Einn alræmdasti njósnari í sögu Bandaríkjanna látinn Robert Hanssen, fyrrverandi alríkislögreglumaður sem þáði mútur fyrir að njósna um Bandaríkin fyrir Rússa, er látinn í fangelsi. Hann er meðal annars talinn hafa verið ábyrgur að hluta til á dauða þriggja sovéskra embættismanna sem njósnuðu fyrir Bandaríkjamenn. 6.6.2023 11:01
Stærsta rafmyntakauphöll heims sögð hafa óhreint mjöl í pokahorninu Bandarísk eftirlitsstofnun sakar Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, og stofnanda hennar um misferli með fjármuni fjárfesta, að starfa án tilskilinna leyfa og brot á aragrúa reglna um verðbréf. Brotunum svipar til þeirra sem komu ljós í rekstri keppinautarins FTX sem varð gjaldþrota í haust. 6.6.2023 08:58
Hafna því að fyrrverandi stjórnandi hafi fengið rafmagnsmarkað upp í hendurnar Sameiginlegt söluferli allra fyrirtækja á heildsölumarkaði með rafmagn í síðasta mánuði var að frumkvæði fyrrverandi starfsmanns Landsvirkjunar sem veitti fyrirtækinu ráðgjöf við sambærilegt söluferli í haust. Ráðgjafinn fékk um 2,3 milljónir króna fyrir söluferlið fyrir Landsvirkjun. 5.6.2023 15:12
Krafa um sömu laun fyrir sömu störf stendur enn út af borðinu Formaður BSRB segir að krafa félagsins um sömu laun fyrir sömu störf standi enn út af borðinu í viðræðum þess við sveitarfélög. Víðtækar verkfallsaðgerðir félagsmanna BSRB hófust í dag sem formaðurinn segir að hafi mikil samfélagsleg áhrif. 5.6.2023 09:13
Tólf sinnum skrifað upp á ormalyf gegn Covid-19 Læknar hafa tólf sinnum skrifað upp á lyf sem er ætlað gegn þráðormum í mönnum gegn Covid-19 frá því að heimsfaraldur kórónuveirunnar hófst árið 2020. Ávísanirnar kunna að hafa verið fleiri þar sem upplýsingar skortir um ástæður þess að vísað var á lyfið og innflutning einstaklinga. 5.6.2023 07:00
Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum. 2.6.2023 15:44
Ný gögn varpa ljósi á hinstu daga Epsteins Jeffrey Epstein þjáðist af svefnleysi og átti erfitt með að aðlagast lífi í fangelsi áður en hann svipti sig lífi árið 2019. Hann var skilinn eftir einn í klefa og fangaverðir trössuðu að fylgjast með honum þrátt fyrir að hann hefði reynt að hengja sig skömmu áður. 2.6.2023 10:15
Stærsti „garðúðari“ sólkerfisins við Satúrnus Hátt í tíu þúsund kílómetra langur vatnsstrókur frá Enkeladusi, ístungli Satúrnusar, sést teygja sig um reikistjörnukerfið eins og gusa úr garðúðara á nýlegum myndum James Webb-sjónaukans. Aldrei áður hefur slíkur strókur sést spanna svo miklar vegalengdir. 1.6.2023 15:18
Ætla að takmarka aðgang Rússa að færeyskum höfnum Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur. 1.6.2023 14:04
Starfsmaður Amazon Ring njósnaði um konur með dyrabjöllumyndavél Fyrrverandi starfsmaður dyrabjöllumyndavéladeildar tæknirisans Amazon njósnaði um konur með myndavélum í bað- og svefnherbergjum um nokkurra mánaða skeið árið 2017. Þetta kemur fram í sátt sem bandarísk yfirvöld gerðu við fyrirtækið vegna brota á persónuverndarlögum. 1.6.2023 10:41