Æskuvinirnir frá Kaliforníu Gríngengið Lonely Island getur ekki birt myndband á Youtube án þess að milljónir manna horfi á það. Ný plata er á leiðinni frá genginu og á meðal gesta eru Justin Timberlake og sjálfur Michael Bolton. Lífið 5. maí 2011 16:00
Tónleikar fyrir BBC Enska hljómsveitin Radiohead ætlar að flytja nýjustu plötu sína, The King of Limbs, í heild sinni fyrir breska ríkissjónvarpið, BBC. Tónleikarnir verða hluti af Live From The Basement tónleikaröð BBC og verða þeir sýndir 1. júlí. Upptökustjóri tónleikanna verður Nigel Godrich sem stjórnaði einnig upptökum á The King of Limbs. Lífið 5. maí 2011 07:00
Kærustparatónlist sem varð til á fylleríi Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar Valdimar, og Björgvin Ívar Baldursson, upptökustjóri hjá Geimsteini og liðsmaður Lifunar, gefa saman út plötu í sumar. Lífið 2. maí 2011 08:00
Vasadiskó - 3. þáttur - handritið intro & talkback lag - NEU! - Hallogallo. Kynning. Frídagur verkalýðsins, hér sit ég samt - og stóð ég í nótt á bar11. Dagskrá þáttarins etc - Kynning á nýjum plötum Tune-Yards og Kurt Vile. Krummi mætir í Selebb Shuffle. - nýtt frá Mammút - Legend - Sölva Blöndal… - tónlistarfrétt vikunnar sem leið hlýtur að vera endurkoma Quarashi. RÚV fréttirnar/Kastljós/Auddi&Sveppi og fleira. Er að misnota aðstöðu mína þar sem ég er að hjálpa til… en ætla að misnota aðstöðu mína með stæl og spila Quarashi lag sem hefur aldrei fengið útgáfu.. Tónlist 2. maí 2011 00:01
Vasadiskó - 1.þáttur Fyrsti þátturinn fór í loftið núna á sunnudaginn og allt gekk bara prýðilega. Tæknimálin voru svona 82% á hreinu - en allt annað gekk bara eins og í smurð maskína. Fyrir þá sem misstu af - ætla ég að birta handritið af þættinum hérna eftir hvern þátt. Einnig birti ég sérfærslu um Selebb Shuffle, liðinn þar sem einhver þekktur mætir með vasadiskóið sitt og setur á Shuffle. Það var hún Lilja Katrín úr Makalaus þáttunum á Skjá1 sem reið á vaðið. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Selebb Shuffle: Lilja Katrín Gunnarsdóttir úr Makalaus Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona úr Makalaus og blaðakona Séð&Heyrt mætti í fyrsta þáttinn og reið á vaðið í liðnum Selebb Shuffle. Þar mætir vel valin einstaklingur með vasadiskóið sitt (iPod eða annan mp3 spilara) og setur á Shuffle. Engin veit hvað gerist. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Selebb Shuffle 2 - Jón Þór Ólafsson Tónlistarmanninum Jón Þór Ólafssyni er greinilega ekkert heilagt því hann hikaði ekki við að mæta á páskasunnudag í þáttinn minn - sem var í beinni. Hann mætti askvaðandi á svæðið með litrík heyrnartól og silfurlitaðan iPod nanó. Ég hafði spilað lagið Tímavél af nýútkominni EP plötu hans í þættinum þannig að við gátum farið beint í það að tengja vasadiskóið hans í beina og setja á Shuffle. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Lag dagsins - Tennesee Ernie Ford - 16 Tons Það er eitthvað við þetta lag og þessa bassarödd sem er algjörlega dáleiðandi. Síðan er textinn svo harður - hljómar eins og söngur kolanámumannsins. Menn gefa ekki upp andann þrátt fyrir að vera alsótugir… enginn miskunn! Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Vasadiskó verður útvarpsþáttur á X-inu - bloggið yfir á Vísi Fyrir áramót hélt ég uppi tónlistarbloggi á bloggar.is kerfinu. Þið getið lesið það hér. Núna hefur verið gengið frá því að Vasadiskó er að verða að útvarpsþætti á X-inu 977 - fyrsti þáttur fer í loftið núna á sunnudaginn 17. apríl og verður í boði tónlist.is. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
