Fréttir
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 334 ›
Ísland og ESB munu helst deila um fisk Mikið var rætt um sjávarútvegsmál á fundi sameiginlegrar þingnefndar Alþingis og Evrópuþingsins í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag. Fulltrúar Íslands og ESB telja að einna erfiðast verði að ná samkomulagi um sjávarútvegsmál í aðildarviðræðum. Innlent 6.10.2010 23:13
Tilboð langt undir áætlun Verktakafyrirtækið Háfell átti lægsta tilboð, eða tæplega 179 milljónir króna, í seinni áfanga Suðurstrandavegar sem er um 41% af áætluðum kostnaði, 433 milljónum króna. Innlent 6.10.2010 23:14
Ákærðu benda hver á annan Sakborningarnir þrír í svokölluðu Exeter-máli sérstaks saksóknara vísa hver á annan um ábyrgð á veigamiklum atriðum í málinu. Þetta kemur fram í greinargerðum verjenda sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Enginn þeirra telur þó að lög hafi verið brotin í viðskiptunum. Innlent 6.10.2010 23:14
Gekkst undir lífsýnatöku Karlmaður sem grunaður er um að hafa ráðist á konu í Hveragerði í lok síðasta mánaðar og slasað hana alvarlega hefur undirgengist lífsýnatöku eftir úrskurð Héraðsdómur Suðurlands þar að lútandi. Innlent 6.10.2010 23:14
Fallið frá kröfu meintrar dóttur Krafa Marilyn Felonia Young sem hún gerði í dánarbú skákmeistarans Bobby Fischer fyrir hönd dóttur sinnar hefur verið felld niður eftir að í ljós kom með DNA-rannsókn að Fischer var ekki faðir stúlkunnar. Innlent 6.10.2010 23:13
Vilja úrbætur í avinnumálum Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi standa fyrir opnum borgarafundi í Stapa í Reykjanesbæ kl. 16.30 í dag. Auk þeirra standa fjölmargir hagsmunaaðilar að fundinum og mun fundarstjórn vera í höndum Gylfa Arnbjörnssonar forseta Alþýðusambands Íslands. Innlent 6.10.2010 23:14
Mótmæli gegn niðurskurði Fyrirhugaður niðurskurður í heilbrigðismálum kemur ver við sum svæði en önnur og hefur verið boðað til tveggja borgarafunda til að mótmæla þeim hugmyndum. Innlent 6.10.2010 23:14
Boða til mótmæla í Eyjum Hópur fólks hefur ákveðið að efna til mótmæla á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum klukkan 16.30 í dag. Mótmælin beinast að niðurskurði í heilbrigðismálum og hyggst fólkið mynda hring utan um Sjúkrahúsið í Eyjum. Innlent 6.10.2010 23:14
Skal greiða sekt vegna vændis Maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær til að greiða áttatíu þúsund krónur í sekt vegna vændiskaupa. Annar maður, sem einnig var ákærður fyrir vændiskaup, var sýknaður. Innlent 6.10.2010 23:14
Aldrei fleiri í september Aldrei hafa fleiri ferðamenn sótt Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í septembermánuði en í nýliðnum mánuði. Í tilkynningu kemur fram að alls heimsóttu 29.170 ferðamenn upplýsingamiðstöðina. Innlent 6.10.2010 23:13
Hættir vegna ágreinings við útgefendur Þröstur Haraldsson, ritstjóri Bændablaðsins, hefur sagt upp störfum vegna ágreinings við Bændasamtökin, sem gefa út blaðið. Innlent 6.10.2010 23:13
Færðu lán á milli banka með afslætti Lánasöfn gamla Kaupþings voru færð yfir til Arion banka með sextíu prósenta afslætti. Bæði Arion banki og Íslandsbanki hafa á síðustu átján mánuðum uppfært virði lánasafna, enda reikna þeir með betri heimtum en gert var ráð fyrir í kringum bankahrunið. Innlent 6.10.2010 23:13
Uppgjörið tók eitt og hálft ár Slitameðferð ALMC, sem áður hét fjárfestingarbankinn Straumur, lauk í fyrradag. Ný stjórn tók þá til starfa og tekur hún við af skilanefnd sem stýrt hefur bankanum frá því FME greip inn í reksturinn. Óttar Pálsson, forstjóri félagsins, á sæti í nýju stjórninni. Kröfuhafar Straums eignuðust bankann fyrir mánuði. Innlent 6.10.2010 23:14
Aðför að heilbrigðisþjónustu Bæjarráð Bolungarvíkur mótmælir harðlega þeirri aðför að heilbrigðisþjónustu á svæðinu sem birtist í fjárlagafrumvarpinu. Innlent 6.10.2010 23:13
Vilja ekki léttvægar færslur Algengast er að vinskap á Facebook-samskiptavefnum sé slitið vegna þess að annar aðilinn setur inn ítrekaðar færslur sem hinum þykja ómerkilegar, færslur um stjórnmál eða um trúmál. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á vinslitum á þessum vinsæla samskiptavef. Erlent 6.10.2010 23:14
