
Skotárásir í Bandaríkjunum

Fréttamaður og ung stúlka myrt nærri vettvangi annars morðs
Bandarískur sjónvarpsfréttamaður og níu ára stúlka hafa verið skotin til bana í nágrenni Orlando í Flórída, nærri vettvangi annars morðs sem hafði verið framið fáeinum klukkustundum fyrr. Sami maðurinn er grunaður um árásirnar.

Morðingi Nipsey Hussle í minnst 60 ára fangelsi
Maðurinn sem myrti rapparann Nipsey Hussle hefur verið dæmdur í minnst 60 ára fangelsi. Hann gæti setið inni til dauðadags.

Sex skotin til bana í smábæ
Sex létust í röð skotárása í smábænum Arkabutla í Mississippi í Bandaríkjunum í dag. Einn hefur verið handtekinn, grunaður um ódæðið.

Lífstíðarfangelsi yfir hvítum þjóðernissinna vegna fjöldamorðsins í Buffalo
Ríkisdómstóll í New York dæmdi hvítan þjóðernissinna sem skaut tíu blökkumenn til bana í stórmarkaði í borginni Buffalo í fyrra í lífstíðarfangelsi í dag. Karlmaður sem var viðstaddur dómsuppkvaðninguna reyndi að ráðast á sakborninginn.

Þrír skotnir til bana í háskóla í Michigan
Að minnsta kosti þrír létust og fimm særðust hið minnsta þegar byssumaður hóf skothríð á svæði Ríkisháskólans í Michigan (e. Michigan State University (MSU)) í East Lansing í Bandaríkjunum í nótt.

Tveir handteknir fyrir að myrða sex úr sömu fjölskyldu
Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morð sex einstaklinga úr sömu fjölskyldu í smábænum Goshen í Kaliforníu í janúar. Meðal þeirra myrtu voru tíu mánaða gamalt barn og sextán ára móðir þess.

Þekkti fórnarlömb sín ekki og tilefnið enn óljóst
Hinn 72 ára gamli Huu Can Tran þekkti ekkert af þeim ellefu fórnarlömbum sínum sem hann skaut til bana í Monterey Park í Kaliforníu aðfaranótt síðasta sunnudag. Tran myrti ellefu manns og særði níu þegar hann skaut á hóp eldri borgara í danssal í bænum, þar sem verið var að halda upp á nýtt tunglár.

Hafði aldrei séð byssu áður en hann afvopnaði fjöldamorðinga
Hinn 26 ára gamli Brandon Tsay afvopnaði Huu Can Tran eftir að sá síðarnefndi hafði myrt tíu manns í danssal í Kaliforníu um helgina. Í myndbandi úr öryggismyndavél má sjá þegar Tsay og Tran börðust um vopnið í smá tíma áður en Tran flúði vettvang.

Sjö látnir eftir annað fjöldamorðið í Kaliforníu á fáeinum dögum
Lögregla í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið 67 ára karlmann eftir að hann skaut sjö manns hið minnsta til bana á tveimur bóndabæjum í Half Moon Bay, suður af San Francisco, í gærkvöldi.

Tveir nemendur látnir eftir skotárás
Tveir nemendur skóla, sem er ætlaður ungmennum sem eiga erfitt uppdráttar í hefðbundnu skólakerfi, eru látnir eftir skotárás. Einn starfsmaður var alvarlega særður í árásinni.

Árásarmaðurinn í Monterey fannst látinn í sendiferðabíl
Lögregla í Kaliforníu hefur staðfest að maðurinn, sem grunaður er um að hafa skotið tíu manns til bana í dansstúdíói í Monterey á laugardagskvöld, hafi fundist látinn í sendiferðabíl.

Tveggja tíma umsátri lokið og birta mynd af meintum árásarmanni
Lögreglan í Monterey hefur nú lokið umsátursaðgerðum vegna leitar að manninum sem skaut tíu manns til bana á skemmtistað í bænum í nótt. Lögreglan vestanhafs hefur ekki viljað gefa út hvort meintur árásarmaður hafi verið í bílnum eða ekki.

Skaut tíu til bana og gengur enn laus
Maður skaut minnst tíu til bana og særði tíu til viðbótar í bæ skammt frá Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Umfangsmikil hátíð stóð yfir í bænum Monterey Park vegna nýs tunglárs og voru tugir þúsunda manna í bænum.

