Aron Elís í úrslitaleik um Evrópusæti - Ísaki skipt af velli í hálfleik Aron Elís Þrándarson er kominn í úrslitaleik um Evrópusæti í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ísak Bergmann Jóhannesson lék aðeins fyrri hálfleik með toppliði Norrköping gegn botnliði Falkenberg í Svíþjóð. 26.7.2020 14:26
Leikmenn Real Madrid undanþegnir reglum um sóttkví Zinedine Zidane og lærisveinar hans í Real Madrid munu geta mætt til Englands í seinni leik sinn við Manchester City, í Meistaradeild Evrópu, án þess að þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví. 26.7.2020 13:30
Missti bikarinn og mölbraut hann Þrátt fyrir þá miklu reynslu sem Branislav Ivanovic hefur af því að lyfta bikurum og fagna titlum þá missti hann og braut glæsilegan verðlaunagrip í fagnaðarlátum eftir að hafa orðið rússneskur bikarmeistari í gær. 26.7.2020 12:45
Brynjólfur vekur umtal: „Þessi maður skilur um hvað fótbolti er“ Brynjólfur Andersen Willumsson hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki en einnig vakið hrifningu vegna framgöngu sinnar það sem af er leiktíð með Breiðablik í Pepsi Max-deildinni. 26.7.2020 12:00
Eitt af þremur mun bjarga lífi sínu Það er útlit fyrir hádramatíska fallbaráttu í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag en ljóst er að aðeins eitt eftirtalinn liða mun halda sæti sínu í deildinni; Aston Villa, Watford eða Bournemouth. 26.7.2020 11:30
Solskjær: Ekki leikurinn sem skilgreinir tímabilið okkar Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, vill ekki gera of mikið úr mikilvægi leiksins við Leicester í dag í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. 26.7.2020 11:00
Evrópumeistarinn náði einu kasti lengra en Ásdís Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, Íslandsmethafi í spjótkasti, varð í 2. sæti á móti í Þýskalandi í gær þar sem hún kastaði á ný yfir 60 metra og veitti ríkjandi Evrópumeistara góða keppni. 26.7.2020 10:30
Thomsen vill fara frá KR - Reiknar með að lækka í launum Tobias Thomsen ætlar að reyna að komast heim til Danmerkur, frá Íslandsmeisturum KR, í næsta mánuði og segist finna fyrir áhuga frá félögum í dönsku 1. deildinni. 26.7.2020 10:00
Elvar í Litháen næstu tvö árin Elvar Már Friðriksson, sem varð Svíþjóðarmeistari í körfubolta með Borås á síðustu leiktíð, er orðinn leikmaður Siauliai í Litháen. 26.7.2020 09:30
Guðbjörg Jóna með besta afrekið en FH-ingar með flesta titla Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir úr ÍR og Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH eru sprettharðasta fólk landsins í dag miðað við það að þau unnu 100 metra hlaup á fyrri keppnisdegi Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Akureyri. 25.7.2020 16:30