
Trúmál

Síðasta kynslóðin!
Það er okkar að velja hvort við viljum verða síðasta kynslóðin, eins og aðgerðarsamtökin þýsku nefna sig, sem fær að njóta öryggis og gæða frá náttúrunnar hendi. Til að svo megi ekki verða þurfum við parrhesiu og metanoiu.

Þegar múslimi bað í beinni á Rás 1
Ég starfaði í Neskirkju við Hagatorg í nær 10 ár, hóf þar störf að loknu guðfræðinámi haustið 2006 og lauk störfum vorið 2016 þegar ég fór til framhaldsnáms erlendis.

Biskup Íslands eða þröngra hagsmuna?
Í dag hefjast á ný tilnefningar til biskups Íslands og mega þá 164 starfandi prestar og djáknar Þjóðkirkjunnar tilnefna þrjá frambjóðendur til embættis biskups. Að því loknu gefst sóknarnefndarfólki og öðrum sem gegna trúnaðarstörfum innan kirkjunnar tækifæri til að kjósa biskup fyrir hönd þeirra sem tilheyra Þjóðkirkjunni. Hin útvöldu sem eru á kjörskrá mega tilnefna hvern þann sem uppfyllir skilyrði til biskupsembættis og er starfsfólk Þjóðkirkjunnar á fellilista en aðra má rita í þartilgerða reita við hlið fellilistans.

Tilnefningar í biskupskjöri hefjast á ný
Tilnefningar í biskupskjöri hefjast í dag en um er að ræða aðra umferð eftir að tæknileg vandamál urðu til þess að ekki var hægt að telja atkvæði eftir fyrstu atrennu.

Hebbi sat inni með sakborningum í Geirfinnsmálinu
Herbert Guðmundsson – Hebbi – er gestur í nýjasta hlaðvarpi Einars Bárðarsonar, Einmitt og ræðir þar meðal annars þá tíma þegar hann sat í fangelsi. Þetta var tími sem breytti öllu.

Þarf að endurnýja hjúskaparheit?
Á dagatali okkar keppast þrír dagar um að minna á mikilvægi ástarinnar. Bóndadagur við upphaf Þorra, konudagur við upphaf Góu og yngsti menningargesturinn okkar, Valentínusardagurinn. Ástina þarf að rækta og því er þessi dagaþrenning kærkomin áminning um að nýta hvert tækifæri til að sýna maka okkar hversu dýrmæt hán, hún eða hann er okkur.

Draumur marxista um fría lóð endanlega úti
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni DíaMat – félags um díalektíska efnishyggju um áfrýjunarleyfi í máli félagsins á hendur Reykjavíkurborg. Félagið höfðaði málið eftir að borgin neitaði að úthluta félaginu ókeypis lóð fyrir starfsemi þess.

75 börn
Í 24.kafla Lúkasarguðspjalls er sagt frá tveimur mönnum á göngu til þorpsins Emmaus, Kristur upprisinn slæst í för með þeim en það segir að augu mannanna tveggja hafi verið svo blinduð að þeir þekktu hann ekki. (Lúk.24:17)

Að taka mark á konum
Hið virta tímarit London Review of Books heldur árlega fyrirlestraröð í British Museum þar sem framúrskarandi fræðimenn og fyrirlesarar fá vettvang til að setja fram hugmyndir sínar. Fyrirlestrarnir vekja jafnan athygli og fyrir nokkru flutti prófessor í klassískum fræðum við Cambridge háskóla, að nafni Mary Beard.

Tilnefningar hefjast 7. mars og kosningar 11. apríl
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur tilkynnt forsætisnefnd kirkjuþings ákvörðun sína um að hefja á ný kosningu til embættis biskups Íslands og forsætisnefnd lagt blessun sína yfir fyrirkomulagið.

Hjónabönd samkynja para leidd í lög í Grikklandi
Grikkland varð í gær fyrsta ríkið þar sem meirihluti íbúa tilheyrir kristinni rétttrúnaðarkirkju til að heimila hinsegin fólki að ganga í hjónaband.

Tilnefningarferlið hefst á ný 7. mars næstkomandi
Forsætisnefnd kirkjuþings hefur samþykkt tillögu kjörstjórnar þjóðkirkjunnar um að tilnefningarferlið fyrir biskupskjör hefjist á ný þann 7. mars næstkomandi.

Karl Sigurbjörnsson biskup er látinn
Karl Sigurbjörnsson biskup lést í morgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík en hann var 77 ára að aldri.

Gátu ekki „opnað umslögin“ en taka aftur við tilnefningum á föstudag
Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar hefur ákveðið að tilnefningarferlið í fyrirætluðu biskupskjöri, sem hófst 1. febrúar síðastliðinn og lauk á hádegi í gær, sé enn í gangi en að endurtaka þurfi tæknilega framkvæmd þess.

Engin moska við Suðurlandsbraut?
Útlit er fyrir að umdeildar fyrirætlanir um að reisa mosku við Suðurlandsbraut verði að engu en frestur Félags múslima á Íslandi til að byggja á umræddri lóð rennur út í sumar.