Styttist óðum í björgunina Námumennirnir þrjátíu og þrír, sem hírast á 700 metra dýpi niðri í lokuðum námugöngum, fengu ástæðu til að fagna í vikunni þegar yfirvöld í Chile sögðust vongóð um að þeim verði bjargað úr prísundinni strax í lok næstu viku. Erlent 6.10.2010 23:13
200 milljarða tilboði í Iceland var hafnað Malcolm Walker, stofnandi og forstjóri bresku lágvöruverðskeðjunnar Iceland Foods, gerði tilboð í fyrirtækið fyrir fjórum mánuðum upp á einn milljarð breskra punda, jafnvirði um tvö hundruð milljarða íslenskra króna. Skilanefnd Landsbankans, sem fer með tæplega sjötíu prósenta hlut í Iceland Foods, leit ekki við því, samkvæmt staðfestum heimildum Fréttablaðsins. Viðskipti erlent 6.10.2010 23:13
Mengað til langframa Óttast er að eiturleðjan sem lak úr súrálsverksmiðju í Ungverjalandi geti valdið alvarlegri mengun í Dóná og víðar í nágrenninu. Erlent 6.10.2010 23:13
Orkuveitan aftengdi neysluvatn fjölskyldu „Nú náum við í vatn eitt hundrað metra leið niður í Leirvogsá," segir Ingibjörg Þorgilsdóttir í Perluhvammi í landi Fitja, þar sem starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur aftengdu kaldavatnslögn inn á land þeirra á fimmtudag. Innlent 1.10.2010 21:16
Reiði almennings skiljanleg Á þriðja þúsund manns mótmæltu á Austurvelli þegar Alþingi var sett í gær. Nær allir mótmæltu friðsamlega, en nokkrir köstuðu eggjum, brauði, bíllyklum og öðru lauslegu að þingmönnum og Alþingi. Innlent 1.10.2010 21:17
Ekki sátt um launafrystingu Kjarasamningar opinberra starfsmanna eru lausir í lok nóvember en Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lýsti því yfir í gær að ekki stæði til að hækka laun þeirra. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, undrast þessi orð ráðherrans. Innlent 1.10.2010 21:16
Veikar efnahagsforsendur „Ég geri ráð fyrir að þetta frumvarp eigi eftir að taka miklum breytingum,“ segir Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd. Innlent 1.10.2010 21:16
Vita ekki hvenær öllu lýkur Fyrst í stað leggur SP-Fjármögnun áherslu á að ljúka endurútreikningi á þeim samningum þar sem einn og sami lántaki hefur verið skráður frá upphafi. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið eigi síðar en fimmtudaginn 7. október næstkomandi. Innlent 1.10.2010 21:16
Stofninn lítill og nýliðun slök Úthafsrækjustofninn mælist enn lítill og er veiðistofninn svipaður og síðustu fjögur ár. Ólíklegt er talið að rækjustofninn vaxi mikið í bráð. Þetta er niðurstaða árlegrar stofnmælingar Hafrannóknastofnunar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land. Innlent 1.10.2010 21:16
Viðskiptavefur opnaður um miðjan mánuð Stefnt er að því að endurútreikningar einföldustu gengislánasamninga Lýsingar verði aðgengilegir um miðjan mánuðinn. „Aðalmálið er að fólk fái rétta stöðu," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar. Innlent 1.10.2010 21:16
Fjallabyggð sameinuð með göngum Héðinsfjarðargöngin á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar verða opnuð í dag. Göngin stytta leiðina á milli bæjarfélaganna tveggja úr 62 kílómetrum í um 15 kílómetra og eru um 11 kílómetrar að lengd. Innlent 1.10.2010 21:16
Níu manns sagt upp störfum Þjóðleikhúsið hefur sagt upp níu fastráðnum starfsmönnum. Lækka þarf launakostnað um 14 prósent milli ára vegna tíu prósent skerðingar á framlögum í fjárlagafrumvarpi ársins, að sögn Ara Matthíassonar, framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins. Innlent 1.10.2010 21:16
Afla á ríkissjóði aukinna tekna með nýjum, hærri og breyttum sköttum Taka á upp bankaskatt, hækka fjármagns-, fyrirtækja- og erfðafjárskatt og breyta ýmsum öðrum sköttum og opinberum gjöldum til að afla ríkissjóði ellefu milljarða í nýjar tekjur á næsta ári. Innlent 1.10.2010 21:16
Fyrri heimsstyrjöldinni lýkur á morgun saga Þjóðverjar ljúka við að greiða stríðsskaðabætur eftir heimsstyrjöldina fyrri á morgun, 92 árum eftir að ófriðnum lauk. Innlent 1.10.2010 21:16
Merkur áfangi í sögu Dalvíkur Ný íþróttamiðstöð verður vígð og tekin í notkun við hátíðlega athöfn á Dalvík í dag. Innlent 1.10.2010 21:16