryggingu er eðlilegt að þeir sækist eftir verðtryggðum skuldabréfum í eignasöfn sín. Sú eftirspurn mótar skuldabréfamarkaðinn, hækkar langtímavexti og hefur bein áhrif á kjör heimilanna. Umræðan 1.4.2026 12:14
Enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum Það er enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum, og þó það sé komið lögfræðiálit frá skrifstofu Alþingis er enn ekkert búið að gera. Skoðun 31.3.2026 22:01
Að mala eða mala ekki gull Í Kauphöllinni er eitt fyrirtæki sem malar gull í bókstaflegri merkingu hvað sem segja má um öll hin. Nú hafa sjávarútvegsfyrirtækin þrjú sem skráð eru á markaði – Brim, Ísfélagið og Síldarvinnslan – skilað uppgjöri fyrir síðasta ár og þá vaknar spurningin hvort þau mali gull eins og mörgum hefur verið tíðrætt um. Umræðan 29.3.2026 17:20
Felldu tillögu lífeyrissjóða um að setja upp tilnefningarnefnd í Hampiðjunni Tillaga hóps lífeyrissjóða sem vildu að hafin yrði undirbúningur að stofnun tilnefningarnefndar hjá Hampiðjunni, líkt og hjá miklum meirihluta félaga í Kauphöllinni, hlut ekki brautagengi á aðalfundi félagsins. Innherjamolar 23.3.2026 17:07
Lífeyrissjóðir biðu af sér dýfuna þegar gengi Alvotech féll um sextíu prósent Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent. Innherji 17.3.2026 15:09
Flókið að biðja lífeyrissjóði að vera í senn langtímafjárfestar og virkir á markaði Ekki er að sjá af gögnum að íslenskir lífeyrissjóðir séu sérstaklega áhættufælnir í fjárfestingum sínum að mati framkvæmdastjóra eins af stærstu sjóðum landsins, líkt og fjármála- og efnahagsráðherra hefur haldið fram, en hann telur að sporna þurfi við þeirri stöðugu umræðu að skammtímasveiflur í gengi hlutabréfa feli í sér áhættu fyrir lífeyrissjóði. Hann fagnar því ef ráðherra vill skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á mörkuðum, sem gæti aukið skilvirkni þeirra, enda sé flókið að biðja lífeyrissjóði að vera í senn langtímafjárfestar og stuðla að stöðugri verðmyndum með tíðum viðskiptum. Innherji 17.3.2026 12:25
ISNIC verðmetið á meira en fjóra milljarða við sölu til sjóðs Stefnis Allt hlutafé Internets á Íslandi, sem sér um rekstur .is lénakerfisins, var verðmetið á vel yfir fjóra milljarða króna þegar framtakssjóður í rekstri Stefnis keypti meirihluta í félaginu snemma árs í fyrra. Ríkissjóður nýtti sér ekki forkaupsrétt til að stíga inn í viðskiptin. Innherji 14.3.2026 13:22
Evrópa fer á mis við 30 billjóna dala tækifæri í lífeyrismálum Það er ekki auðvelt að umbreyta þungum gegnumstreymiskerfum Frakklands og Þýskalands yfir í sjóðasöfnun eins og tíðkast í Danmörku, Hollandi og Svíþjóð. En ávinningurinn yrði mikill. Ef öll ESB-lönd ættu lífeyriseignir að verðmæti 140% af vergri landsframleiðslu þá myndu þessir sjóðir rúma næstum 30 billjónir Bandaríkjadala. Umræðan 11.3.2026 09:23
Fylgjandi „meira frelsi“ í fjárfestingum lífeyrissjóða en vill efla kröfur og eftirlit Þrátt fyrir að segjast vera fylgjandi þeim „umfangsmiklu tilslökunum“ sem til stendur að gera á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóðanna þá er Seðlabankinn nokkuð gagnrýninn á að ekki sé gengið lengra í því sem hann telur „brýnar“ mótvægisaðgerðir, meðal annars þegar kemur að því að efla kröfur um stjórnarhætti og innra eftirlit sjóðanna. Innherji 9.3.2026 13:44
Lífeyrir og launavísitala: Hvað gengur Læknafélagi Íslands til? Ég er ein þeirra sem fagna því að bætur almannatrygginga verði tengdar við launavísitölu. Eins og við mátti búast eru mörg á öndverðum meiði um mikilvægi þessa máls og virðist sú sýn byggjast á þeirri hugmynd að um bruðl sé að ræða úr ríkissjóði. Skoðun 5.3.2026 21:03
Ekki lengur stærsti erlendi hluthafinn eftir að hafa selt fyrir nærri fjóra milljarða Bandaríska sjóðastýringarfélagið Capital Group er ekki lengur stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka eftir að hafa verið statt og stöðugt á söluhliðinni í bankanum frá því um miðjan janúar. Á þeim tíma hefur gengið lækkað um liðlega sjö prósent. Innherji 22.2.2026 13:43
Vill opna á verðbréfalán lífeyrissjóða sem ætti að auka skortsölu á markaði Fjármálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp sem myndi meðal annars í fyrsta sinn gera íslenskum lífeyrissjóðum kleift að lána áfram hluta af hlutabréfum eða skuldabréfum í þeirra eigu, sem gæti þá skapað forsendur fyrir aukinni skortsölu meðal fjárfesta, en það ætti að bæta í senn virkni og verðmyndum á markaði. Innherji 10.2.2026 13:41
Samruni stórra lífeyrissjóða kallar á spurningar um samþjöppun eignarhalds Áform um mögulegan samruna Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, ætti að leiða til þess að velt sé upp sjónarmiðum hvaða áhrif það kynni að hafa fyrir samþjöppun eignarhalds á markaði, að sögn seðlabankastjóra. Innherji 9.2.2026 16:35
