Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Einn tveggja manna sem var handtekinn grunaður um stunguárás í Frostafold í Grafarvogi aðfaranótt miðvikudagsins 9. október hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hinn maðurinn sem var handtekinn var látinn laus að skýrslutöku lokinni. 21.10.2024 14:56
Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Karlmaður sem er grunaður um að hafa orðið barnungri dóttur sinni að bana um miðjan septembermánuð var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. nóvember næstkomandi. 21.10.2024 14:33
Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki gera stórar athugasemdir við opnun Grindavíkurbæjar, sem varð í dag, en segir þó að upplýsingagjöf til ferðamanna sem hyggist fara í bæinn sé lítil sem engin. 21.10.2024 11:08
Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað. 17.10.2024 22:11
One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Fyrrverandi meðlimir strákasveitarinnar One Direction hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fráfalls eins þeirra, Liams Payne, sem féll af svölum hótels í Buenos Aires í Argentínu. 17.10.2024 20:47
Starfsstjórn tekin við stjórnartaumunum Starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er tekin við völdum. Þetta var tilkynnt að loknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum í kvöld. 17.10.2024 19:17
Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Ísraelski herinn hefur staðfest að þeir hafi banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas-samtakanna, í átökum á Gasaströndinni í gær. Lík hans fannst í dag og í DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að um hann hafi verið að ræða. 17.10.2024 17:52
Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Landsréttur hefur þyngt dóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt hann í þriggja og hálfs árs fangelsi vegna málsins, en vildi meina að háttsemi hans hefði ekki verið nauðgun. Landsréttur segir að um nauðgun sé að ræða og dæmir hann í fimm ára fangelsi. 17.10.2024 17:05
Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni. 17.10.2024 16:01
Hundrað ára Carter búinn að kjósa Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki. 16.10.2024 21:52