Tekin af lífi með barnið í höndunum
Lögreglan í Tulare-sýslu í Kaliforníu segir allt útlit fyrir að morðin á sex einstaklingum í smábænum Goshen í morgun hafi verið aftökur. Móður á táningsaldri var á flótta undan morðingjunum með tíu mánaða gamalt barn hennar er þau voru bæði tekin af lífi.

Fjórir ættliðir myrtir í smábæ í Kalíforníu
Sex manneskjur allar nema ein úr sömu fjölskyldu voru skotnar til bana í smábæ í Kalíforníu í Bandaríkjunum í fyrradag.

Tapaði kosningum og lét skjóta á hús Demókrata
Fyrrverandi frambjóðandi Repúblikanaflokksins til ríkisþings New Mexico í Bandaríkjunum var handtekinn í gær. Hann er grunaður um að hafa greitt mönnum fyrir að skjóta á hús fjögurra Demókrata í ríkinu og tekið þátt í minnst einni skotárás.

Sex manna fjölskylda skotin til bana í Kaliforníu
Sex manna fjölskylda, þar á meðal sex mánaða gamalt barn og sautján ára móðir barnsins, var skotin til bana í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum í dag. Tveir eru grunaðir um morðin en þeir hafa ekki verið handsamaðir.

Kennari enn þungt haldinn eftir að sex ára nemandi skaut hann
Ástand kennara sem var skotinn af sex ára gömlum nemanda sínum í grunnskóla í Virginíu í Bandaríkjunum á föstudag er sagt stöðugt en alvarlegt. Barnið var í haldi lögreglu fyrst eftir skotárásina en yfirvöld hafa ekki viljað segja hvar það er nú vistað.

Nítján ára skotinn til bana í Mall of America
Nítján ára karlmaður var skotinn til bana í einni stærstu verslunarmiðstöð heims í gær. Mikil skelfing greip um sig í verslunarmiðstöðinni sem lokað var í klukkustund. Árásarmaðurinn er ófundinn.

Tory Lanez sakfelldur fyrir að hafa skotið Megan Thee Stallion
Kanadíski rapparinn Tory Lanez hefur verið sakfelldur fyrir að hafa skotið rapparann Megan Thee Stallion í fótinn árið 2020. Refsingin gæti numið yfir 22 ára fangelsi. Líklegt er að Lanez verði sendur úr landi.

Lýsti fyrir dómi hvernig hún varð fyrir skotárás af hendi Tory Lanez
Bandaríski rapparinn Megan Thee Stallion lýsti fyrir kviðdómi í gær áfallinu sem hún varð fyrir þegar rapparinn Tory Lanez skaut hana í fótinn í júlí 2020.

Ákært fyrir hatursglæpi vegna árásarinnar á Club Q
Saksóknarar í Colorado hafa ákært árásarmanninn sem skaut fimm til bana og særði sautján á Club Q, skemmtistað fyrir hinsegin fólk, í Colorado Springs í síðasta mánuði í 305 ákærum og þar á meðal fyrir hatursglæpi og morð.

Lýsir yfir gjaldþroti í kjölfar skaðabótadóma
Samsæringasmiðurinn umdeildi Alex Jones hefur lýst yfir gjaldþroti. Hann var nýlega dæmdur til að greiða aðstandendum fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook árið 2012 nærri því einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur.

„Hann hagaði sér eins og hann væri á veiðum“
Maðurinn sem skaut sex samstarfsmenn sína til bana í Walmart í Virginíu í Bandaríkjunum í vikunni, keypti byssuna sem hann notaði nokkrum klukkustundum áður. Hann skaut sex undirmenn sína til bana í versluninni og særði sex til viðbótar áður en hann svipti sig lífi.

Tilefni árásarinnar á Club Q liggur ekki fyrir enn
Anderson Lee Aldrich, sem grunað er um að hafa skotið fimm manns til bana í næturklúbbi í Colorado í Bandaríkjunum um helgina, verður ekki sleppt úr haldi gegn tryggingu. Það kom fram þegar Aldreich var flutt fyrir dómara í gærkvöldi.

Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin
Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag.

Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu
Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar.

Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum
Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni.

Tvær hetjur yfirbuguðu árásarmanninn
Sá sem er grunaður um að hafa orðið fimm að bana á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags er 22 ára karlmaður. Skemmtistaðurinn þakkar hetjum sem voru inni á staðnum og yfirbuguðu árásarmanninn.

Fimm skotin til bana í árás á hinsegin skemmtistað í Colorado
Fimm voru skotnir til bana á hinsegin skemmtistaðnum „Q“ í Colorado Springs í Bandaríkjunum nú aðfaranótt sunnudags. Átján særðust í árásinni.