Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Eiður Þór Árnason skrifar 15. maí 2026 22:47 Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Vísir/Lýður Valberg Oddviti Viðreisnar útilokar meirihlutasamstarf við Miðflokkinn í borgarstjórn og segir Samfylkinguna ekki vera sinn fyrsta kost. Henni lítist betur á samstarf við oddvita Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Pírata. Þetta sagði Björg Magnúsdóttir í kappræðum RÚV í kvöld. „
Ég hef nú farið ansi langt með að segja það að það eru of mörg skref á milli okkar Ara [oddvita Miðflokksins], Viðreisnar og Miðflokksins. Það er pólitískur ómöguleiki fyrir okkur í Viðreisn og Miðflokknum að ná saman, svo það sé bara sagt skýrt,“ sagði Björg. Einar ekki spenntur fyrir Miðflokknum Miðað við nýjustu könnun Gallup sem birt var í dag getur Sjálfstæðisflokkurinn myndað meirihluta í borgarstjórn ásamt Miðflokknum og Framsóknarflokknum. Björg spurði Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, hvort hann teldi eftirspurn vera eftir slíkum meirihluta hjá borgarbúum og hvernig honum litist á að fara í slíkan meirihluta. Einar sagðist þá frekar vilja mynda meirihluta með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki. „Ari [oddviti Miðflokksins] er ágætur en þið eruð með erfitt pólitískt bakland sem þið eruð búin að lofa að taka róttækar ákvarðanir varðandi Samgöngusáttmálann og þið eruð í bullandi vandræðum með hinsegin málin og talið svona dálítið inn í óttann í samfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar að við séum á þeim stað með Reykjavíkurborg að við verðum að tala skýrt til kjósenda um það hvað við ætlum að gera við atkvæðið okkar eftir kosningar. Ég held að þetta væri skynsamur, hófsamur meirihluti, umburðarlyndur og ég vil bara að kjósendur viti það.“ Einar áréttaði að samkvæmt sömu könnun Gallup vanti einn mann upp á að þessi meirihluti gangi upp. Björg myndi hringja fyrst í Hildi Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, spurði Björgu hvort hún teldi að Viðreisn myndi ná meiri árangri með þeirra mál og boðuðu umbreytingarstefnu í samstarfi við Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn. Björg sagði flokkinn láta málefnin ráða og ítrekaði að hún hefði áður sagt að oddviti Samfylkingarinnar fengi ekki hennar fyrsta símtal eftir kosningar. „Fyrsta símtalið væri til þín, því mér finnst þetta með frjálslyndið og frelsi inn í kerfin, að frelsa ráðhúsið úr þessari stjórnsemi sem hefur ríkt, ég tel að það sé afar mikilvægt.“ Þáttastjórnendur spurðu Hildi út í mögulega meirihluta og við hverja hún væri búin að tala í aðdraganda kosninganna. Hún sagðist ekki ætla að upplýsa um einkasamtöl en hún hefði rætt við nokkra. „Við höfum átt samtöl við kaffivélina, til dæmis í Ráðhúsinu.“ Hún myndi helst vilja mynda meirihluta með Framsókn, Viðreisn og Miðflokki þar sem stefnumál þeirra væru næst hvort öðru. Ara sárnaði tal Einars Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn væru ekki hluti af hans draumameirihluta. Hann horfi frekar til vinstri og inn á miðju með Vinstrinu og Viðreisn. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði lengst á milli þeirra og Samfylkingarinnar. Honum litist ágætlega á samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn, og jafnvel Viðreisn. „Ég var sleginn dálitlum óhug áðan þegar Einar fór að tala svona illa um Miðflokkinn. Mér fannst bara kjósendur heyra það þá hátt og skýrt að ef þeir vilja breytingar í samgöngumálunum í Reykjavík og skipulagsmálunum og þessum stóru málum þá væri öruggast að kjósa Miðflokkinn.“ Sanna Magdalena, oddviti Vinstrisins, sagðist geta hugsað sér samstarf með Sósíalistum eftir þau átök sem hafa skekið flokkinn sem leiddu til þess að hún yfirgaf hann. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Sjá meira