Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. október 2026 09:01 Friðrik Benediktsson lýsir sér sem Eyjamanni með svartan húmor. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Friðrik Benediktsson er einn hlauparanna.
Friðrik er 43 ára Eyjamaður og landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Friðrik hefur mest hlaupið 33 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég byrjaði að hlaupa í ágúst 2018 þegar yngsta dóttir mín fæddist. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Bakgarðshlaup komu mjög snemma inn á radarinn hjá mér og ég fylgdist með keppnum úti áður en þau komu hingað til lands og tók þátt fyrst þegar hann var haldin í annað skipti. Mér finnst mjög heillandi að reyna á hvað líkaminn og hausinn þolir og bakgarðurinn er rétti staðurinn í það. Ég er að taka þátt í þriðja sinn á heimsmeistaramótinu 2022/2024 og núna 2026. Þetta er áttunda skiptið held ég örugglega sem ég er með í bakgarði þó nokkrir hafi bara verið langar æfingar. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Mér og Þorleifi kemur mjög vel saman og alltaf gaman að spjalla við hann og eins fimleikadrottninguna hana Hildi Guðnýju sem er einhver góðhjartaðasta manneskja landsins. En þetta eru allt mjög skemmtilegir karakterar í liðinu og gaman að tala við þau öll. Sportmyndir/Gummi stóri Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Ég borða mikið af eggjum, kartöflum, harðfisk, alveg helling af nammi og alltaf kolvetnadrykki á hringjunum. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Er ekki alveg klár hver er með besta nestið í ár en 2024 var Andri Guðmunds með fulla frystikistu af Egils ísnál. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Þegar ég er ekki hlaupandi þá er ég hugsandi um hlaup flesta daga svo er full vinna að vera með fjölskyldunni. Ég vinn í steypustöð á þungavinnutækjum og sé um þjálfun hjá hlaupahópnum Eyjaskokk. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Það er alltaf bara einn hringur í einu og alltaf markmiðið að fara eins langt og hægt er og trúi því að ég geti gert betur en síðast. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Það vandræðalegasta var eflaust í fyrsta Bakgarðinum sem ég var í. Ég hljóp 16 hringi eiginlega með sama stráknum en kallaði hann örugglega 16 mismunandi nöfnum, bara gat ekki munað hvað hann hét. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? þessi braut finnst mér skemmtilegust af þeim sem eru hér á landi. Elliðaárdalurinn hentar mér mjög vel og gaman að hlaupa hana og mikið af fólki á ferðinni að hvetja. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Þetta er ótrúlega flott lið sem við erum með í ár og mikið af nýjum spennandi hlaupurum en ef ég ætti að segja hver gæti komið mest á óvart væri það Oddur Máni, geggjaður gæi. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Ættli styrkleikinn minn sé ekki hvað ég er stabíll en veikleikinn hvað ég get verið kassalagaður og lokaður (lögum það í ár). Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Það er allskonar skrítnar leiðir til að halda sér gangandi man ekki eftir neinu mjög furðulegu en labba afturábak upp og niður brekkur en alveg pottþétt eitthvað sem ég hef gert sem fólki myndi finnast furðulegt. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Þau eru nú öll dugleg að hvetja mann áfram þega byrjar að ganga illa. Þorleifur er alltaf með góð ráð og ýtir manni vel áfram en held að þetta eigi vel við þau öll sem eru í liðinu þó ég hafi ekki hlaupið með þeim öllum áður. En ef það væri einhver einn sem best væri að líma sig á fyrir mig væri það Þorleifur og Hildur Guðný sem fær mann bara alltaf til að líða vel í kringum sig. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Eitthvað eitt lag til að hlusta á allan tímann, sem er alveg skelfileg tilhugsun, væri örugglega eitthvað gott með Meat loaf bara því þau eru svo löng löginn og margir kaflar í þeim flestum. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Ef ég ætti að lýsa mér þá væri það líklega hvað ég er rólegur góður liðsfélagi með svartan húmor. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Eftir Bakgarðinn verður gert vel við sig með öllum þeim kræsingum sem mig listir og góð hvíld frá æfingum og vinnu í nokkra daga og mikið sofið. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Held að það sé títt nefnd Hildur Guðný sem væri líklegust til að bresta í söng enda er alltaf gaman hjá henni og í kringum hana. Tommi og Gaui eru ekkert ólíklegir heldur en það væri best ef Þorleifur myndi taka lagið en svo er Eyjadrottningin Hekla með bakgrunn í Eyjalögum þannig það væri geggjað ef hún myndi byrja að syngja. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Skemmtilega fjölbreyttir rugludallar.
Bakgarðshlaup Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir Get unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni HM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Sjá meira