Landspítalinn
1 2 3 4 5 6 … 65 ›
Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. Innlent 12.2.2026 23:01
Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum og þannig myndi legurýmum fjölga svo hægt væri að létta á álaginu á bráðamóttökunni. Innlent 12.2.2026 17:57
Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgrárri Toyoto Aygo sem stolið var af bílastæði Landspítalans við Hringbraut. Innlent 12.2.2026 16:01
Ekki ég! Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð. Skoðun 12.2.2026 16:01
Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við. Innlent 12.2.2026 12:00
Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga. Innlent 11.2.2026 20:26
Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. Innlent 11.2.2026 20:24
Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. Innlent 11.2.2026 19:45
Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis. Innlent 11.2.2026 12:47
Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Starfsemi Bryndísarhlíðar, sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala, mun hefjast innan tíðar. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár. Innlent 10.2.2026 19:35
Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um opnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins. Innlent 10.2.2026 13:35
Að liggja á göngum sjúkrahúsa Ég heimsótti ömmu mína á landspítalann þegar hún lá þar sína síðustu legu. Ég var smá tíma að finna hana, því ekki var hún á neinni deild. Mörgum rúmum hafði var raðað í röð með veggjum ganga spítalans, og ég man enn hvað ég var hissa á þessum slæmu aðstæðum. Skoðun 7.2.2026 16:00
Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Formaður Læknafélags Íslands segir stöðuna á Landspítalanum aldrei hafa verið verri, sífellt séu ný met slegin í fjölda sem liggi á bráðamótttökunni og einnig hafi nýtt met fallið á dögunum en nú bíði yfir hundrað manns á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými. Hún segir nýja hugmynd að lausn með ólíkindum og spyr hvort næsta skref sé að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna? Innlent 7.2.2026 10:40
Það er pláss fyrir einn aldraðan einstakling í stofunni hjá mér Eins og komið hefur fram í umræðunni undanfarna daga hefur staða Landspítalans aldrei verið verri. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaraðstigi alla daga í rúmt ár. Sífellt eru ný met slegin í fjölda þeirra sem liggja á bráðamóttökunni og komast hvorki lönd né strönd. Skoðun 7.2.2026 08:01
Vökudeild Landspítala í 50 ár Við erum fjölmörg sem gleðjumst og fögnum um þessar mundir hálfrar aldar afmæli Vökudeildar Landspítala. Vökudeildin tók til starfa 2. febrúar árið 1976 og markaði byltingu í umönnun og meðferð nýbura hér á landi. Skoðun 6.2.2026 08:00
Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis segir flesta þá sem smitist af berklum aldrei veikjast af berklasjúkdómi. Áhyggjur séu fyrir hendi að fleiri gætu veikst í viðkvæmum hópum sem séu líklegri til að veikjast en aðrir. Enginn hefur látist á Landspítala á þessu eða síðasta ári af völdum berkla. Innlent 4.2.2026 12:22
Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur. Innlent 4.2.2026 07:53
„Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Slæmar vinnuaðstæður og þrengsli á bráðamóttöku Landspítalans geta útsett starfsfólk og sjúklinga fyrir ýmsum sýkingum að mati framkvæmdastjóra hjá Landspítalanum. Formaður Læknafélags Íslands segir starfsstéttina í töluverðu uppnámi í kjölfar berklasmits sem átti sér mögulega stað á bráðamóttökunni. Innlent 3.2.2026 20:36
Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. Þá getur vel verið að þeir hafi smitast af bakteríusýkingunni fyrir mörgum árum. Innlent 3.2.2026 17:18
Hundrað–múrinn rofinn! Við sem störfum í kerfinu höfum beðið eftir þessum degi, ekki með spenningi og eftirvæntingu eins og oftast er þegar ákveðnum áfanga er náð heldur með kvíðahnút í maga og sorg í hjarta. Skoðun 29.1.2026 15:01
Nýi Landspítalinn: klúður sem enginn þorir lengur að ræða Nýi Landspítalinn var kynntur sem eitt mikilvægasta innviðaverkefni Íslandssögunnar. Hann átti að tryggja framtíð heilbrigðisþjónustu, bæta öryggi sjúklinga og skapa nútímalegt háskólasjúkrahús. Skoðun 29.1.2026 10:31
Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Hjalti Már Björnsson bráðalæknir ritar pistil á Vísi þar sem hann lýsir þeim hörmungum sem áfengisneysla hefur leitt yfir mannskepnuna. Innlent 28.1.2026 11:15
Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. Innlent 22.1.2026 15:59
Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu. Innlent 20.1.2026 20:40
Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Fleiri en þrjátíu hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi það sem af er degi vegna flughálku sem beið landsmanna á sunnan og vestanverðu landinu. Meiðslin hafa mörg hver verið alvarleg og mörg umferðaróhöpp og slys má rekja til hálku á vegum. Innlent 20.1.2026 11:52
Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Fyrirséð er að mikið verði að gera á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa og bið gæti myndast, að sögn upplýsingafulltrúa spítalans. Á þriðja tug manna höfðu leitað á móttökuna vegna slíkra slysa í morgun. Innlent 20.1.2026 10:35
Fífilsgata verður Túnfífilsgata en ekki Hlíðarfótur Gatnanafnanefnd hefur samþykkt að breyta nafni Fífilsgötu í Túnfífilsgötu. Nefndin hafði áður ákveðið að breyta nafninu götunnar í Hlíðarfótur því nafnið væri of líkt nafni annarrar götu, Vífilsgötu, í Norðurmýri. Innlent 15.1.2026 13:30
Geti ekki haldið áfram að fjölga læknanemum samhliða aðhaldskröfu Unnur Anna Valdimarsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, og Ólafur Ögmundarson, forseti matvæla- og næringarfræðideildar, segja alvarlega stöðu fram undan. Það sé ekki hægt að fjölga nemum í læknisfræði, sjúkraþjálfun og næringarfræði, til dæmis, vegna aðhaldskröfu frá stjórnvöldum. Það geti haft alvarleg áhrif á stöðu mönnunar innan heilbrigðiskerfisins til framtíðar. Innlent 15.1.2026 09:24
Engin fleiri mislingatilfelli greinst Engin ný tilfelli af mislingum hafa greinst frá því að barn greindist með smitsjúkdóminn fyrr í mánuðinum. Fjöldi hefur bólusettur vegna smitsins. Innlent 13.1.2026 11:35
Neyðarástand í uppsiglingu takist ekki að fjölga sjúkraliðum Meðalaldur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ljósmæðra hefur hækkað á síðustu árum samkvæmt nýjum Talnabrunni Landlæknisembættisins. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir þetta áhyggjuefni en á næstu tólf árum muni um sjö hundruð sjúkraliðar hverfa úr stéttinni sökum aldurs. Innlent 8.1.2026 15:50