Höfðu það notalegt við arineld á meðan veðrið gekk yfir Fjölskyldan í Reykjavíkurhöfn greip til viðeigandi ráðstafanna þegar fregnir bárust um versnandi veður. Veðrið var þó alls ekki jafn slæmt og þau bjuggust við. Innlent 1. desember 2014 11:02
Útsendingin frá Holuhrauni aftur komin í loftið Nóg var að endurræsa vélarnar frá höfuðstöðvum Mílu eftir að þær duttu út í óveðri gærkvöldsins. Innlent 1. desember 2014 11:00
Brotið jólatré: Borgarstjóri spyr hvernig bjarga megi jólunum Jólatréð á Austurvelli fékk að kenna á því í óveðrinu í gærkvöldi. Góður hluti af efri hluta trésins brotnaði af og stjarnan hékk í miðju trénu. Innlent 1. desember 2014 10:43
Minnstu skjálftar týnast í óveðrinu Stærstu skjálftar við Bárðarbungu frá því um hádegi í gær urðu kl. 18:42 í gær 4,4 stig og kl. 05:25 í morgun 4,3 stig. Innlent 1. desember 2014 10:32
Gámur fauk til á Sundahöfn: Lítið tjón miðað við aðstæður „Vindurinn á svæðinu var að nálgast fellibilsstyrk hérna á tímabili,“ segir upplýsingafulltrúi Eimskipa. Innlent 1. desember 2014 10:29
Tveir Svisslendingar ákváðu að fara Kjalveg til Reykjavíkur Björgunarfélagið Blanda á Blönduósi fékk útkall rétt rúmlega þrjú í nótt. Bíll var fastur á Kjalvegi rétt norðan við Hveravelli. Innlent 1. desember 2014 09:23
Björgunarsveitarmenn ná tökum á gámi sem fauk á bifreið Lögreglan á Akureyri hefur sett inn myndbandsupptöku af björgunarsveitarmönnum að störfum. Innlent 1. desember 2014 08:56
Flug líklega ekki með eðlilegum hætti fyrr en á morgun "Það er töluverður hluti fluga enn í seinkun vegna veðurs,“ segir Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair. Innlent 1. desember 2014 08:36
Engin slys en þónokkuð tjón víða Ekki er vitað til að nein alvarleg slys hafi orðið í ofsaveðrinu sem gekk yfir landið í gær og í nótt og verulega hefur dregið úr vindi nema hvað nokkuð hvasst er enn sumstaðar á Norðurlandi. Innlent 1. desember 2014 07:22
Vonskuveður á Akureyri: Gámur fauk nokkra metra Á meðfylgjandi myndum má sjá björgunarsveitarmenn að störfum í Drekagili en þar fór gámur á hliðina eftir að hann tók á sig vind. Hviðurnar voru svo sterkar að þær feyktu gáminum nokkra metra og var hann farinn að nálgast kyrrstæðan bíl þegar björgunarsveitarmenn bar að garði, að sögn sjónarvottar. Innlent 1. desember 2014 02:04
Fjölskyldan í Reykjavíkurhöfn: Heldur kyrru fyrir í seglskútunni í óveðrinu "Við höfum séð það miklu verra,“ segir Natasha Gonzáles. Innlent 1. desember 2014 00:43
Vefmyndavél við Holuhraun dottin út Myndavél Mílu mátti sín lítils gegn veðurofsanum á hálendinu norðan Vatnajökuls. Innlent 30. nóvember 2014 23:17
„Hvernig ætli IKEA-geitin hafi það?“ Það er víst lægð yfir landinu og það fer ekki framhjá notendum Twitter. Innlent 30. nóvember 2014 23:09
Tré rifna upp með rótum Aron Kristinn Ágústsson, nemandi í Háteigsskóla, var á ferðinni við Kennaraháskólann í kvöld. Innlent 30. nóvember 2014 23:05
Draumaborðið kom fljúgandi inn um gluggann Sigfríður Björnsdóttir, íbúi í Hlíðunum í Reykjavík, fékk óvænta og óskemmtilega sendingu inn um rúðuna á heimili sínu í kvöld. Innlent 30. nóvember 2014 22:50
Svæðum lokað í Vestmannaeyjum: Fólk beðið að vera ekki á ferðinni Búið er að setja upp lokunarpósta við Strandveg, Hlíðarveg og fleiri staði. Innlent 30. nóvember 2014 22:38
Heita vatnið komið á í Efra-Breiðholti Starfsfólk Orkuveitunnar hefur lokið viðgerð við dælustöð. Innlent 30. nóvember 2014 22:35
Umferðarljós víða óvirk Rafmagnstruflanir hafa orðið víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og hefur það haft áhrif á umferðarljós Innlent 30. nóvember 2014 22:29
Erlendur ferðamaður aldrei upplifað annað eins "Ég átti nú frekar von á snjó en þessu,“ sagði einn þriggja ferðamanna sem blaðamaður rakst á í Austurstræti á tíunda tímanum. Innlent 30. nóvember 2014 22:27
Rafmagnstruflanir víða í óveðrinu Rafmagnslaust varð í Vogahverfi, Háaleitishverfi og hluta Hlíðahverfis fyrr í kvöld. Innlent 30. nóvember 2014 22:18
Jólatré í miklu basli Jólatréð við Miklubraut nærri Elliðarárnum er farið að halla verulega og stjarnan er fallinn af toppi Óslóartrésins. Innlent 30. nóvember 2014 22:14
Ef vindhraði væri mældur í km/klst Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir okkur frá því hví við mælum vindhraða í metrum á sekúndu. Innlent 30. nóvember 2014 22:14
Þakplötur fuku á bíl á ferð við Álftamýri Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að rýma bílastæði í grenndinni til þess að forða frekara tjóni. Það er of hvasst á þaki hússins til þess að hægt sé að festa plöturnar niður þar og verður það gert þegar fer að lægja. Innlent 30. nóvember 2014 21:48
Pollrólegur pylsusali: "Fólk spyr frekar hvernig ég hafi það en að kvarta sjálft“ Jóhannes Ólafsson pylsuséní var hinn hressasti þegar blaðamaður tók á honum púlsinn á Bæjarins Bestu á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 30. nóvember 2014 21:47
Strætisvagnar hættir að ganga Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu liggja nú niðri sökum veðurofsans Innlent 30. nóvember 2014 21:19
„Lífshættulegt að vera á ferðinni á Suðurlandi“ Stjórnandi björgunaraðgerða á Suðurlandi segir að fólk eigi ekki að vera á ferli í þeim landshluta. Veðrið sé snarvitlaust og í raun lífshættulegt. Innlent 30. nóvember 2014 21:12
Björgunarsveitir báðu Domino's að hætta heimsendingum Þegar blaðamaður hringdi inn til fyrirtækisins fengust þau svör að viðskiptin hefðu verið svipuð og önnur sunnudagskvöld og að bílstjórar hefðu ekki lent í neinum skakkaföllum í dag. Innlent 30. nóvember 2014 21:12
Björgunarsveitarmenn kallaðir út víða um land Á annað hundrað björgunarmenn sinntu í dag fjölda útkalla í dag á suðvestur- og suðurhorni landsins er stormur gekk þar yfir. Búist er við ofsaveðri í kvöld. Innlent 30. nóvember 2014 21:03
Fólk beðið um að líma rúður sínar að innan Aðgerðarstjórn björgunarsveitanna á Suðurnesjum beinir þeim tilmælum til fólks að teipa rúður á húsum sínum að innan vegna hættu á því að þær brotni. Innlent 30. nóvember 2014 20:54