Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, fór hörðum orðum um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem hafi skilað brostnum væntingum, stórvesnandi efnahagsástandi og snúið sér að Evrópusambandinu þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi. Íslendingar séu ekki útskiptanlegar einingar. Hann sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda. 10.6.2026 20:43
Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Sturlaugur Haraldsson hefur verið ráðinn sem bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar. 10.6.2026 18:25
Sofandi á akbraut Lögreglunni barst tilkynning um konu í annarlega ástandi sem hafði sofnað á akbraut. Hún var flutt á sjúkrahús. 10.6.2026 17:33
Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Dómsmálaráðherra segir samþykkt Alþingis á frumvarpi sínu um brottfararstöð ekki kalla fram sigurtilfinningu. Með stöðinni sé Ísland að uppfylla sínar skuldbindingar en á sama tíma sé úrræðið íþyngjandi ráðstöfun. 10.6.2026 00:01
Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Lítilli einkaflugvél hlekktist í lendingu á flugvelli Egilsstaða fyrr í dag með þeim afleiðingum að hjól brotnaði. Flugmaðurinn er óhultur. 9.6.2026 23:14
Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Ingi Björn Sigurðsson missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins. Hann kallar eftir betri samræmingu kerfa. 9.6.2026 22:30
Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandaríkjamenn hafa hafið árás gegn Íran eftir að Íranir skutu niður þyrlu Bandaríkjahers. 9.6.2026 21:23
Olíumengun í Kópavogslæk Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn. 9.6.2026 21:06
Handtekinn á bíl með nagladekkjum Ökumaður var handtekinn í Árbæ fyrr í dag fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum auk þess sem bíllinn var búinn nagladekkjum og án númera. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu. 9.6.2026 18:29
„Þetta er hreinn uppspuni“ Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV. 9.6.2026 18:06