Karlinn í skýjunum
Myndmál og myndhverfingar eru nauðsynlegar öllum manneskjum til að geta tekist á við lífið, til að geta greint tilveruna og notið hennar. Trúarlegt myndmál er einmitt það, tilraun til að greina og skilja tilveru okkar með merkingarbærum hætti.

Ekki fallist á að fordómar gegn múslimum hafi verið ástæðan
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum braut ekki lög með því að endurnýja ekki ráðningu manns í starf landamæravarðar á Keflavíkurflugvelli sem taldi sig vera mismunað vegna trúar sinnar. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála.

Sádi-Arabar opna fyrstu áfengisverslunina í sjötíu ár
Til stendur að opna fyrstu áfengisverslunina í Sádi-Arabíu í meira en sjötíu ár. Þar mun diplómötum sem ekki eru múslimar standa til boða að versla sér áfengi í hóflegu magni.

Kristinfræði og trúarbragðafræði til stúdentsprófs
Á Alþjóðlega menntadeginum, sem í ár hefur frið og baráttu gegn hatursorðræðu að leiðarljósi, hvet ég menntamálayfirvöld til að stórauka fræðslu um trú og trúarbrögð.

Vígði nýtt hindúahof þar sem áður stóð moska
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hóf í dag vígsluathöfn stórs hindúahofs í Ayodhya á reit þar sem áður stóð moska. Miklar deilur hafa staðið um staðinn síðustu aldirnar, en BJP-flokkur Modi, þjóðefnisflokkur hindúa, hefur gert mikið úr vígsluathöfninni, nú þegar styttist í þingkosningar.

Börnum lofað
Fátt er dýrmætara í þjónustu prests en að vera boðinn til skírnar.

Leynigöngum gyðinga í Brooklyn lokað og níu handteknir
Lögreglan í Brooklyn í New York-borg handtók níu meðlimi hasidíska gyðingasamfélagsins á mánudag vegna leyniganga sem þeir höfðu grafið frá höfuðstöðvum Chabad-Lubavitch-hreyfingarinnar að sögufrægri sýnagógu.

Heimsþekktur og dáður predikari reyndist úlfur í sauðagæru
Rannsókn BBC hefur leitt í ljós fjölda ásakana um pyntingar og nauðganir TB Joshua, leiðtoga einnar stærstu kristnu kirkju heims. Tugir meðlimir safnaðar Synagogue Church of all Nations (Scoan), hafa stigið fram og lýst hroðaverkum trúarleiðtogans.

Undur jólanna!
Jólunum er lokið. Sennilega lauk þeim fyrir þó nokkru síðan hjá allflestum. En miðað við hina klassísku 13 jóladaga lauk jólahátíðinni formlega á laugardaginn var, á þrettándanum

„Biskupinn á að gæta þess að prestar séu ekki bara á einhverju egóflippi“
Heitar umræður sköpuðust í Pallborðinu á Vísi um framtíð þjóðkirkjunnar og hlutverk hennar. Nýr biskup verður kjörinn í mars og hafa þegar fjórir gefið kost á sér í embættið. Tilnefningar til biskups þurfa að berast milli 1. og 6. febrúar og mun kosning standa yfir frá 7. mars til 12. mars.

Pallborðið: Biskupskjör og staða þjóðkirkjunnar
Ár er liðið frá því að Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands greindi frá því að hún hygðist láta af störfum. Síðan þá hefur nokkuð vatn runnið til sjávar; Agnes sem var ekki lengur embættismaður samkvæmt nýjum lögum var „endurráðin“ að loknum skipunartíma sínum en úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar sagði þá ráðstöfun „markleysu“.

Óboðinn í jarðarför fjölskyldumeðlims og var tilkynntur til lögreglu
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur úrskurðað að embætti ríkislögreglustjóra beri að veita manni aðgang að afriti símtals til neyðarlínunnar. Fyrir liggur að maðurinn er viðfang símtalsins, en í úrskurðinum kemur fram að hann hafi mætt óboðinn í jarðarför og dóttir hinnar látnu hafi tilkynnt hann til lögreglu vegna þess.

Séra Ninna Sif og séra Guðmundur Karl bætast í hópinn
Þau séra Ninna Sif Svavarsdóttir og séra Guðmundur Karl Brynjarsson munu gefa kost á sér í embætti biskups Íslands, að því gefnu að þau hljóti nægilega margar tilnefningar.

Um jafnræði trú- og lífsskoðunarfélaga
Farsæl fjölmenning byggir á þeirri forsendu að trúfélög, stór sem smá, geti starfað og blómstrað án íþyngjandi lagaumhverfis.

Gyðingahatur, vinstri sinnar og Kristur
Grein í Morgunblaðinu 27. 11. ´23 ber yfirskriftina Gyðingaandúð. Höfundur er fyrrverandi kennari. Í upphafi greinarinnar stendur, - „Hatursbylgjur ganga yfir hinn vestræna heim sem af barnaskap og andvaraleysi hefur liðið og stuðlað að innfluttningi fólks með óaðlganlega menningu, viðhorf, trúarbrögð og siði.