Stóru sjóðirnir á söluhliðinni á fyrsta ári vel heppnaðs samruna JBT og Marels Allir helstu íslensku lífeyrissjóðirnir voru á söluhliðinni á fyrsta árinu eftir risasamruna JBT og Marels, einkum tveir af stærstu sjóðum landsins, þegar þeir minnkuðu nokkuð stöðu sína í sameinuðu fyrirtæki og seldu fyrir samtals vel á annan tug milljarða króna. Afkoma félagsins hefur að undanförnu ítrekað verið umfram væntingar en mikil veiking Bandaríkjadals hefur litað ávöxtun innlendra fjárfesta í krónum. Innherji 30.1.2026 11:37
Sameinaður sjóður yrði stærsti hluthafinn í fjölmörgum Kauphallarfélögum Verði af sameiningu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, sem myndi búa til risastóran leikanda á íslenskum fjármálamarkaði, þá yrði sjóðurinn stærsti einstaki fjárfestirinn í fjölmörgum skráðum félögum og meðal annars fara með virkan eignarhlut í nokkrum fjármálafyrirtækjum. Innherji 29.1.2026 16:31
Íslandsbanki leysir til sín allt hlutafé í Hringrás Endurvinnslufyrirtækið Hringrás, sem er að stórum hluta óbeint í eigu lífeyrissjóða, hefur verið yfirtekið af Íslandsbanka en rekstur þess hefur gengið fremur erfiðlega samtímis talsverðri skuldsetningu. Stutt er síðan til stóð að selja félagið fyrir milljarða en þau viðskipti féllu niður. Innherji 29.1.2026 11:26
Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Fjármálaráðgjafi segir fjárhag barna vera eitt stærsta lífeyrismál foreldranna. Foreldrar eigi það til að seinka því að fara á eftirlaun eða skuldsetja sig til að aðstoða börnin fjárhagslega. Innlent 28.1.2026 11:17
Birta og LV skoða mögulegan samruna Stjórnir Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður til að meta fýsileika mögulegs samruna sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum lífeyrissjóðum. Viðskipti innlent 27.1.2026 17:07
Íbúðalán bankanna skruppu verulega saman og ekki verið minni um langt árabil Aukin samkeppni frá lífeyrissjóðunum á fasteignalánamarkaði og þrengri skilyrði fyrir verðtryggðum lánum átti meðal annars þátt í því að hrein ný íbúðalán viðskiptabankanna drógust saman um tugi prósenta í fyrra og hafa ekki verið minni að umfangi í meira en áratug. Innherjamolar 26.1.2026 15:26
Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Pétur Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýsingatæknisviðs Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 26.1.2026 08:22
Þrjú þúsund milljarða skuggabankamarkaður Árleg skýrsla Seðlabankans um gjaldeyrismarkaðinn og gengisþróun er jafnan fróðleg lesning. Í þeirri nýjustu, sem birtist í liðinni viku, er meðal annars að finna þær upplýsingar að umfang gjaldeyrispörunar innan stóru viðskiptabankanna – sem sumir hafa kallað stærstu skuggabankastarfsemi landsins – hafi í fyrra numið samtals um þrjú þúsund milljörðum króna. Hefur sá markaður verið í nokkuð stöðugu ástandi á þeim slóðum undanfarin ár. Innherjamolar 20.1.2026 14:45
Styrkás stefnir að skráningu um vorið 2027 og er núna metið á 30 milljarða Stjórn Styrkás, leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með árlega veltu upp á liðlega sjötíu milljarða, hefur tekið ákvörðun um að hefja formlega undirbúning að skráningu félagsins í Kauphöllina og er markmiðið að hún fari fram á öðrum fjórðungi næsta árs. Innherjamolar 14.1.2026 13:35
Lífeyrissjóðir og einkafjárfestar leggja EpiEndo til níu milljónir evra Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals hefur lokið útgáfu á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð níu milljónir evra, einkum með þátttöku einkafjárfesta og lífeyrissjóða, en fjármögnuninni er ætlað að gera félaginu kleift að halda áfram þróun á frumlyfi sínu. Það hefur möguleika á að verða fyrsta bólgueyðandi lyfið í töfluformi sem hægt er að nota meðal annars til langtímameðferðar við langvinnri lungnaþembu. Innherji 7.1.2026 10:21
Framvirk gjaldeyrisstaða fjárfesta tók stökk þegar gengi krónunnar veiktist Fjárfestar og fyrirtæki fóru að bæta verulega í framvirka gjaldeyrisstöðu sína núna seint á haustmánuðum samtímis því að gengi krónunnar fór loksins að gefa nokkuð eftir. Þrátt fyrir að lífeyrissjóðirnir hafi á nýjan leik aukið umsvif sín á gjaldeyrismarkaði á síðustu mánuðum er útlit fyrir að heildarkaup ársins verði aðeins í líkingu við það sem þekktist á tímum faraldursins. Innherji 23.12.2025 09:22
Lykilatriði að efla skuldabréfamarkaðinn til að ná niður vöxtum á íbúðalánum Ef það á að takast að ná niður vaxtakjörum á íbúðalánum á Íslandi er „lykilatriði“ að auka aðgengi almennings að skuldabréfamarkaði, sem er núna nánast einokaður af lífeyrissjóðum, og þannig skapa forsendur fyrir því að hægt sé að bjóða upp á langtímafjármögnun, samkvæmt nýrri greiningu. Hlutur einstaklinga á skuldabréfamarkaði er hverfandi, sem er meðal annars afleiðings íþyngjandi regluverks, en þeir beina fjármagni sínu fremur í innlán vegna skorts á öðrum áhættulitlum fjárfestingarkostum. Innherji 22.12.2025 13:38