

Friðrik Smári Björgvinsson og Jón H.B. Snorrason hafa ekki viljað upplýsa hvað gert var við greinargerð Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu.
Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins var í viðtali hjá Andra Ólafssyni í Ísland í dag.
Verjendur í umfangsmiklu fíkniefnamáli vilja fæa frestað málsmeðferð fyrir Hæstarétti í ljósi þess að hafin er sakamálarannsókn á lögreglufulltrúa sem stýrði tálbeituaðgerð sem miður fór í málinu.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir segir að ekki hafi náðst að skoða málið. Tíðindi af rannsókninni hafi borist embættinu í dag.
Málið barst héraðssaksóknara í gær en ásakanir hafa verið háværar í lengri tíma.
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðsúrskurð í héraði yfir manni sem grunaður er um að hafa átt í óeðlilegum samskiptum við rannsóknarlögreglumann hjá fíkniefnadeild.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni frá því á fimmtudag á grundvelli úrskurðar héraðsdóms.
Karl Steinar Valsson segist hafa skilað greinargerð vegna ásakana á hendur lögreglufulltrúa í fíkniefnadeildinni árið 2011.
Von á ákvörðun Hæstaréttar í máli hans í dag.
Framundan er málsmeðferð í Hæstarétti í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri móður og íslenskum karlmanni í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem misfórst hrapalega.
Í áraraðir hafði verið kvartað yfir lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild lögreglunnar vegna gruns samstarfsfélaga um óeðlileg samskipti við brotamenn.
Atli Gíslason fór fyrir viðamikilli rannsókn á störfum lögreglu fyrir tuttugu árum. Skýrslan var aldrei gerð opinber.
Fyrrverandi yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar neitar að nokkuð athugavert hafi verið við vinnubrögð sín.
Níu starfsmenn fíkniefnadeildar lögreglu lýstu yfir vantrausti á hendur samstarfsmanni sínum við yfirmann á liðnu ári. Um enn eitt dæmið var að ræða þar sem efasemdir voru uppi um heilindi hans í starfi.
Tálbeituaðgerð lögreglu við Hótel Frón lauk á óvæntan hátt þegar sendisveinn var handtekinn þegar allt virtist vera á áætlun.
Ómar Smári Ármannsson vandar fjölmiðlum ekki kveðjurnar og telur umfjöllun þeirra litast af minnimáttarkennd gagnvart lögreglunni.
Karl Steinar Valsson tjáði starfsmönnum fíkniefnadeildar að alvarlega ásakanir á hendur lögreglumanni í deildinni hefðu verið rannsakaðar og enginn fótur reynst fyrir þeim. Málið var aldrei formlega rannsakað.
Ríkislögreglustjóri segir spillingarmál innan lögreglunnar sjaldgæf. Hann segir samskiptavanda hjá LRH hugsanlega mega rekja til þess að í fyrsta sinn sé kona í forystusætinu.
Verjandi lögreglumannsins sem sleppt var úr gæsluvarðhaldi í dag eftir níu daga dvöl, segir samskipti milli hans og hins grunaða samverkamanns hafa verið til staðar.
Karlmaður á fertugsaldri sem úrskurðaður hefur verið í gæsluvarðhald hefur verið til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglu í lengri tíma en aldrei setið inni.
Karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um að vera samverkamaður lögreglumanns í fíkniefnadeild LRH sem sat í gæsluvarðhaldi frá 29. desember og þar til í dag hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. janúar.
Lögreglumanninum sem setið hefur í gæsluvarðhaldi síðan þann 29. desember síðastliðinn var sleppt úr haldi klukkan 14 í dag en gæsluvarðhaldið átti að renna út á morgun.
Tveir reyndir fíkniefnalögreglumenn eru grunaðir um græsku. Aldrei hefur maður verið fundinn sekur af mútuþægni í röðum lögreglu. Skortur á eftirliti gæti verið ástæða þess.
Grunur leikur á að lögreglumaður hafi fengið greitt fyrir upplýsingar til brotahópa. "Það getur hafa átt sér stað þvingun sem enginn veit af,“ segir lögreglustjóri og minnir á að málið sé enn í rannsókn.
Reyndur fíkniefnalögreglumaður grunaður um alvarleg brot í starfi situr í einangrun á Litla Hrauni. Mál hans hefur átt sér nokkurn aðdraganda og fíkniefnadeild hefur verið undir smásjánni um nokkurn tíma.
Karlmaður um fertugt hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn embættis Ríkissaksóknara á alvarlegum brotum lögreglumanns er í gæsluvarðhaldi.
"Ég hef óskað eftir því að sakarefnið verði borið undir hann svo að það sé hægt að leysa þetta mál,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi mannsins.
Formaður Landssambands lögreglumanna segir að lögreglumenn vilji óháð eftirlit.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri segir að kollegum mannsins verði boðin áfallahjálp.
Ríkissaksóknari fær aðstoð lögreglu við rannsókn á alvarlegum brotum lögreglumanns sem situr í gæsluvarðhaldi. Þingmaður Pírata segir nauðsyn að koma upp virku eftirliti með störfum lögreglu.