Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Handknattleikssamband Íslands hefur sett upp leikjadagskrá fyrir undanúrslit í úrslitakeppni Olís deildar karla og þar þurftu menn að leysa ákveðin vandamál. 18.4.2024 12:30
Týndi Super Bowl hringnum sínum: Grín sem endaði ekki vel Ameríski fótboltamaðurinn Jason Kelce lagði skóna á hilluna eftir síðasta NFL-tímabil en í nýjasta hlaðvarpsþætti þeirra Kelce bræðra kom fram að hann hefur týnt verðmætasta minningargripnum sínum frá ferlinum. 18.4.2024 11:30
Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Margir voru hissa að sjá markahæsta leikmann Manchester City tekinn af velli eftir venjulegan leikmtíma. 18.4.2024 11:00
Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Sebastian Popovic Alexandersson verður næsti þjálfari kvennaliðs Víkings í handbolta en hann hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára. 18.4.2024 10:15
Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Liverpool er í mjög slæmri stöðu fyrir seinni leik sinn í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 3-0 tap á móti Atalanta í fyrri leiknum á Anfield. Seinni leikurinn er í kvöld. 18.4.2024 09:31
„Ólýsanleg stund“ fyrir Elínu Láru sem hljóp við hlið Ólympíueldsins Ísland átti fulltrúa þegar hlaupið var af stað með Ólympíueldinn í Ólympíu í Grikklandi í vikunni. Elín Lára Reynisdóttir segir þessa stund hafa gefið sér mikið. 18.4.2024 09:00
Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Titilvörn Tindastóls hefur verið ein sú lélegasta í sögunni og aðeins algjör hugarfarsbreyting og söguleg endurkoma getur bjargað úrslitakeppninni hjá liðinu. Kannski væri góð byrjun að hlusta aðeins á sérfræðing Körfuboltakvölds. 18.4.2024 08:31
Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti Ítalska félagið Juventus var í gær dæmt til að gera upp við fyrrum leikmann liðsins, Cristiano Ronaldo. 18.4.2024 07:30
Fimleikastelpurnar fá fjórtán milljarða vegna sinnuleysis FBI Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samþykkt að greiða hundrað fórnarlömbum fimleikalæknisins Larry Nassar samanlagt hundrað milljónir dollara í skaðabætur. Bandarískir miðlar segja að þetta sé nánast frágengið. 18.4.2024 06:41
Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram Philadelphia 76ers tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með eins stigs sigri á Miami Heat í umspilinu í nótt en Miami bíður úrslitaleikur á móti Chicago Bulls um síðasta sætið í úrslitakeppni Austurdeildarinnar. 18.4.2024 06:20