Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. október 2026 09:00 Guðmundur Lúther er í landsliðinu í Bakgarðshlaupi. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Guðmundur Lúther Hallgrímsson er einn þeirra.
Guðmundur Lúther, oftast kallaður Gummi Lú, er 39 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Hann hefur mest farið 43 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég var í fótbolta eitthvað fram yfir þrítugt og eftir að ég hætti að spila þurfti ég að finna aðra leið til að fá útrás. En í rauninni byrjaði ég að stunda hlaup af ráði í Covid eins og margir aðrir. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Ég elska að testa mig og prófa nýja hluti, þannig afhverju ekki að prufa Bakgarðinn. Tók fyrst þátt í Heiðmörk árið 2023, en sá Bakgarður er líklega eftirminnilegastur fyrir veðrir sem var. Það var semsagt stormur allan tímann! Hætti ekki að rigna í 1 sek alan þann tíma sem ég var að hlaupa, en þá kláraði ég 100km. Ég hef tekið þátt í 5 Bakgörðum, að meðtölum síðastliðnum Bakgarði í Heiðmörk, þar sem að við í landsliðinu tókum góða æfingu. Guðmundur og Rakel María unnusta hans. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Ef Tommi Jak er í kringum mann, þá er alltaf gleði. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Í maí Bakgarðinum síðastliðnum, þegar að ég náði mínum besta árangri (43 hringir), þá prófaði ég næringu sem að heimsmeistarinn er mikið að vinna með. En það er Cocoa Puffs með súkkulaðimjólk (Hleðsla í mínu tilviki). Ég var ekkert eðlilega spenntur að koma inn úr hverjum hring og fá skál af Cocoa puffs. Kláraði nokkra kassa. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Það toppar enginn mig með Cocoa Puffs-ið. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Ég starfa sem sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu. Önnur áhugamál hjá mér eru t.d. að ferðast til framandi landa, sem og um Ísland.En hvað hreyfingu varðar, þá er ég líka virkur í Hyrox hjá Ultra Form. Auk þess að hlaupa Bakgarð keppir Gummi í Hyrox. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Ég stefni á að slá Íslandsmetið. Vonandi með góðum hópi af fólki. Set markmiðið hátt og veit að ég á mikið inni frá Maí. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Dettur ekki margt vandræðalegt í hug sem að hefur komið fyrir mig, en það skrýtnasta sem ég hef lent í er líklega seinni nóttina í Bakgarðinum núna í maí, en þá var ég byrjaður sjá ofsjónir. Í skóginum sá ég ýmsar verur og trén voru farin að ganga eins og í Lord of the Rings, ég var líka farinn að sjá allskonar skrýtin merki úr pollunum og ég veit ekki hvað. Mjög áhugavert. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Öskjuhlíðin er minn Bakgarður. Það er helst vegna þess að það er meiri stemming og fólk er á víð og dreif um brautina að hvetja. Á meðan að Heiðmörkin er með þægilegri braut, en ef maður fer inn í nóttina, þá er töluvert einmannalegra og minni stemming. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Ég hef fulla trú á öllum í liðinu að geta bætt sig verulega. En sá sem ég held að muni bæta sig mest er Gunnar Lárus og jú líka Tommi. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Minn helsti styrkleiki myndi ég segja að sé að höndla svefnleysið og get troðið kolvetnum í mig endalaust. Helsti veikleiki er líklega hausinn. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Ég man ekki eftir einhverju skrýtnu sem ég hef gert, nema kannski að mig rámar í að ég hafi verið að öskra á mig sjálfan til að vekja mig, en þetta var undir lokin í maí um miðja seinni nóttina þegar að ég var að hlaupa mikið einn. Guðmundur og Tómas saman á hlaupum. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Tommi Jak! Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Kickstart my heart með Motley Crew. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Vá, erfið spurning. Ætli ég myndi ekki segja að ég sé fyrst og fremst góð manneskja og svolítill vitleysingur líka. Ágætis blanda stundum. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Sofa, og svo fæ mér oftast Pönnu pizzu á Dominos. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Stuðullinn er lægstur á Þórdísi. Guðmundur lenti í öðru sæti í Bakgarðinum í Öskjuhlíð 2026. Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Gjörsamlega galið lið!
Bakgarðshlaup Tengdar fréttir Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk. 27. september 2026 11:00 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Sjá meira
Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk. 27. september 2026 11:00