Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. október 2026 13:45 Myndin er úr safni. EPA/LUCA ZENNARO Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lögð inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur.
Þar segir að starfsmaðurinn Darya Shipilova hafi verið 28 ára þegar hún lést. Hún hafi starfað hjá stofnun sem rannsaki skæða faraldra og hafi verið lögð inn á spítala í bænum Shelekhov sem er skammt frá Irkutsk þar sem stofnunin er til húsa. Hún hafi svo dáið tveimur dögum síðar. Samkvæmt upplýsingum Rospotrebnadzor smitsjúkdómastofnun Rússlands greindist hún með lungnabólgu af „óþekktum uppruna.“ CNN hefur eftir stofnuninni að engar örverur sem tengist starfsskyldum starfsmannsins hafi greinst í sýnum sem tekin hafi verið úr sjúklingnum. Þá væri staðan á svæðinu hvað varði smitsjúkdóma óbreytt. Yfirvöld í borginni Baikalsk, skammt frá, hvöttu íbúa um stutta hríð til að forðast ferðalög til Shelekhov og nærliggjandi byggða eftir það sem þau lýstu sem óopinberum upplýsingum um mögulegt pestarsmit. Síðar eyddu þau færslunni af samfélagsmiðlum, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian. „Engar augljósar breytingar eru á daglegu lífi á götunum, en fólk er áhyggjufullt og kvíðið. Heimamenn eru reiðir yfir því að þeim sé ekkert sagt,“ sagði Elena Trifonova, blaðamaður hjá People of Baikal, rússneskum fjölmiðli í útlegð sem sérhæfir sig í málefnum Síberíu. Þrátt fyrir að engin staðfest greining liggi fyrir virðist sem gripið hafi verið til ýmissa varúðarráðstafana víða á svæðinu. Bandaríski fjölmiðillinn Radio Free Europe/Radio Liberty, sem fjármagnaður er af Bandaríkjunum, greindi frá því á mánudag að nokkur sjúkrahús í Irkutsk hefðu verið sett í sóttkví. Þá fullyrti miðillinn að starfsfólk stofnunarinnar þar sem Shipilova starfaði hafi verið einangrað í húsakynnum stofnunarinnar síðan þann 2. október. Haft er eftir sjúklingum á sjúkrahúsi sem og barnaspítala í Irkutsk og Ivano að ættingjum væri ekki leyft að heimsækja þá og að fólki inni á sjúkrahúsunum væri ekki heimilt að fara út. Aðeins mætti koma með mat og persónulega muni. Anna Popova yfirmaður Rospotrebnadzor stofnunarinnar ferðaðist til Irkutsk vegna málsins á föstudag og sat neyðarfund með svæðisbundinni sóttvarnarnefnd vegna málsins. Igor Kobzev, ríkisstjóri Irkutsk-héraðs, hvatti íbúa til að halda ró sinni eftir fund með Popova. Hann sagði í yfirlýsingu á Telegram að ekkert benti til þess að smit væri að berast á milli manna. Guardian segir að sjúkdómar sem kenndir hafi verið við plágur séu enn landlægir í hlutum Síberíu og Austurlanda fjær í Rússlandi. Bakterían lifi í náttúrunni meðal villtra nagdýra og skordýra sem þeim fylgi. Tilfelli í mönnum séu sjaldgæf í Rússlandi. Fyrir grunaða tilfellið í Irkutsk var síðasta skráða smit í manni í landinu árið 2016, þegar tíu ára drengur í Altaí-lýðveldinu í Síberíu smitaðist af pest eftir að hafa hjálpað til við að slátra múrmeldýri.
Rússland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira