Splunkunýtt skip Samherja komið til Eyjafjarðar Nýtt uppsjávarskip, Vilhelm Þorsteinsson EA, sigldi í fyrsta sinn inn Eyjafjörð í gær en skipið var sérsmíðað í Danmörku fyrir Samherja. Skipið er 89 metrar á lengd, 16,6 metrar á breidd og burðargeta þess vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem afli verður kældur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. 3.4.2021 13:52
Eyfi 60 ára: Fæddist heima í svefnherbergi og var aldrei sendur í tónlistarskóla Tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson, betur þekktur sem Eyfi, fagnar sextugsafmæli 17. apríl næstkomandi. Eyfi hefur í gegnum tíðina samið ógrynni laga og texta sem lifað hafa með þjóðinni en Eyfi fór yfir lífið, tilveruna og tónlistina í einlægu páskaviðtali við Ívar Guðmundsson á Bylgjunni í dag. 3.4.2021 13:23
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sóttvarnalæknir segir að ef reglugerð um sóttkvíarhótel stenst ekki lög muni það kippa fótunum undan sóttvörnum að miklu leyti. Reglugerðin hafi verið sett því fólk hafi ekki verið að halda sóttkví - sem sé lykilatriði í baráttunni við faraldurinn. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar sem hefjast klukkan tólf. 3.4.2021 11:47
Árásin í gær vekur spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið Árásin sem gerð var við bandaríska þinghúsið í Washington DC í gær, þar sem einn lögreglumaður lést og annar særðist, hefur vakið nýjar spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið. Aðeins þrír mánuðir eru liðnir síðan æstur múgur gerði atlögu að þinghúsinu en þá létust fimm og enn fleiri særðust. 3.4.2021 11:42
Guðbrandur leiðir lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, mun leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn. Guðbrandur, sem oftast er kallaður Bubbi að því er segir í tilkynningunni, er fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. 3.4.2021 10:54
Opna aftur fyrir umferð að gosstöðvunum á morgun Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadölum frá hádegi á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum en gert er ráð fyrir að opnunin taki gildi klukkan tólf á morgun, páskadag. 3.4.2021 10:03
Gular viðvaranir, erfið færð og lélegt skyggni við gosstöðvarnar Búist er við suðvestan hvassviðri eða stormi á Norður og Austurlandi í dag. Síðdegis er aftur á móti viðbúið að snúi í norðanátt með talsverðri snjókomu og færð fer versnandi á norðanverðu landinu að því fram kemur í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Gular veðurviðvaranir taka víða í gildi í dag. 3.4.2021 09:55
Bjargaði ketti úr vörulyftu Erilsamt hefur verið hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring. Slökkviliðið sinnti fimm dælubílaverkefnum en seinni partinn í gær var til að mynda óskað eftir aðstoð slökkviliðsins vegna kattar sem sat fastur uppi í vinnulyftu. Kisi ku hafa verið sáttur við að komast niður að því er segir í Facebook-færslu slökkviliðsins. 3.4.2021 09:29
Létu þriggja og fimm ára stúlkubörn falla niður fjögurra metra háan landamæravegg Bandaríska landamæragæslan birti í gær myndband sem sýnir hvar tvö börn eru látin detta yfir rúmlega fjögurra metra háan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Börnin tvö eru systkini frá Ekvador og talið er að smyglarar hafi verið að verki. 1.4.2021 16:24
3.500 áhorfendur fá að vera viðstaddir Eurovision Hollensk stjórnvöld hafa gefið heimild fyrir því að 3.500 áhorfendur fái að vera viðstaddir Eurovision söngvakeppnina sem fram fer í Rotterdam í maí. Eurovision féll niður í fyrra, í fyrsta sinn í sögu keppninnar, vegna kórónuveirunnar. 1.4.2021 15:09