Mismunaði svörtum og frumbyggjum kerfisbundið fyrir dauða Floyd Lögreglan í Minneapolis í Bandaríkjunum sýndi almenna tilhneigingu til þess að brjóta stjórnarskrárbundin réttindi og mismuna svörtum og frumbyggjum. Þetta er niðurstaða rannsóknar dómsmálaráðuneytisins sem var hrint af stað eftir að lögreglumenn urðu George Floyd að bana árið 2020. 16.6.2023 15:40
Risavaxin grjótskriða staðnæmdist steinsnar frá þorpi Þorp í svissnesku Ölpunum slapp naumlega þegar gríðarmikil grjótskriða féll úr fjallshlíð í gærkvöldi. Engar skemmdir urðu á byggingum en þorpið var rýmt fyrir rúmum mánuði vegna hættunar á grjóthruni. 16.6.2023 12:54
Þau látnu eldri borgarar á leið í spilavíti Fimmtán eru nú sagðir hafa látist í árekstri flutningabíls og rútu á hraðbraut í Manitoba í Kanada í gær. Flestir þeirra sem létust voru eldri borgarar sem voru farþegar í rútunni. Tíu til viðbótar eru slasaðir eftir slysið. 16.6.2023 10:39
Stjórnarsáttmáli í höfn tveimur og hálfum mánuði eftir kosningar Fjórir flokkar af hægri vængnum tilkynntu að þeir hefðu náð saman um sáttmála nýrrar ríkisstjórnar Finnlands í gærkvöldi, tveimur og hálfum mánuði eftir þingkosningar í landinu. Petteri Orpo, leiðtogi Sambandsflokksins, verður forsætisráðherra í samsteypustjórninni. 16.6.2023 09:04
Páfi laus af sjúkrahúsi eftir skurðaðgerð Frans páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í Róm þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í dag. Skurðlæknir páfa segir að hann sé nú betri en hann var fyrir aðgerðina. 16.6.2023 08:49
„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“ Aðdáun á alræmdum morðingjum sem hafa framið hryðjuverk á undanförnum árum skín í gegnum samskipti tveggja ungra manna sem eru ákærðir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk. Annar þeirra vakti ítrekað máls á að feta í fótspor þeirra með árásum á einstaklinga og stofnanir. 16.6.2023 07:00
Lykilhráefni lífs í neðanjarðarhafi tungls Satúrnusar Ofgnótt af frumefninu fosfór, sem er nauðsynleg byggingareining lífs eins og við þekkjum það, er líklega að finna í neðanjarðarhafi undir ísskorpi Enkeladusar, tungls Satúrnusar. Efnasambönd sem innihalda frumefnið fundust í einum hringja Satúrnusar sem íshverir Enkeladusar fóðra. 15.6.2023 20:02
Segir Ísland í „stórkostlegum vandræðum“ í útlendingamálum Dómsmálaráðherra segir Ísland í svo „stórkostlegum vandræðum“ í útlendingamálum að það gangi ekki lengur. Hann segir „öfgafulla“ umræðu og ráðherra Vinstri grænna meðal annars standa í vegi þess að hægt sé að taka upp harðari stefnu í málaflokknum. 15.6.2023 09:19
Þrír drepnir og reynt að keyra fólk niður með sendibíl í Nottingham Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglunnar í Nottingham á Englandi grunaður um morð eftir að þrír fundust látnir í miðborginni í nótt. Þrír til viðbótar eru á sjúkrahúsi eftir að reynt var að aka þá niður. Lögregla lýsir atvikinu sem „hryllilegu og sorglegu“. 13.6.2023 09:08
Skilur eftir sig tómarúm í stjórnmálum og viðskiptum Andlát Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er talið geta valdið óróa í ítölskum stjórnmálum á næstunni. Þá liggur ekki ljóst fyrir hver tekur við viðskiptaveldi Berlusconi sem á meðal annars helstu fjölmiðla landsins. 12.6.2023 18:08