Úkraínumenn halda áfram árásum sínum utan landamæranna Árás sem gerð var með úkraínskum dróna á eitt stærsta olíutankskip Rússa er sú nýjasta í röð árása þar sem úkraínski herinn hefur notast við ómönnuð tæki til að hæfa rússnesk skotmörk bæði af sjó og úr lofti. 5.8.2023 15:08
Innkalla grænkerarétt Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað vöru að nafni Shicken Butter Curry eftir að málmstykki fannst í pakkningu. Varan hefur verið seld í verslunum Krónunnar, Nettó, Hagkaupa og í Vegan búðinni. 5.8.2023 13:45
„Þetta er alveg það mikið tjón að maður talar við lögfræðing“ Bubbi Morthens segist sitja uppi með mikið fjárhagslegt tjón eftir að flugferð hans frá eyjunni Krít var skyndilega aflýst í gær. Það eina í stöðunni sé að taka málinu með ró en íslenska hópnum hefur verið tilkynnt að ekki verði flogið til Íslands fyrr en eftir miðnætti að grískum tíma. 5.8.2023 11:06
Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan dæmdur í þriggja ára fangelsi Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar á grundvelli ásakana um spillingu. 5.8.2023 09:02
Íslenskir skátar beri sig vel þrátt fyrir hrakfarirnar í Suður-Kóreu Mikil rigning og hitabylgja hefur leikið 140 íslenska skáta grátt sem staddir eru í Suður-Kóreu til að taka þátt í Alheimsmóti skáta. Mannskapur frá suður-kóreska hernum og Rauða krossinum var sendur á staðinn þegar uppbygging vinnubúða á mótssvæðinu gekk illa vegna veðurs. 5.8.2023 08:03
Veðrið að skýrast um helgina Spáð er suðaustlægri eða breytilegri vindátt í dag, þremur til átta metrar á sekúndu og verður skýjað með köflum víða á landinu. Dálítil rigning á suðvestanverðu landinu en annars líkur á dálitlum skúrum, einkum inn til landsins og bætir í skúrina eftir hádegi. Yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti ellefu til sextán stig. 5.8.2023 07:26
Bubbi strandaglópur á Krít Fjöldi Íslendinga eru strandaglópar á eyjunni Krít á Grikklandi eftir að flugferð Icelandair þaðan til Íslands var aflýst vegna tæknibilunar. Meðal þeirra er tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens en ekki liggur fyrir hvenær farþegar komast heim. 4.8.2023 22:53
Rukkar umdeilt þjónustugjald vegna „algjörlegra fáránlegra“ kvöld- og helgartaxta Þjónustugjald sem leggst ofan á verð á matseðli veitingahússins Legendary Nordic Restaurant á Hellu hefur vakið athygli og telur formaður Neytendasamtakanna fyrirkomulagið líklega brjóta í bága við lög. Eigandi staðarins segir gjaldið vera valkvætt og ætlað að mæta þeim mikla kostnaði sem fylgi veitingahúsarekstri á Íslandi. 4.8.2023 21:28
Samkeppnin mikil en rokkararnir tryggur hópur Stjórnendur veitingastaðarins Lemmy ráðast ekki á garðinn sem hann er lægstur og bjóða nú upp á sannkallaða rokkhátíð í miðbæ Reykjavíkur á sama tíma og íbúar höfuðborgarsvæðisins yfirgefa suðvesturhornið í stórum stíl. 4.8.2023 20:20
Vonast til að geta skemmt sér eitthvað líka Að venju leggja fjölmargir Íslendingar land undir fót þessa stærstu ferðahelgi ársins og hefur umferð í gegnum Selfoss borið þess merki. Töluverður fjöldi ökumanna fór yfir Ölfusárbrú á sjöunda tímanum í kvöld og hefur umferðin þar almennt gengið vel í dag. 4.8.2023 19:39