Ofbeldi gegn börnum
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp en foreldrar voru ekki látnir vita. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný. Innlent 24.3.2026 10:21
Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Eftirlitsaðilinn Internet Watch Foundation segir myndum og myndskeiðum af kynferðisbrotum gegn börnum sem framleidd eru með aðstoð gervigreindar hafa fjölgað um fjórtán prósent í fyrra. Gervigreindin virðist vera að gera mönnum kleift að framleiða grófara efni. Erlent 24.3.2026 07:50
Minnir á að flest kynferðisbrotin eigi sér stað á heimilinu Meint brot gegn barni á Krakkakoti á Álftanesi sem barnayfirvöldum í Garðabæ var tilkynnt um í síðustu viku er komið inn á borð lögreglu. Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir eðlilegt að fjöldi frétta um meint brot á leikskólum veki ugg en segir börn alltaf þurfa að njóta vafans. Innlent 23.3.2026 12:02
Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar tilkynningu um meint kynferðisbrot á leikskólanum á Flúðum fyrr á árinu. Enginn er með réttarstöðu sakbornings en starfsmanni var vikið úr starfi meðan á rannsókninni stóð. Innlent 23.3.2026 11:06
Aðalmeðferð hafin í máli Helga Bjarts Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts Þorvarðarsonar, sem sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði og vændiskaup, hófst í morgun. Hún mun standa yfir í allan dag og ef allt fer samkvæmt áætlun má reikna með að dómur falli innan fjögurra vikna. Allt þinghald í málinu fer fram fyrir luktum dyrum. Innlent 23.3.2026 10:34
Átta mánaða skilorð fyrir ofbeldi í nánu sambandi og eignaspjöll Karlmaður var nýlega í Héraðsdómi Austurlands dæmdur til átta mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir eignaspjöll og ofbeldi í nánu sambandi gegn sambýliskonu sinni og barnsmóður. Maðurinn var ákærður í tvígang fyrir ofbeldi í nánu sambandi, fyrst 2024 og svo í janúar á þessu ári. Hann var aðeins sakfelldur í öðru tilvikinu. Innlent 23.3.2026 10:30
Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Barnavernd Garðabæjar skoðar nú hvort framið hafi verið brot á barnaverndarlögum á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Innlent 22.3.2026 12:27
Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis. Innlent 20.3.2026 16:24
Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Ingvar Smári Birgisson, lögmaður Péturs Gauts, segir mikilvægt fyrir skjólstæðing sinn að hann fái úr því skorið hvort hann eigi að þurfa að þola aðra eins meðferð og þá að látið sé að liggja að hann sé sekur um einn alvarlegasta glæp sem um getur. Innlent 20.3.2026 16:02
Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Fjölgun kynferðisbrota gegn börnum í leikskólum kallar á skýr og tafarlaus viðbrögð. Hér er ekki svigrúm fyrir tafir, afsakanir eða flókin ferli sem tefja aðgerðir. Skoðun 19.3.2026 06:15
Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Hæstiréttur hefur ómerkt dóms Landsréttar yfir manni á þrítugsaldri, sem var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga þrettán ára stúlku og áreita aðra stúlku kynferðislega. Hæstiréttur vísaði til þess að óhjákvæmilegt væri að Landsréttur mæti sjálfstætt hvort það leiddi af þroska brotaþola sem og atvikum öðrum hvort hún hafi verið bær til þess að veita gilt samþykki fyrir samræði við manninn. Landsréttur þarf því að taka málið fyrir á ný. Innlent 18.3.2026 15:55
Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Málið sem upp kom á Akranesi og snýst um grun um kynferðisbrot leikskólastarfsmanns gegn barni er í forgangi hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Málið er á afar viðkvæmu stigi. Innlent 18.3.2026 10:59
Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Ungur karlmaður var handtekinn á Akranesi í gær, grunaður um að hafa brotið kynferðislega á leikskólabarni. Maðurinn var starfsmaður á leikskólanum. Innlent 17.3.2026 21:57
Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Pósturinn hefur sent Andrés Pál Ragnarsson í leyfi en hann var í desember dæmdur fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni gagnvart fjórtán ára barni. Pósturinn segist taka málið alvarlega og að þau ætli að endurskoða verklag og ferla í kjölfar þessa máls. Innlent 16.3.2026 11:49
Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Karlmaður sem dæmdur var fyrir að nauðga fjórtán ára barni starfar við akstur og dreifingu pósts í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra. Gerandi og þolandi eru bæði búsett í sveitarfélaginu. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að verklag fyrirtækja og öryggismat sé endurskoðað þegar starfsmenn eru sakfelldir fyrir svo alvarleg brot. Hinn dæmdi segist vera fjölskyldumaður og ekki hættulegur. Innlent 16.3.2026 06:45
„Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ „Mig langar að opna umræðuna um það að strákar geti líka orðið fyrir heimilisofbeldi.“ Þannig hefst frásögn Brynju Ýrar Baugsdóttur, móður 18 ára pilts sem varð fyrir margvíslegu ofbeldi af hálfu fyrrverandi kærustu. Brynja segir að reynsla sonar hennar hafi opnað augu hennar fyrir veruleika sem fáir tali um opinberlega, þrátt fyrir að slíkar aðstæður séu ekki eins sjaldgæfar og margir halda. Innlent 15.3.2026 10:01
Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrekað. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ljósmyndað athæfi sitt og birt ljósmyndir af því á netinu og að hafa í fórum sínum barnaníðsefni, sem sýnir meðal annars kornabörn. Innlent 13.3.2026 12:45
Samræmd viðbrögð fullorðinna skipta öllu þegar barn verður fyrir ofbeldi Öryggi barns getur oltið á einu samtali eða einu réttu viðbragði. Þegar barn verður fyrir ofbeldi skiptir því sköpum hvernig fullorðin bregðast við. Foreldrar og fagfólk þurfa að vita hvernig á að bregðast við og samræma viðbrögð, óháð því hvort málið kemur upp í skóla, frístund eða heima. Öryggi barna byggir á sameiginlegum verkfærum og samstilltum viðbrögðum. Skoðun 11.3.2026 15:00
Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni „Mér persónulega bara finnst klám, að nota það sem hugmyndabanka, vera hræðileg hugmynd. Klám er bara ofbeldi. Það er mjög létt að sjá þetta, krakkarnir fá síma og það er mjög létt að fá aðgang að þessu. Og það ætti að útskýra fyrir krökkum að þetta sé ekki raunveruleikinn. Þetta er bara ofbeldi gegn konunni, að konan sé að gera hluti sem hún vill ekki gera. Vanalega er þetta mansal og svoleiðis,“ segir Jason Singh Sandhu, 14 ára nemandi í Lækjaskóla. Lífið 11.3.2026 12:32
Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Ein þeirra mörgu sem varð fyrir hræðilegu ofbeldi í æsku á barnaheimilinu á Hjalteyri telur stjórnvöld enn og aftur hafa brugðist hópnum. Hún fagnar viðbrögðum ráðamanna við Bakkakotsmálinu en veltir fyrir sér af hverju engin viðbrögð komi fram við ótal erindum Hjalteyrabarna. Mörg þeirra upplifi að þau skipti engu máli. Innlent 10.3.2026 20:50
Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt Gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti Þorvarðssyni, sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði, hefur verið framlengt til 3. apríl. Aðalmeðferð í málinu hefst eftir tvær vikur. Innlent 9.3.2026 10:34
Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. Innlent 5.3.2026 16:25
Önnur hver stelpa beðin um nektarmyndir og fær klámfengin skilaboð Ofbeldi í nánum samböndum unglinga er risastórt mál að mati ungmenna sem komu saman í Hafnarfirði dag til að ræða málið og finna lausnir. Verkefnastýra hjá Barnaheillum segir birtingarmyndir ofbeldisins oft grófari í dag en áður. Brýnt sé sé að stjórnvöld bregðist við. Innlent 4.3.2026 19:31
Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ, tjáði sig í fyrsta skipti um ofbeldi sem hann varð fyrir á unga aldri á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi í morgun. Hann lýsti mikilvægi þess að koma til móts við börn sem eiga í erfiðleikum. Innlent 4.3.2026 16:57
Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Börn sem lenda í vanda koma ekki endilega úr „slæmum" aðstæðum. Rannsóknir sýna að margir samverkandi áhættuþættir geta leitt til ofbeldis, til að mynda vanræksla, einelti, þroskaraskanir eða erfiðleikar innan fjölskyldunnar. Skoðun 2.3.2026 11:00
Þúsundir í slæmri stöðu, stjórnvöld verði að bregðast við Framkvæmdastjóri Einstakra barna segir velferðarkerfið hafa brugðist stórum hluta þeirra næstum níu hundruð barna sem glíma við sjaldgæfa sjúkdóma. Aðstandendur rekist oftar en ekki á veggi sem hafi þungbær áhrif. Nauðsynlegt sé að hefja undirbúning að miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma. Innlent 26.2.2026 20:49
Roma-börn og mörk ríkisvaldsins Saga Roma-barna í Evrópu er ekki siðferðileg frásögn heldur skjalfest saga stjórnsýslulegrar framkvæmdar. Í fjölmörgum ríkjum voru börn tekin úr umsjá foreldra sinna á grundvelli félagslegra og menningarlegra viðmiða sem síðar hafa verið metin ófullnægjandi og í mörgum tilvikum óréttmæt. Efnahagsleg fátækt, óstöðug búseta og flökkulíf voru víða lögð að jöfnu við uppeldislega vanhæfni án þess að fyrir lægju staðfest atvik um ofbeldi, misnotkun eða alvarlega vanrækslu. Skoðun 24.2.2026 22:33
Kerfið mikið breytt frá því að Barnaverndarstofa var lögð niður Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, segir ekki sjálfgefið að mál á borð við Bakkakotsmálið myndi berast inn á sitt borð. Barnaverndarþjónustan, sem hefur eftirlit með börnum í fóstri, ætti hins vegar að bregðast við og málið að rata til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Innlent 20.2.2026 12:20
Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Karlmaður hefur verið dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar í Landsrétti fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega á stjúpdóttur sinni þegar hún var sjö og átta ára. Hann bar fyrir sig að hann væri haldinn kynferðislegri svefnröskun og hefði verið sofandi þegar hann braut á stúlkunni. Landsréttur taldi sannað að hann hefði verið vakandi þegar hann snerti kynfæri stúlkunnar og rass og fróaði sér við hlið hennar. Innlent 19.2.2026 16:40
„Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar að karlmaður á miðjum aldri hafi reynt í gær að lokka fjórar níu ára gamlar stúlkur upp í sendiferðabíl sinn í stað fyrir súkkulaði. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og móðir einnar stúlkunnar, segir atvikið áminningu til foreldra um að fræða börn sín. Innlent 19.2.2026 11:44