

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Eyrún og Þorgils til SI
Eyrún Arnarsdóttir og Þorgils Helgason hafa verið ráðin til Samtaka iðnaðarins.

Vistaskipti hjá fangelsismálastjóra
Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, verður settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans.

Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni
Kristrún Lilja Júlíusdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar einingar, stafrænnar stefnumiðaðrar umbreytingar hjá Orkuveitunni. Kristrún kemur frá Íslandsbanka, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki sem forstöðumaður daglegra bankaviðskipta.

Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata
Kosið var til framkvæmdastjórnar Pírata á aðalfundi flokksins í Hörpu í dag. Umtalsverð nýliðun varð í framkvæmdastjórn flokksins sem og stefnu- og málefnanefnd.

Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital
Hekla Arnardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital.

Pipar/TBWA eflir samskiptateymið
Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Margréti Stefánsdóttur almannatengil og Silju Björk Björnsdóttur, sérfræðing í samfélagsmiðlum í samskipta- og almannatengslateymi stofunnar, sem Lára Zulima Ómarsdóttir leiðir.

Tómas hættir hjá Símanum og Höddi tekur við enska boltanum
Tómas Þór Þórðarson, sem hefur síðustu fimm ár stýrt umfjöllun Símans sport um enska boltann, er hættur. Hörður Magnússon tekur við ritstjórnartaumunum, en þetta er síðasta tímabilið í enska boltanum sem Síminn sýnir í bili.

Frá Viðskiptaráði til BBA//Fjeldco
Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur gengið til liðs við lögmannsstofuna BBA//Fjeldco. Agla Eir starfaði áður sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.

Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins
Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Hrafnhildur gengur til liðs við ADVEL lögmenn frá ESA
Hrafnhildur Kristinsdóttir, sem hefur síðustu ár starfað sem lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), hefur gengið til liðs við ADVEL lögmenn. Þar mun hún starfa sem ráðgjafi samhliða kennslu við Háskólann í Reykjavík.

Sara Lind ráðin framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi
Sara Lind Guðbergsdóttir, sem hefur meðal annars gegnt stöðu setts forstjóra Ríkiskaupa og Orkustofnunar, mun á næstunni taka við sem framkvæmdastjóri Climeworks hér á landi. Svissneska félagið starfrækir stærsta lofthreinsiver á heimsvísu á Hellisheiði í samstarfi við Carbfix og Orku náttúrunnar.

Vilborg til Iðunnar frá Sýn
Vilborg Helga Harðardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Iðunnar fræðsluseturs.

Aðstoðarmaður ráðherra í baráttu við settan skrifstofustjóra
Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var um miðjan júlí. Umsóknarfrestur rann út þann 12. ágúst.

Fyrrverandi forstjóri Reita stýrir Ísey
Guðjón Auðunsson, fyrrverandi forstjóri Reita fasteignafélags, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍSEY útflutnings ehf (ÍSEY).

Unnur Eggerts og Mateja til Maura
Unnur Eggertsdóttir og Mateja Deigner hafa gengið til liðs við auglýsingastofuna Maura. Unnur hefur verið ráðin sem hugmynda- & textasmiður og verkefnastjóri og Mateja sem grafískur hönnuður.

15 fatlaðir starfsmenn hættir á Múlalundi
Miklar breytingar eiga sér nú stað á starfsemi Múlalundar á Reykjalundi í Mosfellsbæ því þar er fólk með fötlun að missa vinnuna og einhverjir eru að hverfa til annarra starfa. Fimmtán fatlaðir starfsmenn voru kvaddir í gær, þar af einn starfsmaður, sem hefur unnið á Múlalundi í 38 ár.

Ráðinn hönnunarstjóri Aton
Sigurður Oddsson hefur verið ráðinn til Aton sem hönnunarstjóri.

Innáskipting hjá Kviku
Sigurgeir Guðlaugsson, sem hefur verið varamaður í stjórn Kviku banka tekur sæti Guðmundar Arnar Þórðarsonar og kemur nýr inn í stjórn bankans. Guðmundur Örn tók á dögunum við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku.

Verður meðal stærstu hluthafa og tekur við stjórnarformennsku
Håkon André Berg verður nýr starfandi stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins GeoSalmo. Samhliða því að taka við stjórnarformennsku fjárfestir Håkon í félaginu og verður meðal stærstu hluthafa félagsins.

Katrín tekur sæti í háskólaráði HÍ
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur tekið sæti í háskólaráði Háskóla Íalands til næstu tveggja ára. Meðal verkefna háskólaráðs er að marka heildarstefnu í málefnum háskólans og setja reglur um starfsemi háskólans á grundvelli laga. Þá fer háskólaráð með úrskurðarvald í málefnum skólans.

Skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR
Dr. Stefan Wendt viðskiptafræðiprófessor hefur verið skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík.

Kveður Marel og verður aðstoðarforstjóri Kapp
Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri tæknifyrirtækisins Kapp.

Helga Hrund í hóp meðeiganda Maven
Helga Hrund Friðriksdóttir hefur bæst í hóp meðeigenda þjónustu- og ráðgjafafyrirtækisins Maven ehf. Þá hefur Anna Kristín Ólafsdóttir verið ráðin skrifstofustjóri hjá fyrirtækinu.

Ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans
Elvar Þór Karlsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hefja störf í vetur.

Sesselía yfirgefur Vodafone
Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone fjarskipta, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur gegnt starfinu frá því í apríl 2022 og sat áður í stjórn móðurfélagsins Sýnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að Sesselía muni starfa áfram með Vodafone þar til eftirmaður verður ráðinn.

Alma Mjöll ráðin til þingflokks VG
Alma Mjöll Ólafsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hún starfaði til margra ára sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni.

Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur
Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður og lögmaður, hefur bæst við hóp lögmanna Lögfræðistofu Reykjavíkur. Helga Vala útskrifaðist með ML gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og öðlaðist sama ár málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og síðar fyrir Landsrétti.

Forstöðumaðurinn fannst í Salnum
Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann hefur starfað hjá Salnum frá árinu 2022. Tæpt ár er síðan forstöðumaður Salarins til tólf ára lét af störfum og gagnrýndi áhugaleysi meirihlutans í bæjarfélaginu á starfseminni.

Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar
Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Meðal umsækjenda eru settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, líftæknir og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar.

Þórhallur ráðinn fjármálastjóri SORPU
Þórhallur Hákonarson hefur verið ráðinn fjármálastjóri SORPU. Hann starfaði áður sem sviðsstjóri fjármálasviðs hjá Lyfjastofnun undanfarin sextán ár, meðal annars sem staðgengill forstjóra.