

Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stefna lífi og heilsu á þriðja tugar erlendra starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í hættulegu húsnæði á Smiðshöfða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Skútan Stephima varð alelda í gærkvöldi, þar sem hún lá við Bæjarbryggjuna á Seyðisfirði. Skútan var mannlaus þegar eldurinn kom upp en hún er mjög illa farin. Eldsupptök eru óljós.
Stór bíll valt á hlið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogsbraut fyrir skemmstu. Tveir voru í bílnum og er hvorugur alvarlega slasaður.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 15 í dag vegna elds á trésmíðaverkstæði við Dalbrekku í Kópavogi.
Tvær konur og einn karlmaður slösuðust í árekstri pallbíls og fólksbíl undir brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungu í Mosfellsbæ í kvöld. Önnur konan er sögð alvarlega slösuð en líklega ekki í lífshættu.
Slökkvilið Akureyrar hefur verið kalla út vegna sinubruna við Lundeyri á Bótinni, skammt austan við Þverholt og vestan við smábátahöfnina.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds á annarri hæð í fjölbýlishúsi við Hraunbæ í gærkvöldi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk boð um 82 sjúkraflutninga undanfarinn sólarhring. Þar af voru 28 forgangsverkefni og tvö í tengslum við Covid-19. Dælubílar voru kallaðir út tvisvar sinnum á sunnudag og aðfaranótt mánudags.
Eldur kviknaði í sinu í Akrafjalli í morgun. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út rétt eftir klukkan tíu í morgun vegna brunans og er að yfirgefa vettvang núna
Árekstur varð milli rútu og mótorhjóls á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar fyrir skemmstu. Enginn er alvarlega slasaður samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.
Starf slökkviliðsmanna er eitt hættulegasta starfið og felst stundum í því að hlaupa inn í brennandi hús og bjarga fólki.
Slökkvistarfi í Hvalfirði vegna sinuelda lauk um tvöleytið í nótt. Aðstæður voru erfiðar á staðnum, en vel gekk að slökkva eldinn.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til í gær þegar eldur kom upp í feitispotti í fjölbýlishúsi. Húsráðandi brenndist við að reyna að slökkva eldinn og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar berjast nú við sinueld í norðanverðum Hvalfirðinum. Yfir tuttugu manns taka þátt í slökkvistarfinu en slökkviliðsstjórinn segir að stjórn hafi náðst á eldinum.
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst um klukkan sjö í kvöld tilkynning um gróðureldur á Laugarnesi. Einn bíll var sendur á vettvang og tók það skamman tíma að ná tökum á gróðureldinum.
Tveir eldar hafa kviknað í skóginum á milli Breiðholtsbrautar og Seljabrautar. Útkall barst slökkviliði um klukkan 16:45 í dag og segir varðstjóri að slökkvistarf gangi ágætlega.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti fremur óvenjulegum verkefnum í gær þegar þeir björguðu páfagauk úr tré og voru kallaðir til þegar hestur sást á sundi.
Slökkviliðið var kallað út síðdegis í dag eftir að tilkynning barst um viðvörunarkerfi í gangi í íbúðarhúsnæði. Tilkynnandi hafði einnig fundið brunalykt og hafði samband við slökkvilið.
Hættustig almannavarna vegna hættu á gróðureldum er víða enn í gildi og var viðbúnaðarstig hækkað á norðvesturhluta landsins í dag.
Ekki er lengur hættustig vegna gróðurelda í gildi á Reykjanesi vegna úrkomu þar en hættustig hefur verið sett í gildi á norðvesturhluta landsins. Þar var áður óvissustig.
Eldur kviknaði um eittleytið á útisvæði við höfnina á Akureyri. Slökkviliðið var fljótt á vettvang og segir varðstjóri að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn.
Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu sagðist telja að mjög illa hefði getað farið ef eldur hefði kviknað í iðnaðarhúsnæði þar sem eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob lét smíða búseturými. Eigandinn er ákærður fyrir að stefna heilsu og lífi starfsmanna sem bjuggu í húsnæðinu í augljósan háska.
Slökkvilið og björgunarsveitarfólk var kallað að Esju í dag til þess að aðstoða þýskan ferðamann sem hafði slasast. Að sögn varðstjóra hafði ferðamaðurinn verið að dást að Esjunni þegar grjót féll niður og á ökkla ferðamannsins.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í heimahúsi við Haðarstíg í miðbæ Reykjavíkur.
Sviðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir sakamál gegn eiganda starfsmannaleigunnar 2findjob eitt það ljótasta sem hann hefur séð á sínum 30 ára ferli. Mikil íkveikjuhætta var í húsnæðinu og ljóst að þar hefði getað orðið stórslys. Verkamenn bjuggu í litlum svefnkössum sem var staflað upp.
Slökkvilið hefur verið kallað út vegna sinubruna á Laugarnesi í Reykjavík. Ekki er um að ræða mikinn eld og vinnur slökkvilið nú að því að stýra eldinum að veginum að sögn aðstoðarvarðstjóra.
Lögregla og slökkvilið á þeim svæðum þar sem almannavarnastigi vegna hættu á gróðureldum hefur verið lýst yfir hafa aukið viðbúnað sinn og eftirlit vegna þess hve hættan á gróðureldum er nú mikil. Svæðið sem um ræðir nær allt frá Eyjafjöllum í austri og vestur að Breiðafirði.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir útkalli við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði þar sem logar gróðureldur. Þetta segir varðstjóri hjá slökkviliðinu í stuttu samtali við Vísi.
Brunavarnir Suðurnesja hafa verið kallaðar út vegna gróðurelda sem loga til móts við afleggjarann að Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd.
Slökkviliðsmenn af Suðurlandi náðu að slökkva fljótt í gróðureldi sem kviknaði nærri Búrfelli í Grímsnesi í dag. Hættustigi vegna gróðurelda er nú í gildi allt frá Eyjafjöllum vestur að Breiðafirði og meðferð á opnum eldi bönnuð.