Heilbrigðismál

Sóttvarnalæknir segir ekki rétt að ekkert sé gert hér vegna kórónuveirunnar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagði á upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar í dag að hér á landi væri búið að gera gríðarlega mikið til þess að hefta útbreiðslu veirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19.

109 einstaklingar greinst með kórónuveiruna hér á landi
109 einstaklingar hafa greinst með kórónuveiruna sem veldur sjúkdómnum Covid-19 á Íslandi.

Tveir á Landspítalanum vegna Covid-19 en hvorugur á gjörgæslu
Tveir sjúklingar liggja nú inni á Landspítalanum vegna sjúkdómsins Covid-19.

Fresta aðgerðum vegna manneklu af völdum veirunnar á Landspítalanum
Svo margt starfsfólk Landspítalans í Fossvogi er í sóttkví eða einangrun vegna kórónuveirunnar að ákveðið hefur verið að fresta öllum valaðgerðum fram yfir helgi.

Svona var tólfti upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundur með fjölmiðlum klukkan 14 í dag í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð.

Um 180 manns búnir að skrá sig í bakvarðasveitina
Lyfjafræðingafélag Íslands hafi boðið fram aðstoð sína um að biðla til sinna félagsmanna um að skrá sig í bakvarðasveitina. Eru lyfjafræðingar þegar farnir að skrá sig í grunninn.

Yfir 100 manns nú greinst með kórónuveiruna á Íslandi
Frá því í gærkvöldi hafa fimmtán tilfelli af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdóminum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Sjúkraþjálfari tekinn á teppið fyrir tryggingasvindl
Sjúkraþjálfari nokkur þarf að endurgreiða Sjúkratryggingum Íslands tvær og hálfa milljón króna. Þá hefur honum verið veitt viðvörun þar sem skráning hans í sjúkraskrá þótti ófullnægjandi og embætti Landlæknis tilkynnt um málið.

Allir nemendur með hita, hósta eða þreytu haldi sig heima
Þetta kemur fram í tölvupósti sem skólastjórnendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum sendu til foreldra og nemenda í kvöld.

Hjúkrunarfræðingur furðar sig á „heift og reiði“ í garð heilbrigðisstarfsfólks
Hjúkrunarfræðingur undrast viðbrögð landlæknis og forstjóra Landspítalans við utanlandsferðum heilbrigðisstarfsfólks og segir að setja ætti á ferðabann ef raunverulegur vilji til að koma í veg fyrir kórónuveirusmit heilbrigðisstarfsfólks sé fyrir hendi

Bæði sýnin á Akureyri reyndust neikvæð
Sýni úr tveimur einstaklingum sem settir voru í einangrun á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna gruns um kórónuveirusmit reyndust neikvæð fyrir COVID-19 sjúkdómnum.

Tveir í einangrun á Akureyri vegna gruns um smit
Von er á niðurstöðum á sýnum í kvöld eða á morgun.

Kári telur enga þörf á sóttkví hafi veiran breiðst um allt samfélagið
Skimun Íslenskrar erfðagreiningar miðar að því að kortleggja útbreiðslu veirunnar og hefst á föstudag.

Treystum þeim sem best vita
Samfélag okkar stendur frammi fyrir flóknu og vandasömu verkefni. Samstaða, fagmennska, æðruleysi, kjarkur og dómgreind eru dæmi um eiginleika sem munu koma okkur gegnum þetta tímabundna en erfiða ástand.

Fólk beðið að endurnýta pumpur af sótthreinsivörum
Umhverfisstofnun og Embætti landlæknis að höfðu samráði við framleiðendur sótthreinsivara beina þeim tilmælum til almennings, fyrirtækja og stofnana að endurnýta handpumpur af handsprittbrúsum, sápum og öðrum sótthreinsivörum þar sem skortur er á slíkum pumpum í heiminum.

Segir ekkert benda til þess að veiran smitist í lofti
Sóttvarnalæknir segir tvær meginsmitleiðir COVID-19 veirunnar vera dropasmit og snertismit.

Covid-19 skilgreint sem heimsfaraldur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint útbreiðslu Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, sem heimsfaraldur.

Ætla að taka sýni úr fleirum en áður vegna kórónuveirunnar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að búið sé að útvíkka ábendingar fyrir sýnatökur vegna kórónuveirunnar. Boðum um þetta hafi verið komið til heilbrigðisstarfsmanna og þeirra sem svara í síma 1700.

Þriðja stigs smit hjá fjórum einstaklingum
Alls hafa nú 90 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi.

Sá fyrsti verulega veikur vegna kórónuveirunnar lagður inn
Eldri maður lagður inn vegna einkenna og hás hita.


Svona var ellefti upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðuðu til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag í Skógarhlíð 14.

Óska eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista vegna veirunnar
Heilbrigðisyfirvöld hérlendis hafa óskað eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Staðfest tilfelli kórónuveirunnar orðin 85
Fjögur ný smit hafa bæst við í dag.

Starfsmenn Landspítala fóru til Austurríkis eftir tilmæli landlæknis um að heilbrigðisstarfsfólk færi ekki til útlanda
Læknar og hjúkrunarfræðingar fóru í skíðaferð til Austurríkis eftir að landlæknir beindi þeim tilmælum til heilbrigðisstarfsfólks að fara ekki til útlanda vegna kórónuveirunnar.

Almannavarnir veita skipuleggjendum og þátttakendum ráð vegna mannamóta
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilmæli til skipuleggjenda viðburða og þátttakenda í ljósi þess að tilfellum nýju kórónuveirunnar hefur fjölgað hratt undanfarna daga og vikur.

Mál fyrrverandi starfsmanns SÁÁ endaði með þriggja milljóna króna sekt
Persónuvernd hefur sektað SÁÁ um þrjár milljónir króna vegna öryggisbrests. Sektin varðar mjög viðkvæm sjúkragögn sem reyndust óvænt vera í vörslu fyrrverandi starfsmanns SÁÁ.

Menntaskólinn á Ísafirði braut lög
Menntaskólinn á Ísafirði braut lög þegar hann synjaði Eyþóri Inga Falssyni fötluðum pilti um skólavist nokkrum dögum fyrir skólasetningu. Sérstaklega er sett ofaní við skólastjóra vegna málsins í úrskurði Menntamálaráðuneytisins.

Borgarafundur vegna útbreiðslu kórónuveirunnar á Íslandi
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar stendur fyrir borgarafundi með forystufólki almannavarna, forsætisráðherra og seðlabankastjóra á fimmtudagskvöld þar sem almenningi gefst tækifæri til að spyrja beint um útbreiðslu kórónuveirunnar.

Óánægja með takmarkanir á kvennadeildum: „Það er ekkert plan B“
Hvorki makar né aðstandendur fá að fylgja konum í sónar og aðeins maki fær að vera viðstaddur fæðingu. Þessi tíðindi hafa lagst illa í marga en yfirlæknir fæðingaþjónustu segir takmarkanirnar nauðsynlegar.