Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Fyrr í dag varð minniháttar umferðarslys við munna Leirvíkurganganna í Nyrðri-Götu í Færeyjum. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi og upp í fjallið við munna gangnanna. Lögregla kom á vettvang og þyrla sömuleiðis og á endanum tókst að koma honum niður heilum á húfi. Erlent 1.2.2026 19:19
Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Orð á borð við „töfrandi“ og „einstakt“ eru mikið notuð núna í tengslum við sögulegan sigur færeyska karlalandsliðsins í handbolta á EM í kvöld. Handbolti 18.1.2026 19:58
Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Færeyjar unnu sinn fyrsta sigur á stórmóti í handbolta í kvöld þegar að liðið valtaði yfir Svartfjallaland í D-riðli EM. Lokatölur 24-37 og von Færeyja um sæti í milliriðlum lifir. Handbolti 18.1.2026 18:36
Færeysku stelpurnar unnu Spán: Söguleg stund fyrir Færeyjar Færeyska kvennalandsliðið í handbolta vann óvæntan sigur á Spánverjum á heimsmeistaramóti kvenna í Þýskalandi í kvöld. Handbolti 28. nóvember 2025 21:11
Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Það eru ekki bara íslensku landsliðsstrákarnir sem dreymir um sæti í umspili heimsmeistaramótsins í fótbolta því nágrannar okkar í Færeyjum eiga enn smá möguleika á að ná öðru sætinu. Fótbolti 14. nóvember 2025 14:16
Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Bæjarráð Runavíkur í Færeyjum hefur samþykkt að ný sundhöll sveitarfélagsins fái heitið Bylgjan. Það er sama nafn og er þegar fyrir á íþróttahúsi sem sundhöllin er byggð við. Bæjarráðið segir að með viðbyggingunni bætist tvær nýjar bylgjur við og muni því öll íþróttamiðstöðin heita Bylgjan. Erlent 9. nóvember 2025 07:37
Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Samstaðan, sem náðist milli stjórnmálaflokkanna í Færeyjum í síðustu viku um veglínu Suðureyjarganga, virðist ekki eins víðtæk og ætla mátti. Náttúru- og umhverfissamtök hafa risið upp og mótmælt og íbúar Sandeyjar virðast afar ósáttir. Deildir flokkanna á Sandey leggjast hart gegn niðurstöðunni. Þá lýsa lykilmenn í efnahagsmálum eyjanna þeirri skoðun að jarðgöngin séu fjárhagslegt glapræði. Færeyingar muni ekki hafa ráð á göngunum. Erlent 2. nóvember 2025 08:08
Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Norðurlandaráð hefur ákveðið að Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fái nú föst sæti í forsætisnefnd ráðsins, sem er æðsta stjórnvald þess á milli hinna árvissu þinga. Erlent 31. október 2025 12:17
Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Allir stjórnmálaflokkar á færeyska Lögþinginu náðu í gær samstöðu um veglínu fyrirhugaðra jarðganga til Suðureyjar og að bjóða verkið út. Þessi neðansjávargöng yrðu langstærsta mannvirkjagerð í sögu Færeyja. Erlent 28. október 2025 21:21
Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Færeyingar fara heim með verðlaun í bæði kvikmynda- og bókmenntaflokki. Menning 21. október 2025 10:32
Gullkálfurinn Gunnar: „Stemningin var rafmögnuð“ Svo virðist sem allt sem Færeyingurinn Gunnar Vatnhamar snerti þessa dagana verði að gulli. Hann er Íslandsmeistari með Víkingi og nær sögulegum árangri sem fyrirliði landsliðsins. Íslenski boltinn 17. október 2025 11:00
Meira harpix á milli Íslands, Færeyja og Grænlands Forkólfar handknattleikssambanda Íslands, Grænlands og Færeyja undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aukið samstarf þjóðanna í handbolta, á landsleik Íslands og Færeyja í undankeppni EM kvenna. Handbolti 16. október 2025 17:17
Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrverandi forstjóri færeyska orkufélagsins Magn, sem Íslendingar eiga stóra hluti í, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Hann hafði verið ákærður fyrir „umboðssvik af sérlega alvarlegum toga“ með því að draga sér samtals 3,4 milljónir danskra króna, andvirði 65 milljóna íslenskra. Viðskipti erlent 7. október 2025 14:54
Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar „Ég var um borð í vél á leiðinni frá Færeyjum til Kaupmannahafnar þetta kvöld. Allt var kyrrt og hljótt, nema rétt áður en við áttum að lenda kemur tilkynning frá flugmanninum um að við getum ekki lent vegna dróna yfir flugvellinum.“ Erlent 27. september 2025 08:01
Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Hætt hefur verið leit að þremur ferðamönnum sem hurfu sporlaust á eyjunni Vogum yfir tveggja daga tímabil fyrir viku síðan. Tveggja suður-kóreskra kvenna og eins mexíkósks manns er enn saknað. Erlent 13. september 2025 20:19
Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Innflutningstollur Bandaríkjanna á færeyskar vörur verður tíu prósent. Færeyingar mega þannig una við fimm prósentustigum lægri toll en Íslendingar, sem fá fimmtán prósenta toll á sínar útflutningsvörur, eins og Norðmenn. Tollarnir eiga að taka gildi þann 7. ágúst. Viðskipti erlent 3. ágúst 2025 16:00
Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, tilkynnti í Ólafsvökuræðunni í fyrradag, setningarræðu færeyska lögþingsins, að frumvörp landsstjórnarinnar um gerð Suðureyjarganga og hækkun eftirlaunaaldurs yrðu bæði lögð fram að nýju í haust. Einn stjórnarflokkanna, Framsókn, fékk því framgengt að málin verði spyrt saman og að Suðureyjargöng verði ekki samþykkt nema hækkun eftirlaunaaldurs í áföngum upp í 70 ár fylgi með. Erlent 31. júlí 2025 12:30
Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Aksel Johannesen lögmaður tilkynnti um það í Ólafsvökuræðu sinni í dag að Færeyingar muni taka þátt í refsiaðgerðum Evrópusambandsins á hendur rússneskum útgerðarfélögum. Færeyingar hafa lengi átt í samstarfi við Rússa í sjávarútvegsmálum. Erlent 29. júlí 2025 14:43
Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Fragtskipið Dettifoss er komið úr viðferð eftir að það varð vélarvana á Ballarhafi í síðustu viku og þurfti varðskip Landhelgisgæslunnar að koma því til bjargar. Því seinkar aðeins um tæpan sólarhring. Innlent 16. júlí 2025 21:50
„Orðaskiftismetið tikið“ Kringvarp Færeyja fjallar um málþóf stjórnarandstöðunnar í annarri umræðu um veiðigjaldafrumvarpið. Greint er frá því að „viðgerðin um veiðigjøldini tikið metið sum longsta viðgerð um einstakt mál í Altinginum.“ Innlent 9. júlí 2025 10:27
Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Færeyingar fögnuðu í gær enn einum jarðgöngunum, aðeins ellefu dögum eftir síðustu jarðgangavígslu. Nýjustu göngin eru jafnframt fyrstu innanbæjargöngin í Þórshöfn. Erlent 7. júlí 2025 20:40
Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Færeyingar rifu sig upp eftir grátlegt tap í tvíframlengdum undanúrslitaleik og tryggðu sér í kvöld bronsverðlaunin á heimsmeistaramóti 21 árs landsliðs í handbolta en mótið fer fram í Póllandi. Handbolti 29. júní 2025 16:38
Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Norskar björgunarsveitir hættu leit eftir þrjá tíma að manni sem féll fyrir borð í Norrænu undan suðurströnd Noregs. Búið er að bera kennsl á viðkomandi með manntali á farþegum og gera fjölskyldu hans viðvart. Ekki liggur fyrir hvenær leit hefst að nýju. Erlent 29. júní 2025 10:15
Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Færeyingar verða að sætta sig við að spila um bronsið á HM 21 árs landsliða í handbolta eftir tap á móti Portúgal í undanúrslitaleiknum í kvöld. Handbolti 27. júní 2025 21:26