The Kills - Blood Pressures (2011) "Ok... geisp-AAAAA". Blood Pressures er fjórða breiðskífa The Kills frá því að þau hófu að geta af sér afkvæmi árið 2003. Strax eftir aðra plötuna varð ljóst að hér væri svalt band á ferð. Nægilega svo til þess að afla sér ágætis aukatekna með sölu laga sinna í gallabuxnaauglýsingar og svoleiðis. Þau hafa það fínt. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Does it Offend You, Yeah? - Don't Say We Didn't Warn You Önnur plata bresku indí-teknó háskólakrakkana frá Reading. Fyrsta platan var nægilega beitt til þess að ýta tónleikaferðalagstannhjólinu af stað. Sveitin hefur því verið á linnulausu ferðalagi heimshornanna á milli síðan fyrri platan, You Have No Idea What Your getting Yourself into, kom út árið 2008. Það var fín plata en þar stóð hæst upp úr lagið Let's Make Out sem Sebastian Grangier úr Death From Above 1979 söng. Tónlist 29. apríl 2011 00:01
Nýtt efni frá Damon á netinu Nýtt lag sem tónlistarmaðurinn Damon Albarn tók upp með Dan the Automator og Kid Koala gengur nú hratt á milli tónlistarunnenda á netinu. Lagið komst í umferð eftir að Kid Koala spilaði það í útvarpsþætti á þriðjudagskvöldið. Hægt er að sjá hann spila lagið í þættinum í myndbandinu hér fyrir ofan. Tónlistarmennirnir hafa ekkert látið uppi um lagið eða önnur sem kunna að fylgja í kjölfarið en almennt er talið að það verði á væntanlegri sólóplötu Dan the Automator. Albarn vann með þeim tveimur að fyrstu plötu Gorillaz árið 2001. Lífið 28. apríl 2011 21:00
Fleet Foxes full af sjálfri sér Fleet Foxes var án nokkurs vafa ein af hljómsveitum ársins 2008. Frumburði hljómsveitarinnar var gríðarlega vel tekið, en nú er önnur platan á leiðinni og væntingarnar eru miklar. Önnur breiðskífa Fleet Foxes, Helplessness Blues, kemur út í byrjun maí. Í fyrstu átti platan að vera tekin upp á stuttum tíma og forsprakkinn Robin Pecknold sagði í viðtali við tónlistarvefinn Pitchfork að allur söngur ætti að vera tekinn upp í einni tilraun. „Þannig að ef við klúðrum einhverju vil ég halda því á plötunni,“ sagði hann. „Ég vil ekki að raddirnar verði gallalausar og ég vil að það sé gítarklúður.“ Pecknold og félagar hættu svo við þessa hugmynd, hentu því sem þeir voru búnir að taka upp og byrjuðu upp á nýtt. Þeir gáfu sér góðan tíma í upptökurnar og afraksturinn lofar góðu, miðað við titillagið sem er þegar byrjað að hljóma á öldum ljósvakans. Lífið 28. apríl 2011 14:00
Vasadiskó - 2. þáttur - handritið Páskadagur - 24.apríl - kl. 15 - 17. Tim Hecker - In the fog II. Sá Agent Fresco á Sódóma daginn fyrir Skírdag. Nýi bassaleikarinn er magnaður. Bandið loksins orðið tilbúið til þess að sigra heiminn. Tónlist 28. apríl 2011 00:01
Með tvö lög í þáttunum So You Think You Can Dance "Þetta er frekar kúl. Ég horfi alltaf á þættina. Þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds, sem á tvö lög í næstu þáttaröð af So You Think You Can Dance sem fer í loftið í lok maí. Ólafur tekur fram að enn eigi eftir að klippa þættina en miklar líkur séu þó á að lögin tvö, Kjurrt og Gleypa okkur, verði í þáttunum. "Maður veit aldrei hvað endar í sjónvarpi og hvað ekki," segir hann varkár. Lögin eru af síðustu plötu Ólafs, …And They Have Escaped the Weight of Darkness sem kom út í fyrra. Þau eru bæði mjög róleg en tveir dansarar í þáttunum völdu þau fyrir dansatriði sín. Lífið 27. apríl 2011 11:00
Tekur upp nýja plötu Leikarinn Jeff Bridges er að undirbúa nýja plötu með T-Bone Burnett, sem samdi tónlistina í myndinni Crazy Heart. Lífið 21. apríl 2011 12:00
Umdeilt myndband Söngkonan Lady Gaga sendir á föstudaginn langa frá sér myndband við lagið Judas. Það er annað smáskífulagið af væntanlegri plötu hennar Born This Way. Í myndbandinu er Gaga klædd sem María Magdalena og hafa ljósmyndir úr því þegar vakið mikla hneykslan hjá fjölda trúarhópa. Lífið 21. apríl 2011 10:00
Spennandi tónlistarkokkteill TV on the Radio frá Brooklyn í New York hefur gefið út plötuna Nine Types of Light. Hljómsveitin er þekkt fyrir að hrista saman ýmsar tónlistarstefnur í litríkan og bragðgóðan kokkteil. Lífið 14. apríl 2011 10:00
