

Veitingastaðir
Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Fjölskylduvæn stefna á Nítjándu
Veitingastaðurinn Nítjánda, á 19. hæð Turnsins að Smáratorgi 3 í Kópavogi, hefur skipað sér í fremstu röð veitingahúsa landsins. Staðurinn heldur úti fjölskyldustefnu sem miðar að því að foreldrar og börn njóti sín til hins ýtrasta.

Keppendur úr Bocuse d'Or á Food and Fun
Þeir keppendur á Food and Fun í ár sem hafa tekið þátt í hinni frægu Bocuse d'Or keppni eru Matti Jämsen frá Finnlandi og Chris Parsons frá Bandaríkjunum sem verið hefur einn af tólf útvöldum sem keppa í amerísku undankeppninni.

Íslenskt hráefni eldað á amerískan máta á Grillinu
Gestakokkur Grillsins á Hótel Sögu á Food and Fun verður bandaríski kokkurinn Chris Parsons, sem rekur veitingastaðinn Catch í útjaðri Boston.

Ósvikið dekur við bragðlauka gesta
Jarðsveppir, ostrur, humar og foie gras eru meðal hinna fersku og fínu hráefna í réttum veitingastaðarins VOX á matarhátíðinni Food and Fun.

New York á Einari Ben
Veitingahúsið Einar Ben hefur allt frá upphafi Food and Fun tekið þátt í hátíðarhöldunum.

Henriksen aftur á Dilli
Veitingastaðurinn Dill hefur skapað sér góðan orðstír fyrir nýnorræna matargerð. Nú hafa eigendur staðarins fengið til liðs við sig danskan matreiðslumann sem vann Food and Fun keppnina fyrir tveimur árum.

Góðar hugmyndir vakna
Sjávarkjallarinn tekur þátt í Food and Fun sem hefst í næstu viku og fær líkt og aðrir veitingastaðir til sín góðan gestakokk.

Sænskur stjörnukokkur eldar íslenskt á Nauthól
Sænski stjörnukokkurinn Bengt Sjöström verður gestakokkur á Nauthól á Food and Fun hátíðinni.

Taílenskur Fiskmarkaður
Taílenskur matur verður í forgrunni á Fiskmarkaðnum á meðan Food and Fun stendur yfir því gestakokkurinn Morten Döjfstrup starfar á taílenska veitingahúsinu Kiin Kiin í Kaupmannahöfn.

Nútímalegt í Lava
Lava í Bláa lóninu er virkur þátttakandi í Food and Fun matarhátíðinni í ár.

Járnfrúin á Silfrinu
Gestakokkurinn sem mætir til leiks á veitingastaðnum Silfri í næstu viku er enginn annar en sjálf Járnfrúin Celina Tio úr sjónvarpsþáttunum Iron Chef. Hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu.

Þorstinn var hinn sami þrátt fyrir rafmagnsleysi
Bilun í háspennustreng í Hallveigarstíg setti strik í reikninginn hjá skemmtanaglöðum borgarbúum í gærkvöldi. Rafmagn fór af hluta Laugavegarins frá Snorrabraut og á Hverfisgötu að Lækjartorgi laust upp úr klukkan ellefu, um það leyti sem næturlífið í miðbænum er venjulega að glæðast. Posar veitingastaða og kráa duttu þar með út - en þorstinn var hinn sami og venjulega hjá bargestum.

Siggi Hall opnar nýjan stað
„Ég stefni að því að opna nýjan veitingastað á vori, undir sömu formerkjum, markmiðið er að hann verði besti veitingastaður á Íslandi." segir Sigurður Hall, meistarakokkur. Eins og kunnugt er hætti Siggi nýverið á Óðinsvéum, þar sem hann hefur rekið veitingastaðinn Sigga Hall í rúm átta ár.