Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Aldrei sagt söguna af Social Pete opin­ber­lega

Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir söguna af Social Pete og heimsóknum sínum til Eiðs Smára í London sanna. Sagan sé þó eilítið öðruvísi en oft hefur komið fram.

Kópavogsbær segir skila­boðin ekki af pólitískum toga

Kópavogsbær segir að ákvörðun um að nýta vegg við Hálsatorg við Hamraborg til upplýsingamiðlunar um framkvæmdir í miðbæ bæjarins sé ekki af pólitískum toga. Ákvörðun hafi verið tekin í upphafi árs.

Skemmdarvargarnir skildu eftir „mani­festó“

Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi.

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Ís­land hefur sagt sig frá orkusáttmálanum

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá samningi um orkusáttmála (Energy Charter Treaty, ECT) í ljósi þess að samningurinn gengur gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum. Ráðherra segir engan samning hafa orðið grundvöllur eins margra gerðarmála alþjóðlegra stórfyrirtækja gegn fullvalda ríkjum.

Tala við pabba sinn þvert á full­yrðingar slúðurmiðla

Tvær dætur kántrírokkarans Keith Urban og Hollywoodstjörnunnar Nicole Kidman þær Sunday Rose og Faith Margaret eiga í góðu sambandi við pabba sinn og tala reglulega við hann, þvert á fullyrðingar í slúðurmiðlum. Hjónin skildu að borði og sæng í fyrra og gekk hann að fullu í gegn í janúar.

Yfir­lýsing Icelandair kom flatt upp á flug­menn

Yfirlýsing Icelandair þar sem fram kemur að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjarabaráttu kom flatt upp á Jón Þór Þorvaldsson formann Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir félagið hvergi bangið og munu mæta til leiks til fundar með forsvarsmönnum félagsins á morgun án gremju.

Margir á leið í frí og það getur haft á­hrif á kosninga­nótt

Um fjörutíu prósenta aukning hefur orðið á utankjörfundaratkvæðum í sveitarstjórnarkosningum nú í samanburði við síðustu kosningar árið 2022. Fjöldinn er svo mikill að svo getur farið að úrslit á laugardagsnótt muni ekki liggja fyrir fyrr en þessi atkvæði verða talin en þau eru talin síðust.

Icelandair grunar flug­menn um græsku

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.

Sjá meira