Ekki veikan blett að finna Upptökum á fjórðu plötu Geirs Ólafssonar lauk fyrir skömmu í Kaliforníu. 22 hljóðfæraleikarar komu við sögu og stóðu upptökur yfir í þrjá og hálfan tíma. Lífið 13. apríl 2011 07:00
Á Icerave segja allir VÁ Kanilkvöld er yfirskrift nýrra mánaðarlegra danstónlistarkvölda. Annað Kanilkvöldið verður haldið á morgun á Faktorý. Sigurður Arent skipuleggjandi hefur ekki áhyggjur af brjáluðu Icesave-fólki. Lífið 8. apríl 2011 10:00
Eins og lítil sinfónía Hljómsveitin Dikta fær góða dóma á þýsku tónlistarsíðunni Pop100.com fyrir plötu sína Get It Together sem kom út þar í landi fyrir skömmu. Tónlistin er sögð ekki jafnflott og Geysir eða Sigur Rós en samt mjög góð. Tónlist 31. mars 2011 14:00
Syngur á plötu Arctic Monkeys Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, syngur á væntanlegri plötu bresku sveitarinnar Arctic Monkeys. Gripurinn nefnist Suck It And See og er væntanlegur í byrjun júní. Tónlist 31. mars 2011 06:00
Hentu eldri upptökunum Þjóðlagapoppararnir í Fleet Foxes þurftu að taka upp sína nýjustu plötu, Helplessness Blues, tvisvar sinnum. Lífið 29. mars 2011 21:00
Skálmöld slær í gegn Víkingarokkssveitin Skálmöld situr nú í toppsæti Tónlistans aðra vikuna í röð með plötu sína Baldur. Þetta telst að mörgu leyti óvenjulegt, yfirleitt eiga harðar rokksveitir á borð við Skálmöld ekki upp á pallborðið hjá almenningi en blómstra frekar í einangruðum kreðsum tónlistarinnar. Innlent 26. mars 2011 10:03
Týndri plötu lekið á netið Plötu Davids Bowie, Toy, sem útgáfufyrirtæki hans hætti við að gefa út árið 2002, hefur verið lekið á netið. Á plötunni eru nýjar útgáfur af mörgum af hans eldri lögum, þar á meðal In the Heat of the Morning og Liza Jane, fyrsta smáskífulaginu hans. Platan kom aldrei út á vegum Virgin, meðal annars vegna höfundarréttarmála. Eftir að Bowie stofnaði eigið útgáfufyrirtæki, ISO, hafa fimm lög af plötunni verið gefin út. Bowie hefur ekki gefið út nýja plötu í átta ár. Lítið hefur spurst af honum síðan hann gekkst undir hjartaaðgerð árið 2004. Lífið 24. mars 2011 10:30
Apparat tvisvar á Sódómu „Við spiluðum oft á stöðum eins gamla Grand rokki þar sem var troðið af fólki og hávaði og stemning,“ segir Úlfur Eldjárn úr hljómsveitinni Apparat Organ Quartet. Lífið 24. mars 2011 09:00
Tók upp plötu á iPhone Michael Stipe, söngvari R.E.M., segist hafa tekið upp síðustu plötu hljómsveitarinnar á iPhone-símann sinn. Platan Collapse Into Now kom út 7. mars og á meðal gesta á henni eru Eddie Vedder úr Pearl Jam, Patti Smith og Peaches. Lífið 24. mars 2011 07:00
Platan Watch The Throne tilbúin Upptökustjórinn Guru sem er að vinna að nýjustu plötu rapparanna Jay-Z og Kanye West segir að gripurinn sé nánast tilbúinn. Útgáfudagur hefur samt ekki verið ákveðinn. „Ég er að reyna að fá Jay og Kanye til að drífa sig að klára Watch The Throne því heimurinn þarf að hlusta á þessa plötu,“ sagði hann. „Það þarf að lagfæra nokkur smáatriði en annars er platan tilbúin. Kanye vill bæta við það sem upptökustjórar gera og í því liggur snilligáfa hans.“ Lífið 24. mars 2011 06:00
Manchester bíður eftir Björk - Tónleikar á Íslandi ekki ákveðnir enn Björk Guðmundsdóttir frumflytur tónlist af plötu sinni Biophilia í sumar með aðstoð hugbúnaðar og nýrra hljóðfæra, þar á meðal stafræns pípuorgels og tíu metra pendúls. Lífið 23. mars 2011 17:00
Pearl Jam býr til plötu Rokkararnir í Pearl Jam byrja í næsta mánuði að taka upp sína tíundu hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar, Backspacer, kom út árið 2009. "Við gerðum fullt af prufuupptökum og við erum með 25 möguleg lög,“ sagði bassaleikarinn Jeff Ament. Lífið 22. mars 2011 14:00